Morgunblaðið - 11.03.2022, Síða 66

Morgunblaðið - 11.03.2022, Síða 66
66 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MARS 2022 Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | VersluninBelladonna Netverslun á www.belladonna.is Fæst í netverslun belladonna.is Við eigum frábært úrval af flottum kjólum sem passa við öll tækifæri I nga Reynisdóttir fasteignasali hélt fallega veislu fyrir Söru Lind dóttur þeirra Ólafs Tryggvasonar akkúrat á þeim tíma þegar 50 manns máttu koma saman í fyrra. Þau Inga og Ólafur eiga marga góða vini og fjölskyldu, svo það reyndist erfitt að halda gestunum innan ákveðins fjölda, þótt það hafi tekist á endanum. Þau eiga fjögur börn saman- lagt, en Sara Lind fermdist 13. mars í fyrra, og er yngsta barn þeirra hjóna sem fermist. „Veislan var yndisleg í fallegum sal í Áskirkju. Veðrið lék við okkur og tókst allt vel þrátt fyrir ástandið í fyrra. Við vorum mjög heppin og náðum að halda veisluna á milli strangra reglna. Undirbúningurinn litaðist af ástandinu, en við reyndum að gera fermingardaginn eins gleðilegan og eftirminnilegan fyrir dóttur okkar og hægt var. Í raun fór mesti tíminn í að finna rétta kjólinn og skó á Söru Lind.“ Voru með ljósmyndirnar tilbúnar fyrir veisluna Ákveðið var að taka fermingarmyndirnar áður en veislan var haldin til að minnka allt stress á fermingardaginn sjálfan. „Ljós- myndatakan var daginn sem hún fór í prufu- greiðsluna sem gerð var á Solid hári. Við rétt náðum smá glugga í afléttingum þegar bjóða mátti 50 manns. Helgina á eftir var hámark þeirra sem saman máttu koma 20 manns þannig að við rétt sluppum að því leyt- inu til. Það var mjög erfitt að velja og hafna hverjum átti að bjóða. Ég útbjó excel-skjal með nöfnum gestanna. Þeir sem voru búnir að fá kórónuveiruna töldust ekki með í gestafjöld- anum, það sama var upp á ten- ingnum með börn undir tólf ára aldri. Þetta var flókið en svo þess virði að leggja aðeins tíma í boðslistann,“ segir Inga. Fermingarbarnið hafði ákveðnar skoðanir á veislunni. „Sara Lind vildi hafa salinn í fallegum fjólu- bláum lit í bland við silfraðan, sem kom mjög vel út að mínu mati. Ég er hrifin af því að hafa hringborð í veislum því þá skapast svo skemmtileg stemning þar sem fólk nær betur að tala saman en ella.“ Afslappað umhverfi í myndatökunni Inga er alltaf glæsileg til fara og gerði sitthvað fyrir sig fyrir fermingu dóttur sinn- ar. Meðal annars fékk hún sér nýtt pils, nýja eyrnalokka og svo lét hún setja huggulegar strípur í hárið. Var ekki mikil stemning í ljósmyndatökunni? „Jú, en mamman kveið held ég mest fyrir henni! Sem betur fer vor- um við með frábæran ljósmyndara, hana Kristínu Þorgeirsdóttur hjá Krissý Ljós- myndastúdíói, sem gerði myndatökuna svo skemmtilega og frjálslega. Öllum leið vel hjá henni en fermingarbarnið vildi hafa okkur öll með sér í myndatökunni. Vegna þess var mjög mikið stuð hjá okkur og eftir á að hyggja er ég mjög svo þakklát fyrir mynd- irnar. Ég get hiklaust mælt með Kristínu í fermingarmyndatökuna.“ Gerðu alla uppáhaldsrétti fermingarbarnsins Hvernig veitingar voruð þið með í veisl- unni? „Við bæði pöntuðum mat og gerðum sjálf veislurétti, sem mér finnst góð blanda fyrir þá sem vilja létta vinnuna í veislunni. Sara Lind vildi hafa sushi, þannig að það var að sjálfsögðu pantað. Pabbi hennar gerði sína góðu rétti og svo gerði ég nokkrar kök- ur sem Sara Lind heldur mikið upp á og bað mig að gera fyrir sig.“ Inga telur nokkuð víst að nú þegar fólk getur haldið stærri veislur sé mikilvægt að hafa nóg af veitingum og að gera ráð fyrir því að fólk sitji lengur en vani er, til að tala saman. „Svo er alltaf gott að hafa eitthvað skemmtilegt að gera. Ljós- myndarinn hafði prentað út allar myndirnar úr myndatökunni í venjulegri stærð og við dreifðum þeim á borðin. Við það skapaðist skemmtileg umræða og flakk á milli borða þegar fólk var að skoða myndirnar. Svo máttu gestirnir eiga þær myndir sem þeir vildu,“ segir Inga. Dóttir Ingu Reynisdóttur, Sara Lind, fermdist í fyrra. Öll fjöl- skyldan fór í myndatöku og var ljósmyndum komið fyrir á borðum veislugesta, sem skapaði skemmtilega stemn- ingu og ráp á milli borða. Elínrós Líndal elinros@mbl.is Ljósmyndir/Kristín Þorgeirsdóttir Við vorummjög heppin og náðum að halda veisluna á milli strangra reglna. Undirbún- ingurinn litaðist af ástandinu, en við reyndum að gera fermingardaginn eins gleðilegan og eftirminnilegan fyrir dóttur okkar og hægt var. Sara Lind vildi hafa alla fjölskylduna með sér í ljósmyndatökunni. Á mynd- inni eru þau Inga Reynisdóttir og Ólaf- ur Tryggvason ásamt börnum sínum. Dóttir Ingu Reynis- dóttur, Sara Lind, fermdist í fyrra. Ljósmynd- irnar sköpuðu skemmtilega stemningu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.