Morgunblaðið - 11.03.2022, Side 36

Morgunblaðið - 11.03.2022, Side 36
Litlar pavlovur slá alltaf í gegn í veislum. Litlir réttir vinsælir á veisluborðið Hanna er á því að fallegt leirtau skipti máli á veislu- borðið en sjálf velur hún leirtau sem er stílhreint og ein- falt og tekur ekki athyglina frá kræsingunum. Hún er á því að litlir réttir á veisluborðið séu viðeigandi nú sem fyrr og mælir með smáum pavlovukökum í ferminguna ásamt fleiri góðum réttum. „Pavlovur eru mjög hentugar í veisluna þar sem auðvelt er að grípa eina og eina. Botn- ana má gera nokkrum dögum áður og hægt er að und- irbúa fyllinguna fyrr um daginn eða jafnvel daginn áður. Þá á bara eftir að sprauta á hverja köku og skella einu beri ofan á hverja þeirra.“ Hönnu finnst veisluhald al- mennt skemmtilegt. „Yfirleitt er mesti hausverkurinn að ákveða boðslistann en þegar hann er kominn þá er bara gaman að spá í matinn og skipuleggja. Stundum finnst mér undirbúningurinn ekki síður skemmtilegur og þá sértaklega þegar fólkið í kringum okkur er boðið og búið að aðstoða og vera með – það er góð samvera og gaman.“ Búin að halda fermingarveislur fyrir öll börnin Hvað er sniðugt að bjóða upp á í veislum á þessu ári? „Himneskar halloumibollur eru upplagðar fyrir þá sem kjósa frekar grænmetisfæði. Þær má útbúa snemma morguns og velgja síðan í ofninum rétt áður en þær eru bornar fram. Eins get ég mælt með þristasörum, sem eru alltaf mjög góðar og vinsælar. Þær geymast vel í kæli eða frysti og því hægt að búa þær til mörgum dög- um fyrr. Barnvænn kjúklingaréttur er eins alltaf vinsæll. Hann hefur fylgt mér í nær 30 ár og er í miklu uppáhaldi hjá börnunum mínum. Þessi réttur var á borðum í ferming- arveislunni hjá elstu dóttur minni. Rétturinn er ekki bara barnvænn heldur er hann góður og ekki spillir fyrir að hann má undirbúa daginn áður og þá á bara eftir að setja hann í ofninn í 20 mínútur. Marineruð lambaspjót eru alltaf vinsæl í veislum, þau eru grilluð fyrst og síðan sett í marineringu. Þetta er hægt að gera fyrr um daginn og láta síðan spjótin liggja í marineringu við stofuhita. H anna Þóra G. Thordarson, viðskiptafræð- ingur og framhaldsskólakennari, er á því að allir geti útbúið glæsilegar veislur og bakað eitthvað gott ef skipulagið er í lagi fyrir veisluna. Hún útbjó sjálf fermingarveislur allra barnanna sinna fjögurra sem hún gerði eftir smekk hvers og eins. Hanna hefur náð að tengja mataráhuga sinn vinnunni þar sem hún rekur Gallerí Hólshraun og vinnustofu í Hafnafirði. Eitt af því sem vanalega slær í gegn hjá Hönnu eru bleiku bragðgóðu prinsessukökurnar hennar en það er fleira sem hún kann að gera alveg ein- staklega vel. „Þegar ég var lítil bjó ég með móður minni í Svíþjóð en hún tileinkaði sér sænska matargerð. Margar sænskar uppskriftir fylgdu okkur heim til Íslands og er prinsessutertan ein af þeim. Börnin mín hafa alist upp við þessa fallegu og góðu tertu og þeim finnst hún al- gjörlega ómissandi á veisluborðið. Þegar ég baka prins- essutertu sér Heba dóttir mín alltaf um að skreyta tert- una enda er hún miklu betri í því en ég. Ég mæli með að virkja börnin í eldhúsinu – það skilar sér seinna meir.“ Það má líka gera aðra útfærslu af þessum rétti og bjóða upp á snittur með marineruðu lambinu og rauðbeðu- pestói. Svo ekki sé minnst á kókosbollupavlovuna, sem er falleg, þægileg og einföld. Botninn má búa til einum til tveimur dögum áður en kakan er borin fram og þá á bara eftir að þeyta rjómann og skreyta með berjum.“ Hvert barna hennar hefur verið með séróskir um hvað ætti að vera á boðstólum í fermingunni. „Við fjölskyldan höfum alltaf gert allar veitingar sjálf nema þegar vinur okkar bjó til sushi fyrir sushidrottninguna Örnu Sólrúnu. Mér finnst skipta máli að hafa eitthvað matarkyns í veislu – ég vil síður að veislugestir þurfi að spá í kvöldmatinn á heimleiðinni – og þá er betra að hafa eitthvað ósætt á boðstólum. Í dag eru meiri sérþarfir og þess vegna eru kannski smáréttir góð útfærsla – bara svo allir finni eitt- hvað við sitt hæfi.“ Gott skipulag grunnurinn að góðri veislu Eru skreytingar mikilvægar og hverju mælir þú með því tengt? „Hérna einu sinni var ég ekki mikið að spá í skreytingar en sé nú betur og betur hvað það er stór hluti af góðri veislu. Ég hef meira gaman af einföldu skrauti. Ég hef geymt fallegar flöskur og nota þær til að skreyta með blómum í hér og þar. Mér finnst fallegt að nota lifandi blóm en í fermingarveislunum skreytti ég veisluborðið með blómalengjum sem tengdamóðir mín heklaði. Vinkona mín hefur svo alltaf séð um að búa til kerti fyrir hvert og eitt barn.“ Ef það er eitthvað sem Hanna kann betur en margur annar, þá er það kúnstin við að skipuleggja sig í aðdraganda fermingar. „Þegar á að halda veislu er mjög gott að vera skipulagður og eitt af því sem ég lærði af móður minni, þegar hún var að halda veislur eða að hjálpa mér í veisluhöldum, var skipulag. Þá skrifaði hún allt niður og teiknaði upp veisluborðið til að sjá hvernig þetta kæmi út. Þegar ex- celinn kom til sögunnar var öllu haldið til haga þar. Sem dæmi þá bý ég til aðgerðalista alveg viku fyrir veislu og set þar inn allt sem á að gera á hverjum degi eins og til dæmis innkaup og bakstur. Þá eru minni líkur á stressi og að eitthvað gleymist. Mér finnst gaman að sjá að Drífa elsta dóttir mín gerir þetta líka en á þeim bæ er þegar búið að halda afmælisveislur og skírnarveislur fyr- ir börnin tvö. Mamma kenndi mér líka annað; þegar verið er að velta fyrir sér hvað eigi að bjóða upp á í veislunum, þá er gott að hafa fjölbreytileika og vera til dæmis ekki með marg- ar tegundir af marenskökum. Frekar að bjóða upp á ólíkar tegundir af kökum eins og eplapæ, súkkulaðiköku og marensköku. Svo er líka gott að hafa í huga að velja frekar rétti sem hægt er að útbúa nokkru áður eða dag- inn áður en veislan er haldin. Þannig má forðast óþarfa stress og hafa bara gaman af undirbúningnum.“ Prinsessu- tertan er ómissandi á veisluborðið Hanna Þóra G. Thordarson er mikil áhuga- manneskja um matargerð. Hún hefur mikla hæfi- leika á sviði baksturs og kann að gera alls konar spennandi útfærslur af prinsessutertu. Þessi kaka er einstaklega falleg og líka mjög bragðgóð. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Hanna er áhugamann- eskja um matargerð. Hún er á því að allir geti útbú- ið glæsilegar veislur ef skipulag er gott. Himneskar halloumibollur eru grænmetisbollur með hallou- miosti og harissasósu. Kókosbollu- pavlovan er girnileg en einnig mjög fersk með létt- um rjóma, jarðarberjum og bláberjum. Það getur verið nauðsynlegt að bjóða upp á barnvænan kjúklingarétt í veislum svo gestirnir fari ekki svangir heim. Þristakossar og þristasörur eru fallegar smákökur sem bragðast einstaklega vel. Marineruð lambaspjót eru tilvalin í veisluna. Þau eru gerð þannig að fyrst er lamba- kjötið steikt og síðan er það sett í marineringu. Rauðbeðupestóið kemur skemmtilega á óvart. 5 SJÁ SÍÐU 38 36 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MARS 2022 Fermingartilboð ÍSLENSK HÖNNUN

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.