Morgunblaðið - 11.03.2022, Side 68

Morgunblaðið - 11.03.2022, Side 68
I an Arthur er ári á undan í skóla og því að fermast 13 ára. Hann er í Foldaskóla og kann vel við sig þar. „Mér finnst gaman í skólanum en einnig að hitta vin- ina í félagsmiðstöðinni okkar. Svo elska ég góðar kvik- myndir og að fara í bíó. Ég vil finna mér vinnu í sumar, nota fríið vel og vera dug- legur að vinna mér inn laun,“ segir Ian sem ætlar sér að verða lögfræðingur og viðskiptamaður í framtíðinni. Hann er þeim stóra kosti gæddur að elska íslenskan vet- ur og því hefur fermingarundirbúningurinn að hans mati verið bara skemmtilegur. Sérstaklega þegar hann kemst á skíði á milli skóla og annarra skyldustunda. „Já, ég vil geta farið á skíði og á nýja snjóbrettið mitt sem ég er alltaf að æfa mig að ná að verða flinkur á.“ Mamman hefur gert mest en ber allt undir ferming- arbarnið Ian mun fermast í Grafarvogskirkju um páskana eins og komið hefur fram og verður veisla síðan haldin heima hjá honum til að halda upp á ferminguna. Hvernig hefur undirbúningurinn gengið? „Mamma hefur gert mest, en hún spyr mig alltaf að því hvað það er sem ég vil. Hvað mér finnst flott og hvernig ég vil hafa allt sem viðkemur fermingunni. Það er fínt af því að þá er þetta eins og ég vil hafa það.“ Ian spáir mikið í fötum og tísku almennt. „Ég vil vera fínn en samt í þægilegum fötum og ekki of karlalegur. Ég er búin að finna buxur og skyrtu en á eftir að finna rétta jakkann.“ Hvaða gjafir óskarðu þér að fá í fermingargjöf? „Ég er ekki mikið að spá í það en finnst alltaf gott að fá bara pening svo ég geti keypt það sem mig langar í, það sem mig vantar eða eitthvað sem kostar mikið og ég get safnað mér fyrir.“ Ætlar að passa upp á börnin í veislunni Ian á eldri systur sem heitir Ella Margrét, hún fermdist fyrir einu og hálfu ári. „Það er frekar stutt síð- an Ella fermdist svo hún er búin að vera að hjálpa mér að velja ýmislegt sem viðkemur útliti veislunnar svo dæmi séu tekin. Hún er mjög góð í því. Ella elskar líka að tala og að halda ræður. Hún var sem dæmi nýverið á Barnaþinginu þar sem hún talaði við forsætisráherra. Hún vil örugglega halda ræðu í fermingunni minni,“ segir Ian. Ásta Valdís Borgfjörð, klæðskeri og flugfreyja, ætlar að ferma son sinn Ian Arthur um páskana og bjóða upp á opið hús þar sem girni- legar kökur verða á veisluborðinu. Enda veit hún ekkert betra en góðar girnilegar kökur og tekur undir með Marie Antoinette sem spyr hvers vegna mat ef tertur eru í boði? Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Ásta Valdís, Ian Arthur og Ella Margrét eru spennt fyrir fermingu Ians um páskana. 68 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MARS 2022 S IGN | FORNUBÚÐIR 1 2 , HAFNARF IRÐ I | S : 5 5 5 0800 | S IGN@S IGN . I S | S IGN . I S Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Hvers vegnamat ef tertur eru í boði? Ian spáir í fatnað og tískuna en hefur engan áhuga á að vera karlalegur til fara á fermingardaginn. Annars finnst þeim hund- leiðinlegt í veislum og þá truflast eldri systkini og foreldrar, þess vegna ætla ég að setja upp svona alls konar leiki og dót fyrir yngri krakkana.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.