Bjarmi - 01.04.2018, Blaðsíða 38
NÁTTÚRULEG SAFNAÐARUPPBYGGING:
Ráðsteína og
kyrniingarJagiir
VIGFÚS INGVAR INGVARSSON
Náttúruleg safnaðaruppbygging er að slíta
barnsskónum hérlendis enda starfsemi á
þessu sviði hér á landi frá árinu 2012. Þá
er átt við safnaðarkannanir og leiðbeiningar
við að efla grósku í safnaðarlífi út frá
aðstæðum í hverjum söfnuði.
Náttúruleg safnaðaruppbygging vinnur
að heilbrigði safnaða með könnunum á
stöðu átta gæðamarka - sem könnun leiðir
í Ijós - og ráðgjöf og aðstoð við að fjarlægja
hindranir fyrir þeirri grósku sem Guð vill
gefa.
Náttúruleg safnaðaruppbygging byggir
á rannsóknum á þúsundum safnaða víða
um heim af ýmsum kirkjudeildum og í
margvíslegu menningarlegu samhengi.
Hún leggur áherslu á heilbrigði safnaða
fremur en tölulegan vöxt. Hún tekur mið
af líkingum Jesú um vöxt í ríki náttúrunnar.
Bóndinn sáir og vökvar en hann reynir
ekki að knýja fram vöxt með því að toga
í kornöxin. Ekki er almennt vænst aukins
vinnuframlags leiðtoga safnaða en að
kröftum sé í meira mæli beint að þeim
verkefnum sem mestum ávexti skila.
Samtök náttúrulegrar safnaðarupp-
byggingar á íslandi - NSU, stofnuð árið
2011 - hafa notið tengsla við Noreg sem
eins konar deild í norsku samtökunum,
Naturlig Menighetsutvikling (NaMu),
sem eru með mikla reynslu og fólk úr
ýmsum kirkjudeildum. Framkvæmda-
stjórinn nú, Kjetil Sigerseth, er jafnframt
framkvæmdastjóri dómkirkjusafnaðarins í
Molde.
RÁÐSTEFNA OG KYNNINGARDAGUR
Árleg ráðstefna/námskeið þessara sam-
taka verður hérlendis sumarið 2018,
dagana 5.-7. júní, fyrstu tvo dagana á
Hlíðardalsskóla í Ölfusi en fimmtudagurinn
7. júní verður kynningar- og fræðsludagur í
Lindakirkju í Kópavogi.
DAGSKRÁIN VERÐUR MEÐ ÞESSU
SNIÐI:
Opinn fræðsludagur (fyrir presta/forystufólk
í safnaðarstarfi og annað áhugafólk) kl.
09.45 - 16.00 með Christian A. Schwarz,
stofnanda og aðalleiðtoga Náttúrulegrar
safnaðaruppbyggingar (NSU, Natural
Church Development).
09:45 Móttaka og skráning
10:00 Innleiðsla með söng og
helgistund
10:30- 11:30 Náttúruleg
safnaðaruppbygging
(Christian A. Schwarz)
11:45-12:45 Reynsla úr söfnuðum
(Margaret Saue Marti)
- Reynsla úr norskum,
sænskum og íslenskum
söfnuðum
12:45-13:30 Hádegisverður
13:30-14:30 Þrír litir þjónustunnar
(náðargjafanna) (Christian
A. Schwarz)
- Kennsla og hópumræður
út frá bókinni: Þrír litir
þjónustunnar
14:45 Samhliða námskeið (hópar)
- Eflandi stjórnun
- (Heitt og) einlægt trúarlíf
- Hvernig komumst við af
stað?
15:45-16:00 Samantekt, hvatning og
mat (Kjetil Sigerseth).
38 | bjarmi | apríl 2018