Fréttablaðið - 07.05.2022, Blaðsíða 10
Norðmaðurinn Carl-
sen hefur verið hand-
hafi heimsmeistara-
titilsins í skák í átta ár.
Fleiri vilja búa hér en
fá, og við viljum svara
eftirspurn með
nútímalegri byggð.
Karl Pétur
Jónsson, oddviti
Framtíðarinnar
Sveitarfélögin eru að
ýta á undan sér veru-
legri fjárfestingarþörf.
Sigurður
Snævarr, hag-
fræðingur Sam-
bands íslenskra
sveitarfélaga
Fimmtudaginn 2. júní 2022 kl. 16:30
Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík
Ársfundur SL lífeyrissjóðs 2022
1. Fundur settur
2. Skýrsla stjórnar
3. Gerð grein fyrir ársreikningi
4. Tryggingafræðileg úttekt
5. Breytingar á samþykktum
6. Fjárfestingarstefna sjóðsins kynnt
7. Önnur mál
Allir sjóðfélagar, jafnt greiðendur sem lífeyrisþegar, eiga rétt til fundarsetu
á ársfundinum. Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta á fundinn.
Reykjavík 25.04.2022
Stjórn SL lífeyrissjóðs
DAGSKRÁ
Traustur
lífeyrissjóður
Trygg framtíð
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
sk
h
ön
nu
n
Hlutverk Rannsóknasjóðs er að styrkja vísindarannsóknir
og rannsóknatengt framhaldsnám á Íslandi. Í þeim tilgangi
styrkir sjóðurinn skilgreind rannsóknaverkefni einstaklinga,
rannsóknahópa, háskóla, rannsóknastofnana og fyrirtækja.
Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Rannsóknasjóði
fyrir styrkárið 2023.
Umsóknarfrestur rennur út 15. júní 2022, kl. 15:00.
Umsækjendur eru beðnir um að kynna sér vel reglur
Rannsóknasjóðs fyrir styrkárið 2023 áður en hafist er
handa við gerð umsóknar.
Umsóknum skal skilað rafrænt í gegnum umsóknarkerfi
Rannís. Umsóknir og umsóknargögn skulu
vera á ensku.
Nánari upplýsingar og aðgang að rafrænu
umsóknarkerfi má nálgast á www.rannis.is.
Umsóknarfrestur 15. júní
Rannsóknasjóður
gar@frettabladid.is
ÍÞRÓTTIR Nýleg yfirlýsing Norð-
mannsins Magnusar Carlsen, um
að hann íhugi að leika ekki f leiri
keppnisskákir um heimsmeistar-
titilinn, veldur áhyggjum í skák-
heiminum. Carlsen er fimmfaldur
heimsmeistari og stigahæsti skák-
maður heims til ellefu ára þrátt fyrir
að vera aðeins 31 árs.
„Það myndi draga úr vægi heims-
meistaraeinvígisins. Þess vegna vona
ég innilega að Magnús tefli og verji
titilinn. Það er viðeigandi að besti
skákmaðurinn sé líka heimsmeist-
ari,“ segir hollenska skákstjarnan
Jorden van Foreest við norska dag-
blaðið Verdens Gang.
Carlsen sagði við Verdens Gang að
líklega gefi hann frá sér heimsmeist-
aratignina, en undirstrikaði að það
væri ekki hundrað prósent öruggt. n
Skákheimurinn bíður
ákvörðunar Carlsen
Skáksnillingurinn og Íslandsvinurinn Magnus Carlsen. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Árið 2021 lék sveitarfélög
landsins misgrátt fjárhagslega
séð. Almennt séð voru tekj-
urnar betri en fólk þorði að
vona. Laun verða sífellt stærri
kostnaðarliður.
kristinnhaukur@frettabladid.is
EFNAHAGSMÁL Fjögur af tíu stærstu
sveitarfélögunum voru með jákvæð-
an rekstrarafgang á árinu 2021 en
sex skiluðu halla. Almennt séð voru
tekjurnar meiri en búist var við en
fjárhagsáætlanirnar voru gerðar
í myrkri. Í greiningu sinni bendir
Sigurður Snævarr, hagfræðingur
Sambands íslenskra sveitarfélaga, á
að afkoma ársins 2021 sé mjög slök í
sögulegu samhengi.
„Tekjuþróunin er þokkaleg, í
kringum 10 prósentin. Það er tölu-
vert mikið betra en gert var ráð
fyrir,“ segir Sigurður.
Fjárhagsáætlanirnar haustið
2020 hafi þó verið gerðar á þeim
tíma þegar ekki var vitað til hvaða
aðgerða ríkið myndi taka eða hvern-
ig veiran myndi haga sér. Í óvissu sé
betra að áætla tekjur varlega.
Rekstrargjöldin hækka um 9
prósent, um 7,4 í Reykjavík en 10,4
í hinum níu sveitarfélögunum. En
þau eru Kópavogur, Hafnarfjörður,
Reykjanesbær, Akureyri, Garðabær,
Mosfellsbær, Árborg, Akranes og
Fjarðabyggð.
Atvinnuleysi fór hátt í faraldr-
inum en reyndist þó minna en óttast
var. Sigurður bendir á að ríkið hafi
komið inn með sterkar aðgerðir. Þá
hafi áhrif atvinnuleysis verið minni
en eftir bankahrunið því tekjulægra
fólk missti vinnuna. Margt fólk sem
var ekkert langt frá lágmarkslaunum
og atvinnuleysisbótum.
Stórt vandamál er fjárfestingar-
þörfin. Viðhaldsþörf hafi byggst
upp frá eftirhrunsárunum, sem
birtist meðal annars í myglumálum
sem komið hafa upp í skólum. Fjár-
festingar Reykjavíkurborgar hafi
verið 11,5 milljörðum minni en gert
var ráð fyrir. Fjárfesting Reykjavíkur
jókst hins vegar um 9,4 prósent á
árinu, en aðeins 3,4 prósent í hinum
níu sveitarfélögunum.
„Sveitarfélögin eru að ýta á undan
sér verulegri fjárfestingarþörf,“ segir
Sigurður. Sveitarfélögin séu ekki að
ná vopnum sínum hvað þetta varðar
og það sjáist meðal annars á mis-
heppnuðum útboðum.
Svæði sem eru í örum vexti krefj-
ast mikillar fjárfestingar í innviðum,
svo sem Árborg og Reykjanesbær.
Sigurður segir sveitarfélögin ekki ná
að byggja upp þá innviði sem til þarf.
„Veitukerfin eru að verða mikið
vandamál,“ segir Sigurður. „Það
þarf að gera gríðarlega mikið átak
í fráveitumálum. Fráveitan er eitt
stærsta umhverfismálið.“ Þá sé
uppbygging leikskóla stórmál því
ef bjóða á börnum pláss frá 12
mánaða aldri kosti það sveitar-
félögin gríðarlegar upphæðir. En í
dag standi leikskólagjöldin aðeins
undir um 10 prósentum rekstrar-
kostnaðar.
Samkvæmt greiningunni hækk-
aði launakostnaðurinn um 11,2
prósent, og rúmlega 2 prósentu-
stigum meira í Reykjavík en hinum
níu. Þessi kostnaður var 56 prósent
af tekjum árið 2019 en er 60 prósent
núna. Hækkun um 4 prósent á ekki
lengri tíma enda voru Lífskjara-
samningarnir þyngri fyrir sveitar-
félögin en aðra. Þeir renna út í mars
á næsta ári.
Sigurður bendir hins vegar á að
stærsta fjárhagsmálið fyrir sveitar-
félögin nú sé málefni fatlaðs fólks
og beðið er eftir skýrslu um þau
mál. Sigurður segir tekjustofninn
hafa verið verulega vanreiknaðan
þegar málaf lokkurinn var færður
yfir árið 2011. Hallinn árið 2020 af
honum hafi verið á tíunda milljarð
króna, sem samsvari heildartekju-
tapi sveitarfélaganna það ár. n
Ekki nægar fjárfestingar
Uppbygging innviða hefur ekki gengið nógu hratt fyrir sig. MYND/AÐSEND
olafur@frettabladid.is
SELTJARNARES Bæjarmálafélagið
Framtíðin vill byggja að minnsta
kosti 120 nýjar íbúðir í miðbæ Sel-
tjarnarness. Framtíðin vill skoða að
setja leikskólareitinn í miðbæ bæjar-
ins í einkaframkvæmd og blanda
honum við íbúðabyggð. Þá vill félag-
ið einkarekinn leikskóla.
Þetta kemur fram í Tímavélinni,
blaði Framtíðarinnar sem dreift
verður um helgina, en Fréttablaðið
hefur undir höndum. Karl Pétur
Jónsson, oddviti listans, staðfestir
þetta í samtali við Fréttablaðið. „Við
teljum tækifæri til að fjölga íbúum
á Seltjarnarnesi. Fleiri vilja búa hér
en fá, og við viljum svara eftirspurn
með nútímalegri byggð.“ n
Vilja 120 nýjar íbúðir á Seltjarnarnesið
10 Fréttir 7. maí 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ