Fréttablaðið - 07.05.2022, Blaðsíða 32
„Þeir sem einu sinni hafa prófað
Boody geta ekki hætt og vilja
meira,“ segir Jónína Birna Björns-
dóttir, vörumerkjastjóri hjá
ÓJK-ÍSAM um Boody-fatalínuna
sem unnin er úr lífrænt ræktaðri
bambusbómull og hefur slegið í
gegn.
„Það er einstaklega skemmti-
legt að vera vörumerkjastjóri fyrir
Boody vörumerkið, vörur sem allir
elska sem prufa og er líka umhverf-
isvænn valkostur. Við byrjuðum að
selja grunnlínu Boody árið 2018,
nærföt, boli, toppa, sokka fyrir öll
kyn og leggings fyrir konur, sem
hlutu strax frábærar viðtökur.
Tveimur árum síðar, eða um sama
leyti og fólk þurfti að verja meiri
tíma heima vegna samkomu-
banns kom Boody Lounge-línan
á markað, sem var frábær tíma-
setning og naut hún strax mikilla
vinsælda,“ upplýsir Jónína um
Boody Lounge-heimakósílínuna
sem unnin er úr bambusbómull
sem hefur fjölmarga kosti fram
yfir hefðbundna bómull.
„Boody Lounge, eða heimafatn-
aður Boody, eru frábærar vörur
sem hægt að klæða upp og niður,
hvort sem þarf að skjótast út í búð,
nota í jógatímann eða ræktina, eða
einfaldlega til að sofa í eða hafa
það notalegt heima. Boody Lounge
fatnaðurinn er líka frábær í ferða-
lög og flug,“ greinir Jónína frá.
Lífrænn og vistvænn fatnaður
Boody vörumerkið kemur frá Ástr-
alíu. Það voru tveir vinir í Sidney
sem stofnuðu Boody árið 2011 með
það að leiðarljósi að sameina tísku
og sjálfbærni.
„Markmið Boody er að bjóða
upp á úrval af þægilegum hvers-
dagsvörum með því að nota
náttúruleg efni sem hafa sem
minnst áhrif á náttúruna. Allur
Boody fatnaður er unninn úr líf-
rænt ræktuðum bambus við bestu
aðstæður og öll framleiðslan fylgir
ströngustu kröfum, bæði fyrir
náttúruna og starfsmenn í fram-
leiðsluferlinu,“ útskýrir Jónína og
heldur áfram:
„Hefðbundin bómullarræktun
hefur þurrkað upp heilu stöðu-
vötnin, enda þarf mikið vatn,
tilbúinn áburð og skordýraeitur til
að rækta bómull. Bambus er hins
vegar ótrúleg planta sem á einum
sólarhring getur vaxið um heilan
meter. Hann þarf margfalt minna
vatn en hefðbundin bómull og er
reyndar eingöngu ræktaður með
rigningarvatni. Auk þess er allt
vatn í framleiðsluferlinu endur-
nýtt,“ upplýsir Jónína.
„Bambus þarf heldur engan
tilbúinn áburð eða skordýraeitur,
og framleiðir auk þess 30 prósent
meira súrefni en sambærileg svæði
sem eru gróðursett með trjám.
Þá gleypir bambus enn meiri
koltvísýring (CO2) og gróðurhúsa-
lofttegundir,“ segir Jónína um þá
mögnuðu plöntu sem bambus er.
Góð kaup um helgina í Hagkaup
Dagana 5. til 11. maí eru Tax Free-
dagar á Boody vörum í Hagkaup.
„Því er hægt að kaupa Boody
Lounge vörurnar á enn betra verði
og ég veit að margir fagna því, enda
eru þetta dásamleg kósíföt sem
fólk hreinlega fæst ekki úr. Boody
Downtime Lounge buxurnar hafa
sérstaklega slegið í gegn enda
passa þær alltaf og alls staðar og
eru einstaklega þægilegar,“ segir
Jónína kát.
Boody Lounge vörurnar fást í Hag
kaup og á Heimkaup.is. Grunnlín
an fæst í öllum helstu apótekum,
Fjarðarkaupum, Nettó, Vistveru,
Mini market og víðar. Hægt er
að skoða vörurnar á boody.is og
fylgja Boody Iceland á Facebook
og Instagram þar sem oft eru vin
sælir gjafaleikir. n
Jónína segir
einstaklega
skemmti
legt að vera
vörumerkja
stjóri fyrir
Boody vöru
merkið. Það sé
umhverfisvænn
valkostur og
vörur sem allir
elska sem prófa.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Af hverju að velja Boody fatnað?
n Hrindir frá sér lykt – bambus hefur náttúrulega
bakteríu og sveppadrepandi eiginleika sem gera
fatnaðinn lyktarfráhrindandi, líka eftir endur
tekinn þvott.
n Ekki ofnæmisvaldandi – Boody vörur henta sér
staklega vel fyrir fólk með viðkvæma húð, exem
eða sóríasis.
n Góð öndun – bambustrefjar samanstanda af
smásæjum holum sem veita loftræstingu þannig
að rakinn dregst frá líkamanum svo húðin getur
andað og fólk svitnar síður í fötunum.
n Dásamleg mýkt – bambus býr yfir léttleika og
óviðjafnanlegri mýkt. Þess vegna er svo gott að
klæðast fatnaði úr bambus.
n Hitastillandi – bambusþræðir eru hlýir á veturna
og kælandi á sumrin. Þú svitnar síður í Boody
fötum sem eru því líka frábær í hverskyns líkams
rækt og útivist.
n Loða ekki við – Boodyfötin verða ekki raf
mögnuð og festast því ekki við mann.
Boody Lounge er flott og klæðileg heimakósílína sem slegið hefur í gegn.
Því fylgir góð
tilfinning og
vellíðan að
klæðast flíkum
frá Boody. Efni
og hönnun er
dásamlegt um
leið og hlúð er
að náttúrunni
í framleiðslu
ferlinu.
MYNDIR/AÐSENDAR
Boody Downtime Lounge buxurnar
eru fádæma vinsælar enda mjög
klæðilegar og passa við öll tilefni.
Heimafatnað
Boody er hægt að
klæða upp og niður,
hvort sem þarf að skjót-
ast út í búð, fara í rækt-
ina, sofa í eða hafa það
kósí heima. Fatnaðurinn
er líka frábær í ferðalög
og flug.
2 kynningarblað A L LT 7. maí 2022 LAUGARDAGUR