Morgunblaðið - 11.03.2022, Page 38

Morgunblaðið - 11.03.2022, Page 38
Forvinna Stundum er gott að baka svampbotnana einum til tveimur dögum áður en kakan er sett saman. Kakan er sett saman daginn áður en hún er skreytt þar sem kremið þarf að ná að stífna. Gott er að setja hjúpmarsípanið á kökuna samdægurs eða daginn áður en hún er borin fram. Ef þarf að lita marsípanið þá er gott að hafa dags fyrirvara á því og láta það jafna sig. Hráefni Oftast hef ég tertuna helm- ingi stærri – (sjá tölur í sviga). Botnar 5 egg (8) 1¾ dl sykur (rúmlega 2½ dl) 1 msk hveiti (1,5 msk) ¾ dl kartöflumjöl (rúmlega 1 dl) Krem 3 dl matreiðslurjómi (4½ dl) 2 eggjarauður (3) 1 msk sykur (1,5 msk) 2 tsk kartöflumjöl eða maizenamjöl (3 tsk) 2 blöð matarlím (3) 2 dl rjómi – þeyttur (3 dl) 2 tsk vanillusykur (3 tsk) Skreyting Þeyttur rjómi 300-350 g (500-600 g) hjúp- marsípan (það fæst til dæmis í Fjarðarkaupum bæði litað og ólitað). Stærsti hlutinn á að vera grænn en ég lita alltaf smá hluta bleikan til að skreyta með. Ef þarf að lita marsípanið er betra að gera það daginn áður – setja það í plast- poka og láta jafna sig í kæli yfir nótt. Flórsykur Botnar 1. Hita ofninn í 190°C á yfir- og und- irhita (eða 180°C á blæstri). 2. Þeyta saman egg og sykur þar til blandan verður létt og ljós. 3. Blanda saman hveiti og kartöflu- mjöli (sigta saman). Blanda varlega með sleikju – betra að sigta hluta í einu ofan í eggjaþeytuna, þá bland- ast það betur við hana. Blanda var- lega saman með sleikju. 4. Sett í 20 cm form (24 cm) – smurð- ur smjörpappír settur í botninn – ekki smyrja hliðarnar. 5. Baka í 30 mínútur – passa að brenni ekki (gott að setja álpappír yfir ef yfirborðið er orðið of dökkt). 6. Láta kólna í forminu – skorið í tvo botna (má líka baka í tveimur formum en þá er betra að baka báða botnana í einu á blæstri). Ágætt að láta botnana kólna í ofninum svo þeir falli síður. Krem 7. Setja matarlím í kalt vatn og láta liggja í 5 mínútur. 8. Blanda saman matreiðslurjóma, eggjarauðum, sykri og maizenamjöli í potti og láta hitna – ekki of hratt og hræra stöðugt. Mikilvægt að láta ekki sjóða til að forðast kekki. 9. Þegar kremið hefur þykknað er matarlímið látið ofan í (tekið upp úr vatninu og kreist) – hrært rólega. 10. Kremið látið kólna – má ekki stífna. Gott að hræra í reglulega. 11. Rjómi þeyttur ásamt vanillu- sykri. Þegar kremið er orðið nægi- lega kalt er rjómanum blandað sam- an við með sleikju. Samsetning 12. Gott að setja neðri svampbotn- inn í smelluformið sem hann var bakaður í. Allt kremið sett ofan á – ágætt að láta stífna aðeins (ekki nauðsynlegt). Þá er hinn svamp- botninn settur ofan á. Best að láta kökuna standa í kæli yfir nótt (setja plastpoka yfir). Skreyting 13. Þeyta rjóma og smyrja honum ofan á kökuna og aðeins á hliðarnar. Hafa vel af rjóma efst á brúnunum. 14. Fletja út hjúpmarsípanið (getur verið púl) – gott að gera það á bök- unarpappír með flórsykri yfir. Mæla hæðina á tertunni – tvöfalda þá tölu og bæta þvermálinu við 20 cm (24 cm). Fletja marsípanið þannig út að það nái að hylja alla tertuna. 15. Hjúpurinn lagður yfir tertuna og skorið frá við botninn. 16. Í lokin eru búnar til rósir eða snæri úr afganginum til að skreyta með. 17. Kakan er geymd í kæli áður en hún er borin fram. Athugið að setja ekki plastfilmu yfir hana. Kakan þolir vel að standa skreytt í kæli yfir nótt án þess að skemmast. Útfærslur Í Svíþjóð eru til nokkrar útfærslur af þessari tertu. Oft er sett sulta á neðri botninn og á það vel við. Stundum eru sett nokkur fersk hind- ber í kremið eða rjómann en þá er sultunni sleppt. Enn ein útgáfan er þannig að kremið og rjóminn eru höfð aðskilin. Þá er kremið sett á annan hvorn botninn og síðan rjóminn á milli og ofan á. Sulta eftir smekk. Geymsla Kakan geymist í nokkra daga í kæli en er að sjálfsögðu best ný. Prinsesssuterta Upprunalegur litur prins- essutertunnar er grænn með ljósbleiku skrauti. Hægt er að gera prins- essutertuna á margan hátt. Hún er einnig falleg þegar hún er gerð bleik með grænu skrauti. Prinsessutertan er í uppáhaldi hjá fjölskyldu Hönnu. Upp- skriftin er úr bók sem gefin var út í Svíþjóð fyrir 40 árum. 38 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MARS 2022 Fermingarmöppur og gestabækur Við bjóðum upp á áletrun á nafni og dagsetningu við Reykjalund | 270 Mosfellsbæ Sími 562 8500 | www.mulalundur.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.