Morgunblaðið - 11.03.2022, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 11.03.2022, Blaðsíða 14
Ljósmyndarinn Kristín Péturs- dóttir tekur fallegar myndir af fermingarbörnum úti í náttúrunni. 14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MARS 2022 fabrikku- borgarinn Í dúnmjúku brauði með bræddum osti og Fabrikkusósu til hliðar. Fabrikkusmá- borgararnir slá í gegn í öllum veislum. 25 borgarar á hverjum bakka! 7 gómsætar tegundir í boði! WWW.FABRIKKAN.IS PANTANIR Í SÍMA575 7575 Ferköntuð fermingarveisla ÞÚ PANTAR - VIÐ GRILLUM - ÞÚ SÆKIR Stöðugt að leita að formum og áhugaverðum myndbyggingum Námið í grafískri hönnun nýtist Kristínu ljómandi vel, sem elskar að taka myndir og eru augu hennar stöðugt að leita að formum, litasamsetningum, myndbyggingum, áhugaverðu fólki og fyrirbærum til að mynda. „Þetta getur orðið að einskonar þráhyggju. Ég birti frekar mikið af myndum á Instagram og verð mjög glöð ef það er haft samband við mig og ég fæ tækifæri til að taka að mér skemmtileg verkefni. Ég hef nýtt tækifærið og tekið myndir á merkilegum dögum í minni fjölskyldu, meðal annars á ferm- ingardag Maríu Hrafnsdóttur, frænku minnar. Við fórum í Hljómskálagarðinn síðsumars þegar það var frekar ein- kennileg en áhugaverð birta. Mér fannst tilvalið að fara í Hljómskálagarðinn því ég vissi að ég gæti tekið fjölbreyttar og lifandi myndir þar í fallegu umhverfi. Það var mjög auðvelt að mynda Maríu. Við höfum alltaf náð vel saman. Við elskum til dæmis báðar Harry Styles, sem okk- ur finnst bestur!“ Þegar Kristín hefur myndað fermingarbörn og fólk almennt hefur henni þótt mikilvægast að skapa þægilegt andrúmsloft með rými fyrir þau til að blómstra og vera óhrædd við að vera þau sjálf. „Mér finnst mikilvægt að gefa mér nægan tíma til að setja ekki óþarfa pressu á þau. Svo verður alltaf að hafa gaman. Mér finnst líka mikilvægt að velja staðsetningu sem býður upp á fjölbreytileika.“ Tekur ljósmyndir inni í unglingaherberginu Kristín hefur sérstaklega gaman af unglingaherbergjum. „Þau eru bara eitthvað svo mikill spegill á krakkana sjálfa. Mér finnst þau svo persónuleg, töff og falleg. Herbergið er svo mikill partur af okkur á þessum árum.“ Kristín talar um unglingsárin af mikilli innlifun og hefur hún kafað dýpra en margir gera sem vinna með þennan ald- urshóp. „Ég horfi á allar vel skrifaðar sjónvarpsseríur fyrir þennan markhóp. Mér finnst það hjálpa mér að skilja þau betur. Þegar ég var sjálf unglingur, þá mátti ég ekki hengja plag- göt upp á veggina, því mömmu fannst það ekki nógu smekk- legt. Nema svo fékk ég grænt ljós á að hengja plaggat á hurð- ina. Mamma gerði ráð fyrir því að ég myndi setja upp eitt smart plaggat, en það sem ég gerði var að ég þakti hurðina af myndum af draumaprinsi mínum á þeim tíma sem var Leon- ardo DiCaprio. Ég tók þetta leyfi alla leið. Ég held að í öllum herbergjum sem ég hef myndað hafi verið samsafn af ein- hverjum hugmyndum barnsins um lífið og tilveru þess. Þessi innri tjáning sem endar svo á veggjunum. Ég er svo glöð að almennt fái unglingar að tjá sig á veggjunum heima hjá sér.“ Þykir vænst um listræna ljósmynd frá hennar eigin ferm- ingu Hvernig var þinn fermingardagur? „Mín fermingarmyndataka var í ljósmyndaveri, en sjálfri finnst mér skemmtilegast að vinna úti með krökkunum. Mamma saumaði á mig kjól eftir minni uppskrift sem var með einstaklega fallegum bakhluta. Mér þótti svo vænt um að ljós- myndarinn tók mynd af bakinu á mér og gaf okkur þá mynd aukalega. Þessi mynd hefur haft þau áhrif á mig að mér finnst gaman að taka listrænar myndir á hreyfingu eða úr fókus. Ég var með spangir þegar ég fermdist og brosti því ekki á neinni mynd. Ég hef myndað stúlku með spangir og fékk hana til að brosa – sem mér þótti ein besta myndin.“ Hvernig velurðu svo myndirnar? „Ég er þannig að ég vinn margar myndir og klára þær allar áður en ég sendi þær frá mér. Fermingarbarnið sjálft velur oftast einföldustu myndirnar, foreldrarnir eru svo með aðeins annan smekk og svo er ég fyrir þessar listrænu myndir, sem ég held að okkur þykir vænst um seinna meir.“ Myndirnar hennar Kristínar fanga augnablikið á einstakan hátt. Þessa mynd tók hún af Maríu Hrafnsdóttur frænku sinni í Hljómskálagarðinum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.