Fréttablaðið - 07.05.2022, Blaðsíða 92
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Andrés Bertelsen andres@frettabladid.is, Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/
SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir
ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is,
TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
*Taxfree tilboðið jafngildir 19,35% afslætti og gildir á öllum
vörum. Gildir ekki ofan á önnur tilboð eða af
sérpöntunum. Að sjálfsögðu fær ríkissjóður virðisaukaskatt
af söluverði. Afslátturinn er alfarið á kostnað Dorma.
AF ÖLLUM
VÖRUM*
LÝKUR Í DAG
EKKI MISSA AF
ÞESSU
REYKJAVÍK | AKUREYRI | ÍSAFJÖRÐUR
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
Baldur Þórhallsson stjórn-
málafræðiprófessor segir
gengi landa í söngvakeppn-
inni oft fara eftir stöðu stjórn-
mála í Evrópu hverju sinni.
Hann segir skorta skilning
á Íslandi á mikilvægi þess
að halda pólitík fyrir utan
keppnina.
odduraevar@frettabladid.is
„Gengi landa í keppninni fer oft eftir
stöðu stjórnmála í Evrópu hverju
sinni,“ segir Baldur. Umræða um
mörk Eurovision og pólitíkur er
nú í algleymingi enda var Rússum
meinuð þátttaka vegna innrásar
í Úkraínu og Úkraínumönnum er
spáð sigri í öllum veðbönkum.
„Það var engin tilviljun að Úkra-
ína vann keppnina 2016 eftir inn-
rás Rússa á Krímskaga. Ég held það
megi alveg segja að Jamala hefði
nú varla unnið nema vegna þessa
mikla meðbyrs sem Úkraína naut
þá meðal almennings í Evrópu,“
segir Baldur.
Hann segir töluvert f leiri dæmi
um áhrif stjórnmála á keppnina,
þannig hafi Ítalía unnið með lag
um sameinaða Evrópu árið 1990,
rétt eftir fall Berlínarmúrsins.
Úkraínumenn með gott lag
Baldur segir aðspurður að það sé
ekki bara vegna pólitíkurinnar,
Úkraínumenn bjóði líka upp á gott
lag: Stefania.
„Þetta er kannski ekki týpískt lag
sem vinnur Eurovision en þetta er
rosalega þjóðlegt lag með þjóðlegan
tón sem oft hefur átt góðu gengi að
fagna í Eurovision,“ segir Baldur og
segir lagið minna um margt á lag
Rússlands frá 2012.
„Með ömmunum frá Rússlandi
sem lentu minnir mig í öðru sæti,
með austurevrópskt þjóðlegt lag í
mjög svipuðum tóni og úkraínska
lagið í ár. Þá hafa Írar líka oft á tíðum
unnið með þjóðlegum lögum og
Noregur líka,“ segir Baldur.
Mikilvægt að halda pólitík úti
„Mér finnst vanta pólitískan skilning
á Íslandi á því að verið sé að reyna að
halda pólitíkinni úti til þess að menn
geti talað og unnið saman, þvert á
milli landa, þvert á milli þjóða og
þjóðarbrota,“ segir Baldur.
„Tilgangur Eurovision er að menn
horfi frekar á það sem sameinar þá
en sundrar. Ef við blöndum pólitík
inn í keppnina þá mun það ekki
ganga eftir.“
„Það er mikil tilhneiging til þess
að blanda pólitík inn í keppnina
sjálfa en það getur ekki endað öðru-
vísi en með upplausn keppninnar.
Ef menn ætla að láta alla tónlistar-
viðburði og menningarviðburði
snúast um pólitík þá vinna menn
ekki saman á sviði menningar,“
segir Baldur.
Hann bendir á að það hafi áður
verið stríð á meðan Eurovision
hefur verið haldið, meðal annars á
tíunda áratug síðustu aldar. og átök
í Írlandi og víðar . „Ef menn ætla sér
alltaf að hrópa slagorð á sviðinu
þá leiðir það bara til þess að það
trosnar upp úr keppninni þannig
að menn geta ekki haldið hana. Ef
allir fara að gera þetta, í upphafi
lags, í miðju lags, í lok lags, þá endar
þetta bara í einhverju pólitísku
leikriti.“ ■
Lítill skilningur á því að
Júró eigi að vera ópólitískt
Baldur segir Eurovision eiga að sameina, ekki sundra. FRÉTTABLAÐIÐ/JÓHANNA
Systrunum var líkt við Hatara á dögunum vegna stuðningsyfirlýsinga við Úkraínu á sviði. MYND/EUROVISION
„Það eru eflaust fáir sem gera sér ekki
grein fyrir því að það eru kosningar
á næsta leiti. Baráttan um borgina
virðist vera hvað hörðust enda eru
sveiflurnar í hinum bæjarfélögun-
um, sérstaklega utan höfuðborgar-
svæðisins, yfirleitt ekki miklar,“ segir
Máni Snær, blaðamaður á DV.
„Kosningabaráttan hófst af alvöru
í þessari viku, ekki því hvert og eitt
auglýsingaskilti bæjarins f lakkar
nú á milli brosandi frambjóðenda
og stórra loforða – nei, því í þessari
viku hófst skoðanapistlaflóðið sem
kemur alltaf þegar klukkan fer að slá
kosningar.
Skoðanapistlarnir streyma inn
á íslenska fjölmiðla eins og enginn
sé morgundagurinn, hver á fætur
öðrum og hver öðrum leiðinlegri.
Nei, í alvörunni, það er eins og
stjórnmálafólk sé að keppast um
einhver verðlaun í leiðindaskap með
þessum pistlum sínum.
Svo er eins og ekkert þeirra hafi
heyrt um að ritskoða sjálft sig, flestir
pistlarnir eru eins og unglingaskáld-
sögur að lengd. Það þarf enginn 1.400
orð til að útskýra af hverju það er
næs að geta lagt bílnum sínum og
það þarf enginn að segjast hata borg-
arlínuna með tveimur blaðsíðum.
Sérstaklega ekki þegar það er hægt
að gera það með þremur orðum.“ ■
Liggur undir skoðanapistlaflóði
■ Frétt vikunnar
Máni Snær Þorláksson,
blaðamaður
Máni Snær
Þorláksson,
blaðamaður
á DV, gefur
skoðanapistlum
frambjóðenda
ekki háa einkun.
56 Lífið 7. maí 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ