Morgunblaðið - 11.03.2022, Síða 69

Morgunblaðið - 11.03.2022, Síða 69
Þegar kemur að skemmtunum í veislunni þá er hann á því að það sé mjög gott að hafa leikaðstöðu fyrir krakka. „Annars finnst þeim hundleiðinlegt í veislum og þá trufl- ast eldri systkini og foreldrar, þess vegna ætla ég að setja upp svona alls konar leiki og dót fyrir yngri krakkana.“ Ætlar að hafa opið hús á fermingardaginn Ásta Valdís Borgfjörð er vön fermingarundirbúningi og segir hann hafa gengið prýðilega. „Þegar ég þorði að fara af stað í undirbúningnum, þá hefur vel tekist til. Hún Ella mín fermdist árið 2020. Hún átti að fermast um páskana en samkomutakmarkanir, lokanir og frestanir á ferm- ingardögum ollu því að hún endaði á að fermast í lok ágúst. Vegna þessarar reynslu vildi ég ekki hella mér í undirbúninginn af krafti fyrr en það væri alveg á hreinu að ferma mætti drenginn á tilsettum tíma án nokkurrar hættu á að nýjum dagsetningum, svo ég hélt að mér höndum með að fara af stað, gera og græja, panta allt saman þar til ég var viss um að engar takmarkanir eða lokanir myndu eiga sér stað. En aftur þá var ég svo nýbúin að ferma, sem þýðir að ég var með allt saman enn ferkst í minni og þurfti því næst- um bara að ýta á „reload“-takkann. Ella mín hefur mikið verið að hjálpa mér og að sannfæra fermingardrenginn um hvað er fallegast og flottast. Sem dæmi þegar kemur að servéttum og kortum sem hún hefur fundið sjálf á netinu alla leið fyrir austan hjá Héraðsprenti á Egilsstöðum. Hún fann þetta fyrir sína fermingu og fannst þetta það flottasta og að Ian ætti að fá eins og hún gerði.“ Ásta er þekkt fyrir að gera góðar veislur og verður fermingin hans Ians engin undantekning á því. „Mikilvægast er að allir hafi gaman af og öllum líði vel. Að andrúmsloftið sé afslappað og þægilegt. Þess vegna verður opið hús, sem mér finnst svo sniðugt fyrirkomulag. Ég fékk þessa hugmynd að láni frá Hjördísi vinkonu minni sem hafði þennan háttinn á þegar hún fermdi miðjubarnið sitt hana Uglu. Með þessum hætti komast allir þegar þeim hent- ar. Við erum svo önnum kafin í nútímaþjóð- félaginu, sumir eru kannski að fara í tvær eða fleiri ferming- arveislur sama daginn, eða það er íþróttaviðburður hjá börnunum, afmæli eða hvað eina,“ segir Ásta. Ertu búin að ákveða með matinn og hvað er ómissandi tengt fermingu barnanna? „Það verður tertuveisla. Ég elska tertur og ég elska að baka. Ég er nú bara svolítið sammála Marie Antoinette sem sagði: Af hverju að borða brauð ef þú getur fengið þér brioche? Sem lauslega gæti þýðst: Hvers vegna matur ef tertur eru í boði? Það sem mér finnst ómissandi á fermingarborðið er okkar norræna kransatertan, fal- lega skreytt með styttu á toppnum. Hún er svo táknræn fyrir þessa fallegu fermingarstund, hana baka ég ekki en læt Björnsbakarí sjá um að gera hana fullkomna. En ég baka aðra kransaköku sem er meira fyrir yngri kynslóð- ina, það er Rice Krispies-kransakaka, sem ég sá fyrst í fermingu hjá vinkonu minni þegar hún fermdi elsta drenginn sinn og fékk ég uppskriftina hjá henni. Það var fyrsta fermingin hans Ians, en þá var hann að- eins nokkurra vikna gamall. Uppáhaldssparitertan mín, sem ég baka auðvitað sjálf, er Red Velvet tetra, hún er svo ljúffeng, dásamlega falleg og ofur góð. Ómissandi á kaffiborðið er auðvitað líka mar- engs-kaka, en allir elska marengs.“ Ásta er gamaldags þegar kemur að undirbúningi að veislum að eigin sögn. „Ég byrja að punkta allt niður til minnis. Hvað þarf að kaupa, panta, baka, fá lánað, pússa og strauja svo dæmi séu tekin. Síðan er mikilvægt að fara af stað með góðum fyrirvara.“ Skiptir ekki máli þótt eitthvað verði öðruvísi en planað var Í hverju ætlar fermingarmamman að vera? „Ég er svo heppin að í gegnum starf mitt sem klæð- skeri og kjólameistari þá á ég svo mikið af fallegri, ís- lenskri, klassískri hönnun, sérstaklega frá ELLA og Spaksmannsspjörum og einnig svolítið frá Steinunni. Ég trúi á að vanda valið við kaup á fatnaði, velja klassísk snið, góð efni, fallegan frágang, stílhreina hönnun, pass- andi „silúettu“ og það sem lætur manni líða vel í vegna vitneskju um að flíkin sé hönnuð, unnin og framleidd af fullorðnu fólki við mannsæmandi aðstæður. Ef við vönd- um okkur við val á fatnaðnum okkar þá erum við glæsileg til fara. Við eigum flíkurnar mun lengur og erum alltaf vel til höfð. Að kaupa endalaust nýtt og henda er ekki minn „tebolli“. Áttu gott ráð fyrir aðra foreldra sem eru að ferma á þessu ári? „Þetta er gleðistund, við erum að fagna fallegum ung- lingi að taka stórt skref inn í framtíðina sína og uppvöxt- inn með öllu okkar besta fólki. Veisla á að vera skemmti- leg og afslöppun, alls ekki stress. Það skiptir engu máli þótt eitthvað verði öðruvísi en upp var lagt með, það fatt- ar það enginn hvort sem er, og svo eru það mistökin sem eru oftast eftirminnilegust og skemmtilegust að hlæja að um ókomna tíð. Því langar mig að hvetja okkur sem erum að halda fermingar á þessu ári að njóta og fagna.“ Ásta Valdís fermdi Ellu dóttur sína fyrir einu og hálfu ári. Þá var boðið upp á girnilegar kökur, meðal annars þessar tvær fal- legu kransakökur sem gestirnir voru einstaklega ánægðir með. Ljósmynd/Pinterest Ásta Valdís ætlar að gera Red Velvet-köku fyrir veisluna hans Ians. FÖSTUDAGUR 11. MARS 2022 MORGUNBLAÐIÐ 69 Grandagarði 13 Glæsibæ, 5.hæð eyesland.is Titanflex eru vönduð gleraugu fyrir krakka á öllum aldri! Verð frá 27.900 kr. Er ferming framundan? Þú finnar vandaðar og góðar linsur hjá Eyesland. Skoðaðu úrvalið á eyesland.is Red Velvet- kökuna má skreyta á margan hátt. Ella var ánægð með ferm- inguna á sínum tíma.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.