Fréttablaðið - 07.05.2022, Blaðsíða 42
Íslenskukennari við
Sorbonneháskóla í París
Staða íslenskukennara við Sorbonneháskólann í París
er laus til umsóknar. Ráðið verður í stöðuna frá og með
1. september 2022. Ráðning er tímabundin til tveggja ára
með möguleika á endurráðningu til jafnlangs tíma. Krafist
er MA-prófs í íslensku eða tengdum greinum. Æskilegt er
að umsækjendur hafi lokið kennararéttindanámi og/eða
hafi reynslu af því að kenna íslensku sem annað eða erlent
mál. Kunnátta í frönsku er nauðsynleg. Nær eingöngu er
um íslenskukennslu að ræða á BA-stigi en umsækjendur
þurfa einnig að geta kennt íslenskar bókmenntir og fjallað
um íslenskt samfélag. Æskilegt er að umsækjendur hafi
búið á Íslandi undanfarin ár.
Umsóknir sem greina frá námi og störfum umsækjenda,
ásamt skýrslu um ritsmíðar og rannsóknir, skal senda í
tölvupósti til Branislav Bédi, verkefnisstjóra á alþjóðasviði,
(branislav.bedi@arnastofnun.is) fyrir 15. júní 2022.
Nánari upplýsingar veitir verkefnisstjóri í gegnum
tölvupóst eða í síma 525 4421.
Reykjavík, 28. apríl 2022
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
VERKEFNASTJÓRI VIÐ BORFRAMKVÆMDIR
Ræktunarsamband Flóa og Skeiða óska eftir að ráða verkefnastjóra við
borframkvæmdir. Verkefnastjóri hefur umsjón með áætlanagerð, undirbúningi
og hönnun borverka ásamt því að annast verkefnastjórn við borframkvæmdir.
Starfsstöð verkefnastjóra er á Selfossi.
Starfs- og ábyrgðarsvið
· Verkefnastjórn við borframkvæmdir
· Eftirlit með framvindu verkefna og framvinduskýrslur
· Undirbúningur og gerð framkvæmda- og kostnaðaráætlana
· Samskipti við hlutaðeigandi aðila innan sem utan fyrirtækisins
· Undirbúningur verksamninga, eftirlit með framkvæmd og uppgjör samninga
· Verkefnaöflun og tilboðsgerð
Menntunar- og hæfniskröfur
· Háskólagráða í verk- eða tæknifræði
· Starfsreynsla við verkefnastjórnun æskileg
· Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
· Hæfni í mannlegum samskiptum
· Gott vald á íslensku og ensku, talaðri sem ritaðri
· Geta til að koma fram fyrir hönd fyrirtækisins
Ræktunarsamband Flóa og Skeiða | Víkurheiði 6 | 801 Selfossi | Sími 480 8500 | raekto.is
Upplýsingar um starfið veitir Guðmundur Á. Böðvarsson, framkvæmdastjóri í síma 897 7767 eða í gudmundurb@raekto.is.
Umsóknarfrestur er til 22. maí næstkomandi. Sækja skal um starfið á www.raekto.is
EFLA leitar að öflugum stjórnanda til að leiða starfsemi EFLU á Suðurlandi.
Höfuðstöðvar EFLU á Suðurlandi eru á Selfossi, en einnig er starfsstöð á Hellu.
STARFSSVIÐ SVÆÐISSTJÓRA:
• Leiðir svæðisteymi EFLU á Suðurlandi, sem ber ábyrgð á
daglegri starfsemi og rekstri
• Ábyrgð á markaðsmálum, mannauðsmálum, rekstri og þróun
• Leiðir stefnumótun og framþróun á svæðinu og er þátttakandi í
stefnumótun og þróun EFLU í heild
• Tryggir samræmingu og samstarf svæðisins við EFLU í heild
• Sinnir sérfræðiþjónustu við viðskiptavini í samræmi við menntun og reynslu
MENNTUNAR- OG HÆFNISKRÖFUR
• Leiðtogahæfileikar og mikil færni í mannlegum samskiptum
• Menntun sem nýtist í starfi, framhaldsnám á háskólastigi t.d. í
verkfræði eða öðrum tæknigreinum er æskileg
• Reynsla og árangur í leiðandi hlutverkum, stjórnun og rekstri
• Stefnumótandi og árangursmiðuð hugsun
• Hæfileikar til að skapa sterka liðsheild
Ef þú leitar að afbragðs starfsumhverfi, áhugaverðum starfsvettvangi í alþjóð-
legu umhverfi og hressu samstarfsfólki þá gætum við átt samleið.
Öll starfsemi EFLU byggir á teymishugsun þar sem samvinna, þátttaka og
samábyrgð í sterkri liðsheild eru grundvallaratriði. Þannig vinnum við að fjöl-
breyttum verkefnum í teymum þvert á svið og svæði. EFLA er jafnlaunavottað
fyrirtæki með skýra jafnréttisstefnu og leitast við að jafna kynjahlutfall innan
hinna ýmsu starfa hjá okkur. Í stjórnendateymi EFLU eru karlar í meirihluta og
hvetjum við því önnur kyn sérstaklega til að sækja um.
Umsókn og kynningarbréf, með upplýsingum um menntun og starfsreynslu,
skal berast rafrænt í gegnum heimasíðu EFLU, www.efla.is/laus-storf, fyrir
22. maí 2022. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Nánari upplýsingar
veitir Ingibjörg Sigrún Stefánsdóttir sviðsstjóri Mannauðs (iss@efla.is).
efla.is/laus-storf412 6000
Svæðisstjóri á Suðurlandi
Erum við
að leita að þér?