Fréttablaðið - 07.05.2022, Blaðsíða 72
Nú styttist óðum í Eurovisi-
on-gleðina og margir slá upp
Eurovision-matarboði í tilefni
þess og fjölskyldur og vina-
hópar fylgjast saman með
keppninni í beinni. Berglind
Hreiðars, einn ástsælasti
matarbloggari landsins, er
ótrúlega klár í því að undir-
búa og bjóða í þemaveislur
og það á líka við þegar kemur
að Eurovision-matarboðinu.
Berglind nýtir hvert tækifæri til að
halda boð. „Ég hef alla tíð elskað að
bjóða fólki heim og nota hvert tæki-
færi sem gefst til að gera slíkt. Það er
alltaf hægt að finna tækifæri til að
hafa gaman og ég reyni alltaf að gera
eitthvað skemmtilegt í kringum
Eurovision. Stundum er það bara
fyrir okkur fjölskylduna en einnig
finnst mér gaman að hafa Eurovisi-
on-partí,“ segir Berglind.
Íslenski fáninn aðalþemað
Aðspurð segir Berglind að það séu
engar fastar hefðir í tengslum við
Eurovision-boðin. „Það fer bara eftir
því hvernig stuði ég er í hverju sinni
og hvort ég er búin að fylgjast mikið
með keppninni eða ekki. Ef maður
fylgist vel með, og ég tala nú ekki um
ef Ísland er með gott lag, þá verður
maður óneitanlega spenntari.“
Íslenskinn fáni er aðalþemað hjá
Berglindi í þessum boðum. „Ég hef
ekki skreytt mikið fyrir þessi boð,
nema kannski setja íslenska fánann
í matinn og þess háttar. En ég gæti
klárlega tekið mig á í þeim efnum
þar sem mér finnst ekkert leiðin-
legt að skreyta. Í næsta boði verða
það klárlega íslensku fánalitirnir
eða glimmer og glamúr.“
Margrétta Eurovision-matarboð
Þar sem keppnin er oftast á kvöld-
matartíma finnst Berglindi gaman
að vera með eitthvað matarkyns í
bland við smárétti. „Bland af mat
og einhverju sætu og síðan byrja
þessi kvöld oft snemma þannig að
ekki skemmir fyrir að hafa osta-
bakka síðar um kvöldið til að narta
í og eitthvað viðeigandi að drekka
líkt og léttvín. Ostabakkinn klikkar
aldrei og það er eiginlega sama hvað
hefur verið í matinn, það eru allir til
í osta og gúmmelaði yfir stigagjöf-
inni,“ segir hún.
Berglind gefur lesendum Frétta-
blaðsins hér upp skothelda matar-
veislu til að bjóða upp á fyrir
Eurovision-keppnina sem fram
undan er. „Hér hef ég sett saman
sætsterkan kjúklingarétt í aðalrétt
og dásamlegar Pavlovur í eftir-
rétt. Síðan er hér einnig útfærsla af
dýrindis ostabakka til að hafa síðar
um kvöldið, vorlegur og ljúffengur
með undursamlegum bökuðum
osti. Það passar einstaklega vel
með ostabökkum vorsins að skipta
úr rauðvíni í rósavín, hvet ykkur til
að prófa.“ n
Kræsingar fyrir
Eurovision-matarboðið
Sjöfn
Þórðardóttir
sjofn
@frettabladid.is
Sætsterkur kjúklingaréttur
fyrir 4
4 stk. kjúklingabringur
100 g Sweet chili sósa
Salt, pipar, hvítlauksduft
Ólífuolía til steikingar
Skerið kjúklinginn í bita og
steikið upp úr ólífuolíu. Kryddið
eftir smekk og hellið Sweet chili
sósunni yfir í lokin, lækkið hit-
ann alveg niður og haldið heitu á
meðan annað er undirbúið.
Bakaðar sætar kartöflur
Um 900 g sætar kartöflur
Salt, pipar, hvítlauksduft eftir
smekk
3 msk. ólífuolía
Hitið ofninn í 190°C. Flysjið kart-
öflurnar og skerið niður í teninga.
Veltið upp úr ólífuolíu og kryddið
eftir smekk. Bakið í um 20 mínút-
ur eða þar til kartöflurnar mýkj-
ast.
Karamellíseraður laukur
3 stk. laukur
50 g púðursykur
20 g smjör
1 msk. ólífuolía
Salt og pipar
Skerið laukinn í þunnar sneiðar.
Steikið upp úr smjöri og ólífuolíu
þar til laukurinn fer að mýkjast,
kryddið til með salti og pipar.
Bætið þá sykrinum á pönnuna og
leyfið að malla við vægan hita þar
til annað er tilbúið.
Chillisósa
200 g Hellmann‘s Light majónes
150 g sýrður rjómi
100 g Sweet chili sósa
2 msk. hunang
Pískið allt saman þar til kekkja-
laust og geymið í kæli fram að
notkun.
Wasabi-toppur
Raðið saman kartöflum, kjúklingi
og lauki. Setjið vel af Sweet chili
sósu yfir allt og toppið með söx-
uðum wasabi-hnetum.
Bláberja Pavlovur með
fílakaramellukremi
8-10 stykki
3 eggjahvítur
200 g púðursykur
1 tsk. hvítvínsedik
Hitið ofninn í 150°C. Þeytið eggja-
hvíturnar þar til þær fara aðeins
að freyða. Bætið sykrinum saman
við í nokkrum skömmtum og
hrærið vel á milli. Þegar blandan
er orðin stífþeytt má bæta edikinu
saman við og hræra stutta stund
til viðbótar. Sprautið marens úr
zip-lock poka eða notið tvær mat-
skeiðar til að skipta niður í 8-10
Pavlovur. Takið síðan bakhlið á
teskeið og mótið nokkurs konar
holu í miðjunni til þess að betra
sé að sprauta rjómanum ofan í
eftir bakstur. Bakið í 25 mínútur
og leyfið að kólna niður með ofn-
inum. Fyllið með rjóma, setjið
fílakaramellusósu yfir og skreytið
með bláberjum og söxuðu Toble-
rone.
Fílakaramellusósa
100 g Fílakaramellur (10 stk.)
70 ml rjómi
Bræðið saman þar til slétt sósa
hefur myndast. Leyfið sósunni að
kólna aðeins niður og ná stofuhita
áður en þið setjið yfir rjómann.
Fylling og skreyting
500 ml þeyttur rjómi
Um 300 g Driscolls bláber
70 g saxað Toblerone
Sprautið vel af rjóma ofan á hverja
Pavlovu. Setjið fílakaramellusósu
yfir rjómann og næst saxað Toble-
rone og bláber. Geymið í kæli fram
að notkun.
Evrovision-ostabakkinn
2022
1 x brie-ostur
200 g jarðarber (skorin í teninga)
1 msk. púðursykur
1 msk. balsamik glaze
2 msk. hunang
1 lúka saxaðar kasjúhnetur
Nokkur myntulauf (söxuð)
Hitið ofninn í 180°C og setjið ost-
inn í eldfast mót. Bakið hann í um
10 mínútur og útbúið jarðarberja-
toppinn á meðan. Hitið saman
púðursykur, balsamik glaze og
hunang þar til sykurinn er bráð-
inn. Takið af hellunni og hrærið
jarðarberjunum varlega saman
við. Hellið yfir ostinn þegar hann
kemur úr ofninum og toppið með
söxuðum kasjúhnetum og vel af
myntu.
Annað á ostabakka
Salamirós (ég notaði ítalska
salami með kryddkanti, um 10
sneiðar)
Grissini-stangir vafðar í hrá-
skinku
Chili-sulta
Grettir ostur
Möndlur
Döðlur
Súkkulaðihjúpaðar hnetur og
ávextir
Jarðarber
Ostateningar (Gouda sterkur)
Ritz kex/annað kex
Berglind
Hreiðars, einn
ástsælasti
matarbloggari
landsins, er
ótrúlega klár í
því að undir-
búa og bjóða
í þemaveislur
og kann að búa
til stemningu.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Sætsterkur kjúklingurinn er girnilegur og einfaldur réttur sem allir geta gert.
Guðdómlegar
Pavlovurnar
toppaðar með
bláberjum og
karamellusósu,
syndsamlega
ljúffengur eftir-
réttur.
Ostabakkinn slær ávallt í gegn og
gestirnir eiga eftir að missa sig yfir
þessum kræsingum.
36 Helgin 7. maí 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ