Fréttablaðið - 07.05.2022, Blaðsíða 22
Ég veit ekki hvenær
þeir sprengdu íbúðina
mína.
Það er því miður
ekkert öruggt svæði í
Úkraínu.
Oleksii Bykov þurfti að flýja
heimaland sitt, Úkraínu,
þegar stríðið þar í landi hófst.
Bykov er 24 ára gamall knatt-
spyrnumaður og er samnings-
bundinn FK Mariupol sem er í
samnefndri borg. Maríupol er
sú borg sem hefur farið hvað
verst út úr innrás Rússlands.
Bykov er nú búsettur á Akureyri eftir
að hafa gengið í raðir KA. Hann segir
erfitt að horfa á stöðuna í heima-
landi sínu en íbúð hans er ónýt eftir
sprengjuárás Rússa. „Lífið á Íslandi
er gott, allir í kringum KA hafa séð
afar vel um mig eftir að ég kom til
landsins,“ segir Bykov um hið nýja
líf. Áður en innrás Rússlands hófst
í Úkraínu voru íbúar Maríupol um
470 þúsund sem er talsvert meira en
á öllu Íslandi. Þessi ungi maður er að
venjast því að búa í litlu samfélagi.
„Ísland er mjög lítið land, það virðist
vera eins og allir þekki alla hérna.
Það er aðeins öðruvísi en ég er vanur
í Úkraínu,“ segir Bykov og brosir.
Ég er ekki hermaður
Þegar Bykov er beðinn um að hugsa
til baka til 24. febrúar, dagsins sem
Rússar réðust inn í Úkraínu, er bara
eitt orð sem kemur upp í huga hans.
„Þetta var helvíti,“ segir Bykov. „Það
skildi enginn hvað var að gerast,
það var mjög erfitt að horfa á þetta
gerast því þarna eru vinir mínir og
fjölskylda.“
Bykov var í æfingaferð með FK
Mariupol þegar stríðið hófst í Úkra-
ínu. Hann og liðsfélagar hans voru
mættir á flugvöllinn í Tyrklandi og
á heimleið þegar Rússar hófu inn-
rásina. „Við vorum að leggja af stað
heim til Úkraínu eftir góða æfinga-
ferð í Tyrklandi. Þegar við komum á
flugvöllinn komumst við að því að
það væri byrjað stríð.“
Margir karlmenn á aldur við
Bykov gengu til liðs við herinn. „Ég
er ekki hermaður. Ég taldi mig geta
hjálpað fólki betur með því að spila
fótbolta og hjálpa á annan hátt,"
segir Bykov.
Rússar sprengdu upp íbúð hans
Fjölskylda og vinir Bykovs eru
margir hverjir enn staddir í Úkra-
ínu, þeir hafa komið sér fyrir á
svæðum sem eiga að teljast örugg.
„Mitt nánasta fólk hefur komið sér
fyrir á „öruggum svæðum“ en það
er því miður ekkert öruggt svæði í
Úkraínu,“ segir Bykov brúnaþungur
um ástandið í heimalandinu.
Þegar Bykov lenti á Íslandi
komst hann að því að Rússar hefðu
sprengt upp íbúð hans í Maríupol.
„Ég brotnaði algjörlega niður, ég
missti allt sem ég átti. Ég þakka bara
guði fyrir að enginn af ættingjum
mínum var í íbúðinni minni. Ég veit
ekki hvenær þeir sprengdu íbúðina
mína en ég komst að þessu degi eftir
að ég kom til Íslands.“
Getur ekki farið heim á næstunni
Bykov segir ómögulegt að snúa
aftur heim til Maríupol á næst-
unni. „Þessa stundina er ekki hægt
að snúa heim, ég get ekki farið aftur
til Maríupol, borgin mín er gjöreyði-
lögð. Hér á Íslandi er ég umkringdur
frábæru fólki sem hjálpar mér á
þessum erfiðu tímum.“
Þrátt fyrir að Bykov búi nú á
Akureyri og finni fyrir öryggi í sínu
daglega lífi, er hugurinn oft á heima-
slóðum og það getur tekið á. „Þegar
staðan er svona í Úkraínu er mjög
erfitt að hugsa bara um fótboltann,
ég ligg oft andvaka til morguns því
ég tala við vini mína í heimalandinu
og sé fréttir um stöðuna þar. Þegar
ég mæti til æfinga og í leiki með KA
þá reyni ég að hugsa bara um fót-
boltann.“
KA hefur farið vel af stað í Bestu
deildinni og frammistaða Bykovs
hefur verið góð. „Við höfum unnið
alla þrjá leikina og ég vil vinna alla
leiki. Fótboltinn hér er allt öðru-
vísi en ég hef vanist í Úkraínu. Hér
er mikið barist innan vallar, í raun
hálfgerð slagsmál,“ segir Bykov sem
útilokar ekki að fleiri leikmenn frá
Úkraínu komi til Íslands í náinni
framtíð. ■
Andvaka á Akureyri
og hugsar heim til
Maríupol
Bykov segir erfittt að hugsa heim þar sem ættingjar og vinir eru. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
Bykov hefur komið sterkur inn í lið
KA. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
Maríupol lýst sem helvíti á jörðu í stríðinu
Rússar náðu hafnarborginni Maríupol á sitt vald
fyrir nokkrum vikum, en Úkraínumenn berjast
ennþá í Azovstal-stálverinu sem er síðasta vígi
borgarinnar. Maríupol er hafnarborg og hefur því
hernaðarlegt gildi fyrir rússenska herinn. Með
því að ná valdi á borginni opnast leiðir til suðurs
og austurs frá Svartahafi. Rússar hafa næstum
jafnað borgina við jörðu í sprengjuárásum sínum
síðustu vikur og hafa Sameinuðu þjóðirnar verið
að aðstoða við að koma óbreyttum borgurum
út úr borginni.
Úkraínumenn hafa sagt Rússa verið að vinna
markvisst að því að loka flóttaleiðum og hafa
íbúar sem hafa sloppið út úr borginni lýst Maríu-
pol sem helvíti á jörðu um þessar mundir.
Úkraínskir hermenn berjast enn í Azovstal
og nýta sér neðanjarðarbyrgi verksmiðjunnar.
Vladímír Pútín hefur sagt síðustu úkraínsku her-
mönnunum í borginni að leggja niður vopn og
gefast upp, en hann stefnir að því að fagna fulln-
aðarsigri á borginni samhliða fagnaðarlátum
Rússa í tengslum við seinni heimsstyrjöldina í
Moskvu 9. maí.
Hörður Snævar
Jónsson
hordur
@frettabladid.is
Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins.
Golfið í sumar
Nánari upplýsingar um blaðið veitir:
Ásgeir Aron Ásgeirsson, markaðsfulltrúi
Sími 550 5649 /asgeiraron@frettabladid.is
Föstudaginn 13. maí verður Fréttablaðið
með golfþema í Allt-hluta blaðsins.
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fr ttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
22 Íþróttir 7. maí 2022 LAUGARDAGUR