Fréttablaðið - 07.05.2022, Blaðsíða 54
Auglýsing á deiliskipulagi Miðbæjar
Strandvegur 51 (Tölvun)
Vestmannaeyjabær auglýsir tillögu að breyttu deiliskipulagi
Miðbæjarskipulags, 2 áfangi við Strandveg 51 þar sem Tölvun
er til húsa (skv. 1 mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010).
Helstu breytingar eru að lóðar- og byggingarreitur við Strand-
veg 51 stækkar, og hámarksfjöldi hæða eykst í 4 hæðir. Heildar
byggingarmagn var 514,6 m2 og verður 1490 m2. Grunnflötur
byggingarinnar er einnig stækkaður er nú 334,6 m2 og í 467
m2. Hámarksfjöldi íbúða verður 8 íbúðir. Hámarkshæð vegg-
hæð hússins hækkar frá 9 m í 14,5 m, en hámarkshæð helst
óbreytt, 14,5 m.
Krafa um atvinnustarfsemi á jarðhæð helst óbreytt en á hluta
hæðarinnar er gert ráð fyrir bílastæðahúsi fyrir 4 bíla.
Gert er ráð fyrir 2 bílastæðum með innkeyrslu frá Miðstræti.
Skipulagsgögn verða til sýnis hjá Umhverfis- og framkvæm-
dasviði Skildingavegi 5, frá og með 28. apríl til 9. júní 2022
og má einnig finna í skipulagsgátt sveitafélagsins
(https://www.vestmannaeyjar.is/thjonusta/skipulag/).
Ábendingum og athugasemdum við tillöguna þarf að skila
skriflega eigi síðar en 9. júní 2022 í afgreiðslu Skildingavegi 5,
eða á netfangið umhverfissvid@vestmannaeyjar.is
Innkaupaskrifstofa
Sími 411 1111
ÚTBOÐ
Ný útboð í auglýsingu hjá Reykjavíkurborg:
• Æfingavöllur Víkings. Endurnýjun vallarlýsingar, útboð nr. 15499
• Eiðsgrandi – Ánanaust – stígar og útsýnis
pallur, útboð nr. 15531
• Hamraskóli – rif og endurnýjun kerfislofts,
útboð 15534
• Íþróttamiðstöðin Klébergsskóla – Endurnýjun þaks, útboð nr. 15535
• Hlemmur og nágrenni 2. áfangi: Rauðarár-
stígur. Gatnagerð, yfirborðsfrágangur og
lagnir, útboð 15539
Nánari upplýsingar er að finna á
www.reykjavik.is/utbod
Útboð nr. 2022-43
Vöruutningur
á Þjórsársvæði
Óskað er eftir tilboðum í verkið
Vöruutningur á Þjórsársvæði
samkvæmt útboðsgögnum
nr. 2022-43.
Bjóða skal í þjónustuna í heild sinni.
Samningstími eru þrjú ár,
með heimild til framlengingar
um eitt ár.
Útboðsgögn og skil á tilboðum eru
í gegnum útboðsvef Landsvirkjunar
utbod.landsvirkjun.is.
Skilafrestur á tilboðum er til
31.5.2022 kl. 12.
Nöfn bjóðenda og heildartilboðs-
fjárhæðir verða birtar eftir kl. 12:00
sama dag á landsvirkjun.is.
Samþykkt skipulags fyrir
tvöföldun Reykjanesbrautar frá
Krýsuvíkurafleggjara að mörkum
Hafnarfjarðar og sveitarfélagsins Voga.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi
sínum þann 8. desember 2021 að auglýsa nýtt
deiliskipulag fyrir Reykjanesbraut í samræmi við
41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Deiliskipulagið var auglýst tímabilið 13.12.2021-
24.1.2022. Athugasemdir bárust og hefur þeim
sem gerðu athugasemdir verið send umsögn
sveitarstjórnar.
Deiliskipulagið var samþykkt með þeirri
breytingu að mislæg gatnamót, norðan við
Reykjanesbraut, við Straumsvík verða óbreytt.
Þeir sem óska eftir nánari upplýsingum
geta snúið sér til skipulagsfulltrúa
Hafnarfjarðarbæjar.
Hægt er að kæra samþykkt sveitarstjórnar til
úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.
Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu
auglýsingar um gildistöku deiliskipulagsins í
B-deild Stjórnartíðinda.
Auglýsing á niðurstöðu
sveitarstjórnar
hafnarfjordur.is
Hafnarfjarðarbær
bt. umhverfis- og skipulagssvið
Strandgötu 6
220 Hafnarfjörður
Garðabær óskar eftir tilboðum í reglubundinn
akstur fyrir börn á milli skóla og frístundastarfs
á skóladögum á tímabilinu 14:15 til 17:10.
Á líðandi skólaári voru akstursleiðirnar þrjár
en þeim getur fjölgað á milli ára. Miðað er við
að gera samning til fjögurra ára.
Útboðsgögn er hægt að nálgast
endurgjaldslaust á vef Garðabæjar,
gardabaer.is
Tilboð skal afhenda í þjónustuver
Garðabæjar, Garðatorgi 7, fyrir kl. 11:00
miðvikudaginn 8. júní 2022.
Fræðslu- og menningarsvið Garðabæjar
gardabaer.is
ÚTBOÐ
FRÍSTUNDAAKSTUR
Í GARÐABÆ
2022-2026
Skipulagsauglýsingar
í Dalvíkurbyggð
Breytingartillaga á Aðalskipulagi Dalvíkur-
byggðar 2008- 2020 fyrir Hauganes
Þann 22.03.2022 samþykkti sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar að
auglýsa breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-
2020 skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingartil-
lagan tekur til þéttbýlisins á Hauganesi í Dalvíkurbyggð.
Öll gögn má nálgast á heimasíðu Dalvíkurbyggðar
www.dalvikurbyggd.is og í Ráðhúsinu á Dalvík.
Athugasemdir eða ábendingar skulu berast fyrir 13. júní
2022 á skrifstofur Dalvíkurbyggðar í Ráðhúsinu, 620 Dalvík
eða á netfangið helgairis@dalvikurbyggd.is
Deiliskipulagstillaga fyrir íbúða-, hafnar-,
verslunar- og ferðamannasvæði á Hauganesi
Þann 22.03.2022 samþykkti sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar
að auglýsa breytingu á deiliskipulagi íbúða,- hafnar-,
verslunar- og ferðamannasvæði á Hauganesi skv. 1. mgr.
41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Öll gögn má nálgast á heimasíðu Dalvíkurbyggðar
www. dalvikurbyggd.is og í Ráðhúsinu á Dalvík.
Athugasemdir eða ábendingar skulu berast fyrir 13. júní
2022 á skrifstofur Dalvíkurbyggðar í Ráðhúsinu, 620 Dalvík
eða á netfangið helgairis@dalvikurbyggd.is
Þjóðvegur í þéttbýli Dalvíkur
– Deiliskipulagstillaga
Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar samþykkti á fundi sínum
þann 18. janúar 2022 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir
Þjóðveginn í gegnum Dalvík skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga
nr. 123/2010.
Öll gögn má nálgast á heimasíðu Dalvíkurbyggðar
www. dalvikurbyggd.is og í Ráðhúsinu á Dalvík.
Athugasemdir eða ábendingar skulu berast fyrir 31. maí 2022
á skrifstofur Dalvíkurbyggðar í Ráðhúsinu, 620 Dalvík
eða á netfangið helgairis@dalvikurbyggd.is
Breyting á deiliskipulagi Lokastígsreits
– Lokastígur 6
Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar samþykkti á fundi sínum
þann 23. nóvember 2021 að auglýsa tillögu að breytingu á
deiliskipulagi Lokastígsreits á Dalvík skv. 1. mgr. 43. gr.
skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan er aðgengileg á heima-
síðu Dalvíkurbyggðar www. dalvikurbyggd.is og í Ráðhúsinu
á Dalvík.
Athugasemdir eða ábendingar skulu berast skipulags-
og tæknifulltrúa fyrir 24. maí 2022 á skrifstofur Dalvíkur-
byggðar í Ráðhúsinu, 620 Dalvík eða á netfangið
helgairis@dalvikurbyggd.is
Skipulags- og tæknifulltrúi Dalvíkurbyggðar
Er verið að leita að þér?
Viðskiptavinir Ráðum fela ráðgjöfum okkar oft að finna starfsmenn án þess að auglýsa stöðuna.
Skráðu þig í gagnagrunninn okkar til að tryggja að við finnum þig þegar rétta starfið býðst.
20 ATVINNUBLAÐIÐ 7. maí 2022 LAUGARDAGUR