Fréttablaðið - 07.05.2022, Blaðsíða 48
SÖLUMAÐUR
FAGAÐILA Í
NÝRRI VERSLUN!
Selhella - Fullt starf
Það eru spennandi tímar framundan hjá okkur í BYKO Leigu í
glæsilegri nýrri starfsstöð á Selhellu 1, Hafnarfirði. Við erum
að opna nýja tegund af verslun sem einbeitir sér að leigu
og sölu á verkfærum. Við leitum því að metnaðarfullum og
þjónustulunduðum einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á
verkfærum og tengdum vörum í starf sölumanns til fagaðila.
Helstu verkefni eru ráðgjöf og þjónusta við fagaðila, stofnanir
og bæjarfélög.
BYKO Leiga er hluti af hringrásarhagkerfinu og við viljum
hámarka nýtingu alls okkar búnaðar ásamt því að leita leiða
til að gera það á umhverfisvænan hátt.
Helstu verkefni
• Tilboðs-, reikninga og leigusamningagerð
• Þjónusta við viðskiptavini
• Þátttaka í sölu- og áætlanagerð og vöruþróun
• Önnur tilfallandi verkefni í samráði við næsta yfirmann
Hæfniskröfur
• Frábær þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
• Áhugi á verklegum framkvæmdum er mikill kostur
• Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
• Reynsla af sölu- og þjónustustörfum er kostur
• Reynsla af starfi í byggingariðnaði eða þjónustu
við hann er kostur
• Góð færni í íslensku og ensku í ræðu og riti er skilyrði
• Góð almenn tölvukunnátta er kostur
Hvetjum alla áhugasama aðila til þess að sækja um, óháð kyni.
Allar frekari upplýsingar veitir Bragi Jónsson
(bragi@byko.is), rekstrarstjóri.
Sótt er um á byko.is, umsóknarfrestur til 9. maí 2022
Verksýn ehf er tækniþjónusta með sérhæfingu í viðhaldi og endurbótum
mannvirkja, innandyra og utan. Fáumst einnig við fjölbreytt verkefni er snúa að
verkefnastjórnun og eftirliti með nýframkvæmdum.
Við erum fjölskylduvænn vinnustaður og bjóðum eftirsóknarvert starfsumhverfi
fyrir starfsfólk, sem er okkar helsta auðlind. Við viljum ráða hæft starfsfólk í
eftirfarandi stöðu:
BYGGINGAFRÆÐINGUR / BYGGINGARTÆKNIFRÆÐINGUR
Umsækjendur með sambærilega menntun koma einnig til greina. Viðkomandi
þarf að geta hafið störf 1. júlí nk. eða eftir nánara samkomulagi. Starfsreynsla
er kostur en ekki skilyrði.
Í starfinu felst m.a. eftirfarandi:
• Ástandsgreiningar • Hönnun
• Gerð útboðs- og verklýsinga • Framkvæmdaráðgjöf
• Framkvæmdaeftirlit • Verkefnastjórnun
Áhugasamir eru beðnir að senda umsókn ásamt ferilskrá á netfangið
andri@verksyn.is, fyrir 23. maí nk. Fyllsta trúnaðar er gætt við meðferð
umsókna. Hægt er að nálgast hagnýtar upplýsingar um fyrirtækið á heimasíðu
þess, www.verksyn.is.
Verksýn ehf
Síðumúla 1
Sími 517-6300
Aðstoðamaður Rekstarstjóra
Gamla Bíó óskar að ráða starfsmann sem hefur þekkingu á
þjónustu, uppsettningu á veislum, tónleikum og að geta stjórnað
vöktum auk þess að setja upp vaktaplön fyrir viðburði í húsinu.
Æskilegt er að viðkomandi tali Íslensku auk annara tungumála
Unnið er á vöktum skv samkomulagi
Umsóknir sendist á gamlabio@gamlabio.is
Grillum í sumar
Petersen svítan óskar að ráða 2 starfsmenn til að sjá um og
reka útigrillið í sumar á pallinum. Viðkomandi þurfa að hafa
þekkingu á matargerð, starfað sjálfstætt, séð um innkaup og
þrif á vinnusvæðinu.
Pallurinn í Petersen svítunni er vinsæll útisvæðis veitingastaður
í Reykjavík
Æskilegt er að viðkomandi tali Íslensku auk annara tungumála
Unnið er á vöktum skv samkomulagi
Umsóknir sendist á gamlabio@gamlabio.is
4/28/22, 1:25 PM 26731510_1678228715604725_7508674335617646869_n.png
https://drive.google.com/file/d/1ytcdlJBX1k6T34NBfxRSXb-gZXWprm2S/view?ts=626a8649 1/1
14 ATVINNUBLAÐIÐ 7. maí 2022 LAUGARDAGUR