Morgunblaðið - 11.03.2022, Síða 12

Morgunblaðið - 11.03.2022, Síða 12
K ristín Pétursdóttir er grafískur hönnuður að mennt sem starfar á leikskóla á daginn. Hún nýtir hvert augnablik sem hún getur til að taka ljósmyndir, þegar hún er ekki með manni sínum, Youssef Mait- nate, og fimm ára syni þeirra, honum Pétri Amir Maitnate. Ljósmyndir Kristínar eru áhugaverðar fyrir margar sakir og er blaðamaður nokkuð viss um að djúpstæð upplifun snemma á lífsleiðinni geti gert fólk öðruvísi sjáandi í lífinu. „Ég hef allt frá því ég man eftir mér verið heilluð af fólki og umhverfinu í kringum það. Ég er mjög næm og hef gaman af því að lesa í aðstæður fólks, sem er eiginleiki sem ég hef til- einkað mér allt frá því ég man eftir mér. Ég er áhugaljósmyndari og tek ljósmyndir daglega af öllu því sem ég sé í umhverfinu sem heillar mig. Ég er kannski ekki með flóknasta ljósmyndabúnað landsins, en er með auga fyrir því sem mér finnst fallegt og svo geri ég ákveðnar kröfur þegar kemur að ljósmyndunum mínum.“ Ekki með bein í nefinu til að demba sér í harkið Kristín var lengi að ákveða hvað hún vildi læra á sínum tíma að eigin sögn og byrjaði í Kennaraháskólanum en hætti og fór að vinna á leikskóla við Tjörnina þar sem hún tengdist sterkum böndum. „Ég fór svo í fornámið í Myndlistaskóla Reykjavíkur og kynntist ljósmyndun þar svona af alvöru. Ég hafði reyndar mjög lengi haft áhuga á að taka myndir og eignaðist myndavél frekar ung. Síðar tók við listaháskólanám í grafískri hönnun þar sem ég skráði mig í alla mögulega ljósmyndaáfanga sem í boði voru. Ég útskrifaðist þaðan með BA-gráðu og bjartsýni en það var rétt fyrir hið fræga hrun svo ekkert varð úr framtíðarplönum mínum að vinna við grafíska hönnun. Ætli ég hafi ekki verið frekar óframfærin og ekki með bein í nefinu til að demba mér í harkið í þessum heldur karllæga hönnunarheimi. Ég gat fengið vinnu á leikskólanum sem ég hafði unnið á og þar er ég enn og uni vel með börnunum í þessu frábæra umhverfi.“ „Ég hef allt frá því égman eftir mér verið heilluð af fólki“ Kristín Pétursdóttir hefur þann eiginleika að sjá töfrana á bak við hversdagsleikann. Þetta er eitthvað sem hún hefur gert frá því hún man eftir sér. Þegar hún tekur ljósmyndir af fermingarbörnum þá velur hún náttúruna og svo barnaherbergið sem henni finnst veita innsýn í veruleika fermingarbarnsins. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Kristín er áhugaljósmyndari sem á sér áhuga- verða sögu. Hún hefur allt frá því hún man eftir sér haft mikinn áhuga á fólki og umhverfi þess. 12 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MARS 2022 grísa- samloka Í dúnmjúku brauði með rifnum og reyktum svínabóg og japönsku majónesi. Fabrikkusmá- borgararnir slá í gegn í öllum veislum. 25 borgarar á hverjum bakka! 7 gómsætar tegundir í boði! F fer la WWW.FABRIKKAN.IS PANTANIR Í SÍMA575 7575 ÞÚ PANTAR ÞÚ SÆKIR erköntuð mingarveis - VIÐ GRILLUM - Kristín átti fallegt unglinga- herbergi sjálf en hún er forvitin um herbergi fermingabarna þar sem hún segir þau segja svo mikið um barnið sjálft. Kristín Pétursdóttir er graf- ískur hönnuður að mennt og er áhugaljósmyndari sem tekur ljósmyndir nær daglega á myndavélina sína. Ljósmyndir/Kristín Pétursdótti

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.