Fréttablaðið - 07.05.2022, Blaðsíða 41
Umsóknarfrestur er til og með 30. maí 2022. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf
þar sem gerð er grein fyrir hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að
ráðningu lokinni, Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið.
• Þekking og brennandi áhugi á loftslagsmálum
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Leiðtogahæfni ásamt framúrskarandi samskipta- og
samstarfshæfni
• Þekking á íslensku atvinnulífi og stjórnsýslu
• Drifkraftur, frumkvæði, jákvæðni og hugmyndaauðgi
• Umfangsmikil reynsla af markaðsmálum og kynningarmálum
ásamt reynslu af notkun samfélagsmiðla í markaðsstarfi
• Þekking og reynsla af markaðssetningu á erlendum mörkuðum
er æskileg
• Reynsla af verkefnisstjórnun
• Framúrskarandi ensku- og íslenskukunnátta skilyrði, önnur
tungumálakunnátta er kostur
• Færni og reynsla í að koma fram
Nánari upplýsingar veita Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) og
Helga Birna Jónsdóttir (helga@intellecta.is) í síma 511 1225.
• Kynna fjölbreytt framlag Íslands til loftslagsmála
• Efla samstarf stjórnvalda og atvinnulífs um aðgerðir í
loftslagsmálum þ.m.t. um kolefnishlutleysi árið 2040
• Styðja við loftslagsvegferð atvinnulífsins og auka þátttöku
fyrirtækja í grænu ferli, umbótaverkefnum og loftslagsvegferðinni
• Styðja við markaðs- og viðskiptaþróunarstarf fyrirtækja tengt
loftslagsmálum
• Vekja athygli hérlendis sem og erlendis á framlagi Íslands og
íslenskra fyrirtækja og hvetja til frekari framþróunar
Laust er til umsóknar starf forstöðumanns Grænvangs, samstarfsvettvangs atvinnulífs og stjórnvalda
um loftslagsmál og grænar lausnir. Um spennandi starf er að ræða sem snýr að stuðningi við
loftslagsvegferð atvinnulífsins ásamt kynningu á framlagi Íslands og árangri í loftslagsmálum. Leitað
er að drífandi og reynslumiklum leiðtoga með öfluga fagþekkingu og reynslu á sviði loftslagsmála og
af markaðs- og kynningarmálum. Forstöðumaður er ráðinn af Íslandsstofu og stjórn Grænvangs og
starfar innan Íslandsstofu.
Menntunar- og hæfniskröfur:Helstu verkefni og ábyrgð:
Forstöðumaður Grænvangs
Markmið Grænvangs er að bæta árangur Íslands í loftslagsmálum og miðla fjölbreyttu framlagi landsins á því sviði, stuðla að
framgangi grænna lausna og efla samvinnu stjórnvalda og atvinnulífs varðandi aðgerðir í loftslagsmálum í samræmi við markmið
stjórnvalda, þ.m.t. kolefnishlutleysi árið 2040. Þá vinnur vettvangurinn, í samstarfi við Íslandsstofu, að kynningu á íslensku hugviti
og framleiðslu sem byggja á íslenskri orkuþekkingu og grænum lausnum. Nánari upplýsingar má finna á www.graenvangur.is.
Grænvangur hefur verið starfræktur í tæp þrjú ár. Að baki vettvangnum standa fjölbreyttir aðilar úr íslenskri stjórnsýslu og atvinnulífi. Íslandsstofa er
samstarfsvettvangur atvinnulífsins og stjórnvalda og hefur það hlutverk að auka gjaldeyristekjur þjóðarinnar. Íslandsstofa sinnir mörkun og markaðs-
setningu fyrir Ísland og íslenskar útflutningsgreinar, styður íslensk fyrirtæki í sókn á erlenda markaði og greiðir götu erlendrar fjárfestingar í íslensku
atvinnulífi.
Síðumúla 5 • 108 Reykjavík • 511 1225 • intellecta.is
RÁÐNINGAR
RÁÐGJÖF
RANNSÓKNIR
ATVINNUBLAÐIÐ 7LAUGARDAGUR 7. maí 2022