Morgunblaðið - 27.01.2022, Síða 60

Morgunblaðið - 27.01.2022, Síða 60
MIAMI lyftistóll Stillanlegur hægindastóll með tveimur öflugummótorum. Leður á slitflötum. Aðstoðar þig á fætur. Svartur, grár eða brúnn. Fullt verð: 259.900 kr. Aðeins 194.925 kr. 180 x 200 cm. Fullt verð: 299.900 kr. Aðeins 179.940 kr. LYON höfðagafl Fallegur höfðagafl í ljósgráu eða dökkgráu flaueli. BOSTONVIVA heilsurúm. Dýna, botn, fætur og gafl Heilsrúm frá Sealy. Botn, dýna og gafl eru klædd sama glæsilega Viva gráa áklæðinu. Svæðaskipt pokagormadýna auk mjúkrar, þægilegrar yfirdýnu sem styður vel við líkamann. Vandaður gormabotn gefur svo viðbótarfjöðrun. 40% AFSLÁTTUR 25% AFSLÁTTUR Stærð í cm Litur Fullt verð Útsöluverð 120 x 150 Grár/dökkgrár 68.900 kr. 55.120 kr. 140 x 150 Grár/dökkgrár 74.900 kr. 59.920 kr. 160 x 150 Grár/dökkgrár 79.900 kr. 63.920 kr. 180 x 150 Grár 84.900 kr. 67.920 kr. 200 x 150 Grár/dökkgrár 94.900 kr. 75.920 kr. 20% AFSLÁTTUR www.DORMA.is Verð og vöruupplýsingar eru birtar með fyrirvara um prentvillur. Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði Opið sunnudaga 13-17 á Smáratorgi Tengingar nefnist sýning á verkum Helgu Pálínu Brynj- ólfsdóttur sem opnuð verður í sýningarrými Hjarta Reykjavíkur, Laugavegi 12b, í dag milli kl. 17 og 20. Helga hefur um árabil „gert tilraunir með að sauma í kletta, litgæða grábrún blæbrigði móbergsins en líka spýtur, nýjar og gamlar“, eins og segir í tilkynningu, vindur og vefur, holar aftan og stingur framan til að laða fram skúlptúr, línur og form. Helga útskrifaðist úr textíldeild UIAH, Listiðnaðar- háskólans í Helsinki, árið 1988 og hafði áður lokið B.Ed.-prófi frá Kennaraháskóla Íslands. Frá árinu 1989 hefur hún kennt textílþrykk í hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands, við textíldeild Myndlistaskólans í Reykjavík og textíldeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands. Hún hefur tek- ið þátt í fjölmörg- um sýningum hér á landi og er- lendis. Tengingar í Hjarta Reykjavíkur FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 27. DAGUR ÁRSINS 2022 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Njarðvíkurkonur komust í gærkvöld á toppinn í úrvals- deild kvenna í körfuknattleik þegar þær sigruðu Grind- víkinga á útivelli í tvísýnum Suðurnesjaslag, 71:67. Njarðvík og Fjölnir eru jöfn að stigum í tveimur efstu sætum deildarinnar en mörg lið gera tilkall til toppsæt- anna á þessu keppnistímabili. »51 Njarðvíkurkonur komust á toppinn ÍÞRÓTTIR MENNING þegar litlu hafi munað að illa færi. Hann hafi verið á leið í sölutúr með 240 tonn af þorski þegar Apríl fékk á sig brotsjó um 90 mílur suðaustur af Vestmannaeyjum. „Ég hef aldrei séð annan eins brotsjó, þetta var svakalegur skafl, um 20 metrar og dauðans alvara, en ég var vel undirbúinn og vissi hvað þurfti að gera.“ Hann hafi verið kom- inn með skipið upp í ölduna, það hafi verið stopp, þegar hann hafi óvart sett stjórnstöngina í bakkgír og í því hafi faldurinn skollið á brimbrjótnum við ankerisspilið. „Krafturinn var svo mikill að brimbrjóturinn rifnaði upp og stóð upp í loftið eins og gormur, og skipið hentist fleiri, fleiri metra aftur á bak við höggið. Ef ég hefði siglt á móti skaflinum hefði stuðið orðið enn meira og jafnvel sópað brúnni af. Engu að síður titraði allt og skalf, rúður í brúnni brotnuðu, dekkið fyrir framan hana gaf sig og fór 15 senti- metra niður, radarinn fauk út í busk- ann og miklar skemmdir urðu á inn- réttingum, þar sem karlarnir voru. Sem betur fer slasaðist enginn, við héldum áfram og ég seldi fiskinn í Grimsby. Eftir stendur að litlu mun- aði að við dræpumst allir.“ Sjómannslífið átti vel við Svavar. „Það var svakalega erfitt að koma al- kominn í land 1984. Rosalega togaði sjórinn í mig.“ En hann fann fjölina á ný hjá Atlasi hf. í Hafnarfirði þar sem hann hefur unnið síðan, undan- farin ár í hlutastarfi. „Ég geng frá reikningum og svona,“ segir hann. „En helgin hjá mér byrjar á fimmtu- degi,“ bætir hann við og segist fyrst núna vera að jafna sig á skyndilegu fráfalli eiginkonunnar, Sonju Jó- hönnu Kristjánsdóttur, 2009. „Hún var einstaklega góð kona, en nú þríf ég af mér, strauja skyrturnar, pressa buxurnar og er farinn að malla ofan í mig. Ég fór frekar illa út úr þriðju sprautunni, var hálfrænulaus í tvo daga eftir að hafa ekki verið veikur í um 20 ár, en ætla til Kanarí fljótlega og vera fram að páskum.“ Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Rúmum mánuði fyrir jól var Svavar Benediktsson, fyrrverandi togara- skipstjóri, allt í einu kominn á tíræð- isaldur en hann segir það engu hafa breytt; hann haldi áfram í líkams- ræktinni, stundi sína vinnu, sjái um sig sjálfur, fari reglulega til Kanarí- eyja og láti áfengið eiga sig. „Aldur er bara tala,“ leggur hann áherslu á og ekki síður kærleikann. Veiruskrattinn er það eina sem Svavar óttast. „Ég þori ekki að fara í „gymmið“, er svo hræddur við að smitast, en geng úti klukkutíma á dag. Þegar menn eru orðnir níræðir verða þeir að hreyfa sig.“ Þegar Svavar var á níunda ári tók faðir hans, Benedikt Ögmundsson skipstjóri á gamla Maí, hann fyrst með sér út á sjó. „1939 var fjöl- skyldan allt sumarið í húsi sem hét Strýta, skammt frá Sólbakka í Ön- undarfirði, þar sem pabbi landaði karfa í bræðslu en hann var á veiðum á Halanum,“ rifjar Svavar upp. „Mér þótti gaman að vaða í sjónum og var alltaf blautur upp að mitti, en mamma var hrædd um að ég færi mér að voða svo karlinn tók mig um borð.“ Hann segist bara hafa verið með körlunum og þótt það gaman. „Ég þræddi í nálar fyrir þá. Lélegt garn var í trollinu og það var alltaf rifið, maður. Því var þetta stöðug netavinna.“ Hann útskrifaðist úr Stýrimanna- skólanum vorið 1953 og hélt áfram að vinna sig upp. „Þótt karlinn hann pabbi væri skipstjóri naut ég engra forréttinda hjá honum. Hann píndi mig áfram alveg hreint. Þegar ég kom alkominn í land sagði konan við mig: Svavar. Á 40 árum hefur þú ver- ið fjórum sinnum heima á jólunum. Málið er að ég var einn þeirra sem fóru alltaf út 16. desember til að ná fyrstu sölunni í Grimsby eftir jólin. Þá var verðið hæst.“ Rétt viðbrögð Hann lauk farsælum ferli á togar- anum Apríl og veiddi vel. „Frá vori fram á haust 1983 landaði ég full- fermi 17 sinnum í röð; við fórum aust- ur fyrir land og vorum allt niður í fjóra daga að fylla.“ Þetta ár var hann einn af aflahæstu skipstjór- unum, en minnist þess sérstaklega Iðinn við kolann - Svavar Benediktsson togaraskipstjóri á fullu á tíræðisaldri Morgunblaðið/Eggert Kraftur Svavari Benediktssyni fellur aldrei verk úr hendi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.