Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.04.2018, Page 47

Bjarmi - 01.04.2018, Page 47
okkur frá fótum Jesú. Líf okkar snýst auðveldlega um það sem skiptir litlu eða engu máli. Ef við viljum vera heilsteypt þá er leiðin sú að rækta samfélagið við frelsara okkar. Ef samfélagið við Guð er ekki grunnur lífs okkar verður öll þjónusta okkar við hann ófullkomin og unnin á röngum forsendum. Við þurfum að taka frá tíma yfir daginn, vikulega og mánaðarlega til að vera í takti við skapara okkar og frelsara. Við þurfum að elska okkur sjálf á réttan hátt og elska Guð. Það mun síðan hafa áhrif á hjónaband okkar og fjölskyldutengsl og þjónustu okkar við Drottin. Til að þetta verði okkur mikilvægara þarf að hafa þessar sjö reglur hugfastar og nota þær í daglegu lífi okkar. LOKAORÐIN Lokahluti bókarinnar fjallar um það hvernig framhaldið getur orðið. Höfundur vísar þar í þá vinnu sem hann og hans fólk í New Life Fellowship Church hefur unnið til að komast nær því að verða tilfinningalega heilbrigður söfnuður. Eins er viðbót um lífsreglur starfsfólks kirkjunnar - um það að vera (bæn og hvíld) og síðan að starfa (verkefni og samskipti). Á heildina litið er þessi bók hvetjandi, vekjandi og ágeng. Eftir lesturinn spyr maður sig: Hvernig ætla ég að læra af þessu fyrir sjálfan mig, hjónaband mitt og fjölskyldutengsl og þátttöku mína í kristilegu starfi í framtíðinni? Höfundur er víðlesinn og nýtir sér visku aldanna og þekkta höfunda frá fyrstu öldum kristninnar, miðöldum og samtíð. Þó svo hér sé á margt minnst er full ástæða til að lesa bókina alla með opnum huga og í bæn til Drottins um að hann leiði okkur um réttan veg fyrir sakir nafns síns. Þá skal einnig bent á bókina Hver er ég? Níu persónuleikalýsingar enneagramms eftir Sigríði Hrönn Sigurðardóttur en hún er verkfæri til að líta inn á við og skoða hvað mótar hugsanir, orð og verk okkar og hvernig við getum vaxið í þroska og trú á Jesú Krist. Trúarlífssálmur Þú hefur myndað hér milljónir stjarna, megirþú vekja'í oss sindrandi trú. Þú ert sú vernd, Ijós og vörn þinna barna, værustu hvíldina einn gefurþú. Þökkfyrir dásemdardag, sem er liðinn, dýrmæta gjöf sem þú oss hefur rétt. Ranglega' efbreytt höfum,færþú oss friðinn, fyrirgef syndir, svo oss verði létt. Þökkfyrir gleði sem græddi vort hjarta, gæskuna þína sem hjálpaði mest. Ver þú oss Ijósið í voðanum svarta, veist aðeins þú einn hvað hæfir oss best. Þökkfyrir vini sem styrktu og studdu, stundum er gangan varð erfið og löng, fúsir þeir vonlausu vegina ruddu. Vísa oss leiðina’ um myrkranna göng. Þú hefur myndað hér milljónir stjarna, myrkrinu í heiminum bægðu oss frá. Þú ert sá vörður og verndari barna, veit oss þitt Ijós, svo að blind megum sjá. Þorgils Hlynur Þorbergsson, Þýtt 24. 02. 2018 úr dönsku. Lítillega lagfært 25. 02. 2018 og 24. 04. 2018. Sálminn orti Johannes Johansen 1981 og 1982 Lagið samdi Erik Sommer 1981. bjarmi | apríl 2018 | 47

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.