Bjarmi - 01.04.2018, Síða 33
Bænin hefur síðan breiðst út til annarra
landa, þar sem fólk biður fyrir sinni eigin
fósturjörð. Við settum svo á laggirnar
staðbundið bænahús í Ffald Y Brenin og
höfum reglulega bænadag á staðnum.
Við höfum svo sannarlega fundið hvernig
nærvera Guð er orðin áþreifanleg hérna og
margir gesta okkar hafa borið vitni um það.
Staðbundið bænahús (Local House
of Prayer) byggir á ákveðnum aðferðum
sem enn eru í mótun. Tilgangur með slíku
bænahúsi er að biðja þess að konungsríki
Guðs verði að veruleika í nærumhverfinu
og að við fáum ásamt nágrönnum okkar
að sjá og reyna endurleysandi verk Hans,
bæði í lífi einstaklinga en ekki síður í
þjóðfélagslegum og umhverfislegum
þáttum, öllum til heilla.
Það skal þó tekið fram að engin tvö
bænahús eru nákvæmlega eins.
Það væri of langt mál að lýsa nánar
aðferðafræði staðbundins bænahúss. Ég
keypti hins vegar fræðsluseríu um það
hvernig koma má slíkum bænahúsum á
laggirnar.
Að iokum langar mig að segja ykkur
frá fundi okkar Daphne Goodwin. Þegar
hún heyrði að ég væri frá íslandi varð hún
mjög spennt og sagði mér að hún hefði
sérstakt hjarta fyrir landinu. Það sem olli
því var að hún hafði tekið þátt í alþjóðlegri
ráðstefnu um staðbundin bænahús. í lok
ráðstefnunnar voru settir upp þjóðfánar
landa og fólk beðið um að stilla sér fyrir
framan þá til að biðja fyrir landinu. Þegar
hún ætlaði að stilla sér upp undir fána
Wales voru þar fyrir fjórar manneskjur.
Hún litaðist því um og sá að undir íslenska
fánanum var enginn. Hún tók sér því stöðu
þar og síðan þá hefur landið okkar verið
á bænalistanum hennar. Þess má geta að
hún og vinkona hennar komu í heimsókn
hingað til lands sumarið 2016, án þess
þó að þekkja neinn hérna. Daphne kynnti
mig svo fyrir konu sem hefur það verkefni
að aðstoða við að setja á stofn bænahús
bæði í Englandi og erlendis. Báðar lýstu
þær miklum áhuga á að koma til íslands
í þeim tilgangi að aðstoða fslendinga við
slíkt verkefni.
Hlegid í
LiiHlakirkjjii
Mynd: Sr. Guðmundur Karl
Starfið í mörgum söfnuðum er fjöl-
breyttara en margir gera sér grein fyrir
og nýjungar koma oft fram. Sem dæmi
um slíkt er hláturnámskeið, sem verið
hefur í vetur, í Lindakirkju öllum opið á
þriðjudögum kl. 13:00. Þarna er mikið
hlegið en jafnframt slakað á og ýmis
fræðsla veitt um áhrif hláturs á líkamlega
og andlega heilsu. Þau eru meiri en
mörgum er kunnugt. Þetta starf leiðir
Þórdís Sigurðardóttir markþjálfi og
hláturþjálfi en henni til aðstoðar er sr. Dís
Gylfadóttir.
Þetta starf tengist ekki jóga enda
hláturinn ekki indversk uppfinning. Hver
tími hefst með guðsorði og bæn og lýkur
á líkan hátt. Aðsókn hefur verið góð og
margir þakklátir fyrir þetta tækifæri til
að lífga upp á tilveruna og læra ýmislegt
gagnlegt.
bjarmi | apríl 2018 | 33