Fréttablaðið - 07.05.2022, Blaðsíða 87
kolbrunb@frettabladid.is
Tvær sýningar verða opnaðar í dag,
laugardaginn 7. maí, klukkan 15, í
Listasafninu á Akureyri: Nemenda-
sýning Myndlistaskólans á Akureyri,
Sjónmennt 2022, og útskriftarsýning
nemenda listnáms- og hönnunar-
brautar VMA, Spurningarmerki.
Sýningar á lokaverkefnum nem-
enda hafa lengi verið fastur liður í
starfsemi listnáms- og hönnunar-
brautar Verkmenntaskólans á Akur-
eyri. Sýningarnar eru tvær yfir árið,
annars vegar í lok vorannar og hins
vegar í lok haustannar. Þetta er átt-
unda árið í röð sem þær eru haldnar í
samstarfi við Listasafnið á Akur-
eyri. Að baki verkunum liggur hug-
mynda- og rannsóknarvinna og leita
nemendur víða fanga í eigin sköp-
unarferli, allt eftir því hvað hentar
hverri hugmynd og þeim miðli sem
unnið er með. ■
Lokaverkefni nemenda
Spurningarmerki koma við sögu á
Listasafninu á Akureyri. MYND/AÐSEND
kolbrunb@frettabladid.is
Tólf nýjar sýningar verða opnaðar
í Safnasafninu á Svalbarðsströnd í
dag, laugardaginn 7. maí. Þar á
meðal eru verk eftir fjölda listafólks,
meðal annars Óskar Magnússon og
Blómey Stefánsdóttur, Eddu Guð-
mundsdóttur, Elínu Sigríði Maríu
Ólafsdóttur Breiðfjörð Berg, Elínu
Fanneyju Ólafsdóttur, Guðrúnu
Bergsdóttur, Helgu Matthildi Við-
arsdóttur, Láru Lilju Gunnarsdótt-
ur og Sigrúnu Huld Hrafnsdóttur,
Eggert Magnússon, Hauk Halldórs-
son, Helga Valdimarsson, Ragnar
Bjarnason og Hjalta Skagfjörð Jós-
efsson.
Nemendur í Leikskólanum Álfa-
borg og Valsárskóla sýna verk sín.
Anna Richardsdóttir, Huglist, Gígja
Thoroddsen – Gía, Hildur Hákonar-
dóttir, Unnar Örn, Bjarki Bragason,
Rósa Sigrún Jónsdóttir, Magnhildur
Sigurðardóttir og Kristín Dýrfjörð.
Sýningin stendur til 11. septem-
ber, opið er daglega frá klukkan
10.00 til 17.00 ■
Sýningar í Safnasafninu
Þetta skemmti-
lega verk er á
sýningunni.
MYND/AÐSEND
kolbrunb@frettabladid.is
Álafosskórinn fagnar 40 ára afmæli
sínu með tónleikum í Guðríðar-
krikju, Grafarholti, í dag, laugar-
daginn 7. maí klukkan 15.00.
Kórinn var stofnaður árið 1980 af
starfsfólki Álafossverksmiðjanna í
Mosfellssveit. Allmargt fyrrverandi
starfsfólk er ennþá í kórnum en kór-
inn hefur alla tíð verið blandaður kór
með aðsetur í Mosfellsbæ og opinn
öllum þeim sem yndi hafa af söng
og ánægjulegri samveru. Kórinn
hefur ferðast víða bæði innan lands
og utan.
Kórfélagar flytja meðal annars lög
eftir fjóra kórstjóra sína, auk náins
vinar. Þeir eru Páll Helgason, fyrsti
kórstjórinn, Helgi R. Einarsson, sem
tekur nú lagið með kórnum, Magnús
Kjartansson tónlistarmaður, Ást-
valdur Traustason sem er núverandi
kórstjóri og Hans Þór Jensson, saxó-
fónleikari, sem spilar undir í nokkr-
um lögum, þar á meðal í sínu eigin
lagi sem kórinn flytur.
Auk saxófóns Hans, gítars Helga
og f lygils Ástvalds má búast við
að Ástvaldur grípi í harmónikuna
og Guðbjörg Leifsdóttir setjist við
flygilinn til að spila undir einsöng
eiginmanns síns, Óskars Sigurðs-
sonar, sem er kórfélagi.
Kórinn býður upp á afmæliskaffi
eftir tónleikana. ■
Afmælistónleikar Álafosskórsins
Álafosskórinn heldur tónleika í Grafarvogi. MYND/AÐSEND
LAUGARDAGUR 7. maí 2022 Menning 51