Fréttablaðið - 07.05.2022, Blaðsíða 38
Stjórnandi vefmála BIOEFFECT
Við leitum að öflugum stjórnanda með yfirgripsmikla þekkingu og
reynslu af vefþróun. Stefna okkar er að fjárfesta enn frekar í þróun og
uppbyggingu á vefumhverfi fyrirtækisins. Við viljum efla ásýnd og
upplifun viðskiptavina okkar ásamt því að auka sölu og krosssölu.
Vefir BIOEFFECT gegna lykilhlutverki í sölu- og markaðsstarfi okkar á
heimsvísu. BIOEFFECT rekur eigin vefi en auk þess reka dreifiaðilar um
allan heim útgáfur af vef og vefverslun. Umhverfið er því sérstaklega
krefjandi.
BIOEFFECT fékk tilnefningu til þriggja vefverðlauna SVEF 2021.
Menntun og hæfniskröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Yfirgripsmikil þekking af þróun og rekstri vefja og vefverslana
• Reynsla af innleiðingu á vef
• Reynsla og þekking á Google Analytics er kostur
• Reynsla af netmarkaðssetningu og hönnun þjónustuferla er kostur
• Þekking á Shopify, Prismic, HTML, CSS og JavaScript er kostur
• Mjög gott vald á íslensku og ensku
• Frumkvæði, sjálfstæði í starfi og skipulögð vinnubrögð
• Metnaður og löngun til að ná árangri
Veist þú allt um
veröldina á vefnum?
BIOEFFECT I Víkurhvarfi 7 I Kópavogi I bioeffect.com I bioeffect.co.uk I bioeffect.is
Nánari upplýsingar veitir Elísabet Austmann, framkvæmdastjóri
markaðssviðs, elisabet.austmann@bioeffect.com.
Sækið um á alfred.is til og með 22. maí 2022.
Farið verður með allar upplýsingar sem trúnaðarmál.
SÉRFRÆÐINGUR
Á FJÁRMÁLASVIÐI
Við leitum að metnaðarfullum og talnaglöggum sérfræðingi til starfa á
fjármálasviði VIRK.
Helstu verkefni
• Kostnaðareftirlit og skýrslugerð
• Aðstoð við uppgjör og uppsetningu ársreiknings
• Greining reglulegra uppgjöra
• Aðkoma að gerð fjárhagsáætlunar
• Eftirlit og utanumhald ýmissa gagna
• Vinna við gerð og þróun árangursmælikvarða
• Gæðamál og umbótastarf
Menntunar- og hæfnikröfur
• Háskólapróf í viðskiptafræði, hagfræði eða sambærileg menntun
• Reynsla af fjármálum og notkun bókhaldskerfa
• Frumkvæði, fagmennska og skipulagshæfni
• Góð færni í Excel
• Mjög góð tölvukunnátta
• Nákvæmni, jákvæðni og heiðarleiki
• Þekking á og reynsla af verkefnastjórnun og gæðamálum
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Gott vald á íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti
Hlutverk VIRK er að efla starfsgetu einstaklinga í kjölfar veikinda eða
slysa með árangursríkri starfsendurhæfingarþjónustu. VIRK hefur
í samstarfi við fagaðila, fyrirtæki og stofnanir skilað samfélagslegum
ávinningi með aukinni þátttöku einstaklinga á vinnumarkaði og er
leiðandi í rannsóknum og þróun á sviði starfsendurhæfingar. Að VIRK
standa öll helstu samtök launamanna og atvinnurekenda á vinnumarkaði.
VIRK er metnaðarfullur vinnustaður þar sem lögð er áhersla á jákvæðan
starfsanda og sterka liðsheild. VIRK kappkostar að skapa jákvæða
menningu með traustu fagfólki. Gildi VIRK eru fagmennska, virðing og
metnaður og er starfsfólk hvatt til að hafa gildin að leiðarljósi í störfum
sínum.
Nánari upplýsingar um VIRK er að finna á virk.is
Upplýsingar veitir
Geirlaug Jóhannsdóttir
geirlaug@hagvangur.is
Umsóknir óskast fylltar út á hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og með 18. maí 2022.
Umsókn þarf að fylgja starfsferilskrá og
einnar blaðsíðu kynningarbréf þar sem
á kerfisbundinn hátt er gerð grein fyrir
því hvernig viðkomandi uppfyllir
hæfnikröfur starfsins.
VIRK starfsendur-
hæfingarsjóður