Bjarmi - 01.04.2018, Page 28
„Friður sé með yður“ er máttarorð sem
hreint út sagt „kemur vörunni til skila“.
Þannig er Guðs orð alltaf. Það er lifandi
og kröftugt og framkvæmir það sem það
segir. (Sbr. Jes. 55:1 On, Róm. 10:17, Gal.
3:2, Hebr. 4:12)
Hvað þá um okkur? Hefur nokkurt
okkar séð hinn upprisna Jesú? Höfum við
heyrt hann tala orð sitt til okkar? Hvernig
getum við vitað að við eigum líka hlutdeild
í þessum friði sem Jesús gefur postulum
sínum?
NÁÐiN VEITT
Við höldum áfram frá Jóhannesarguðspjalli
20:21: „Þá sagði Jesús aftur við þá: „Friður
sé með yður. Eins og faðirinn hefur sent
mig, eins sendi ég yður.“ Og er hann hafði
sagt þetta andaði hann á þá og sagði:
„Meðtakið heilagan anda. Ef þér fyrirgefið
einhverjum syndirnar fyrirgefur Guð þær. Ef
þér synjið einhverjum fyrirgefningar synjar
Guð þeim.““
Það sem kann að koma nútímalesanda
mest á óvart er að Jesús gefur postulunum
bæði vald til að fyrirgefa syndir og
synja fyrirgefningar. Þetta er á skjön við
hugsunarhátt okkar sem á sér samsvörun í
mótbárum faríseanna í Markúsarguðspjalli
2:6: „Hver getur fyrirgefið syndir nema
Guð einn?“ Og farísearnir hafa rétt fyrir sér,
valdið til að fyrirgefa syndir liggur hjá Guði
einum. Jafnframt sjáum við að hann notar
verkfæri eða meðul. Hann kallar og sendir
þá sem hann velur til að boða vilja sinn.
Hann gefur þeim heilagan anda sinn til að
tala og starfa gegnum þá (v. 22b).
Svarið við þessari gátu er að hann
sendir. Allt vald á himni og jörðu er gefið
syninum (Matt. 28:20). Hluta af þessu
valdi gefur sonurinn postulunum. Eins
og faðirinn sendi soninn sendir hann þá.
Samhengið kemur þegar í Ijós er hann
sendir þá tólf í fyrsta skipti og síðar hina
sjötíu: „Sá sem á yður hlýðir hlýðir á mig
og sá sem hafnar yður hafnar mér. En sá
sem hafnar mér hafnar þeim er sendi mig.“
(Lúk. 10:16)
Postularnir eru sendir til að vera
hendur Jesú rétt eins og Jesús situr við
28
bjarmi
apríl 2018