Fréttablaðið - 07.05.2022, Blaðsíða 45
Málmblásturskennari
60 – 100 %
Tónlistarskóli Árnesinga óskar eftir að ráða til starfa
málmblásturskennara frá hausti 2022.
Kennt er samkvæmt Aðalnámskrá tónlistarskóla.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Tónlistarkennaramenntun og/eða kennslureynsla
• Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
• Samviskusamur, skapandi og skipulagður.
Upplýsingar gefa Helga Sighvatsdóttir skólastjóri í síma
861-9687 eða Jóhann I. Stefánsson aðstoðarskólastjóri
í síma 864-1235. Umsóknarfrestur er til 21. maí 2022.
Senda má fyrirspurnir og umsóknir í tölvupósti til
helga@tonar.is og joi@tonar.is.
Tónlistarskóli Árnesinga er einn af stærstu tónlistarskólum landsins með
starfsemi á 12 kennslustöðum í sýslunni. Fjöldi nemenda er um 560 og
um 40 kennarar starfa við skólann.
Allir áhugasamir einstaklingar eru hvattir til að sækja um.
Umsóknarfrestur er til og með 19. maí 2022.
Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein
fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda.
Sótt er um starfið á www.mognum.is og nánari upplýsingar veitir
Sigríður Ólafsdóttir hjá Mögnum, sigga@mognum.is.
Ábyrgð á daglegum rekstri og stjórnun samtakanna.
Skipulagning og verkefnastýring.
Stefnumótunarvinna.
Samskipti og samstarf við hagaðila (atvinnuþróunarfélög, sveitarfélög, opinberar
stofnanir og aðra hagaðila).
Önnur verkefni í samráði við stjórn.
Háskólapróf sem nýtist í starfi.
Leiðtogahæfni og færni til að hvetja aðra til árangurs.
Reynsla af stjórnun
Reynsla af rekstri æskileg.
Reynsla af mótun stefnu og innleiðingu hennar æskileg.
Þekking og reynsla af atvinnu-, menningar- og/eða byggðamálum æskileg.
Góð þekking og/eða reynsla af opinberri stjórnsýslu er æskileg.
Frumkvæði, drifkraftur og metnaður.
Lipurð og mikil færni í mannlegum samskiptum
Heiðarleiki og gott orðspor
Gott vald á tjáningu í ræðu og riti á íslensku
Starfssvið
Sjá nánar um hlutverk framkvæmdastjóra í 18. gr. samþykkta SSNE
Menntunar- og hæfniskröfur
SSNE eru landshlutasamtök sveitarfélaga á svæðinu frá Fjallabyggð að vestan að
Langanesbyggð að austan, að báðum sveitarfélögum meðtöldum. Markmið með
starfsemi félagsins er að efla Norðurland eystra sem eftirsótt svæði til búsetu og
atvinnu. Félagið skal vera sterkur bakhjarl aðildarsveitarfélaga í sameiginlegum
málum þeirra og stuðla að góðu mannlífi, lifandi menningarlífi og öflugri
atvinnustarfsemi á starfssvæðinu. SSNE er líflegur og kraftmikill vinnustaður í mikilli
sóknStarfsstöðvar félagsins eru á fjórum stöðum: Húsavík, Akureyri, Tröllaskaga og
Norður Þingeyjarsýslum. Starfið krefst reglulegrar viðveru í starfsstöðvum SSNE.
Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra, SSNE, óska eftir að ráða
drífandi einstakling í starf framkvæmdastjóra. Leitað er að dugmiklum einstaklingi í krefjandi
stjórnunar- og leiðtogastarf þar sem reynir á samskiptahæfni, frumkvæði og forystuhæfileika.
Um er að ræða spennandi starf sem gefur réttum aðila tækifæri til að vera leiðandi í
uppbyggingu og þróun á svæðinu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf eigi síðar en
1. september 2022. Ráðið er í starfið til fimm ára í senn.
FRAMKVÆMDASTJÓRI
Barnavernd Garðabæjar leitar að tveimur
fjölskyldum sem eru tilbúnar að taka á móti
börnum sem þurfa umönnun utan síns heimilis
í skemmri tíma.
Hlutverk vistforeldra er að veita börnum
móttöku, þar með talið í bráðatilvikum, til að
tryggja öryggi barnanna, greiða vanda þeirra
eða til könnunar á aðstæðum þeirra. Þegar
barn er í vistun utan heimilis er lögð áhersla á
að það stundi sinn heimaskóla, sæki tómstundir
og geti haldið vinatengslum. Því er kostur ef
fjölskyldurnar búa í Garðabæ.
Starfið er fjölbreytt og gefandi og unnið í nánu
samstarfi við starfsmenn barnaverndar-
þjónustu.
Umsóknarfrestur er til 22.05.2022.
Nánari upplýsingar eru á gardabaer.is
gardabaer.is
HEFUR ÞÚ ÁHUGA
Á AÐ GERAST
VISTFORELDRI?
Intellecta ehf. Síðumúla 5 108 Reykjavík 511 1225 intellecta.is
Intellecta er sjálfstætt þekkingarfyrirtæki stofnað árið 2000. Við vinnum með stjórnendum
við að auka árangur, bæta rekstur og efla stjórnun. Ráðgjafar Intellecta hafa sterkan faglegan
bakgrunn og víðtæka alþjóðlega reynslu. Þennan grunn notum við í samvinnu við viðskiptavini
til að móta hugmyndir sem skipta máli og í innleiðingu lausna sem skila árangri.
RÁÐNINGAR Starfsmenn eru lykill
að árangri allra fyrirtækja.