Fréttablaðið - 07.05.2022, Blaðsíða 46
Forsætisráðuneytið auglýsir eftir
sérfræðingi á skrifstofu
stjórnskipunar og stjórnsýslu
Forsætisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar starf sérfræðings á skrifstofu stjórnskipunar og stjórnsýslu.
Starfið er fjölbreytt og felur meðal annars í sér aðkomu að undirbúningi funda, aðstoð við alþjóðafulltrúa,
upplýsingaöflun og þátttöku í teymisstarfi innan ráðuneytisins. Um er að ræða áhugavert starf í krefjandi
starfsumhverfi þar sem reynir á skipulagningu, frumkvæði og vönduð vinnubrögð.
Skrifstofa stjórnskipunar og stjórnsýslu fer meðal annars með þróun stjórnskipunarréttar, stjórnsýslu- og
upplýsingalög, málefni ríkisstjórnar og ríkisráðs, heilindi í opinberum störfum, samskipti við Alþingi og
forseta Íslands, alþjóðasamskipti og mannauðsmál forsætisráðuneytisins, þjóðlendur og upplýsingagjöf til
almennings og fjölmiðla.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólamenntaðra
starfsmanna Stjórnarráðsins hafa gert.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið
störf sem fyrst. Með umsókn skal fylgja starfsferilskrá, prófskírteini og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir
ástæðum umsóknar og hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í 6
mánuði, sbr. reglur nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa.
Starfshlutfall er 100%.
Umsóknarfrestur er til og með 16. maí 2022
Nánari upplýsingar veita
Páll Þórhallsson skrifstofustjóri pall.thorhallsson@for.is
Eydís Eyjólfsdóttir mannauðsstjóri eydis.eyjolfsdottir@for.is
Sótt er um starfið á Starfatorgi: starfatorg.is
Helstu verkefni og ábyrgð
• Undirbúningur ríkisráðsafgreiðslna og
ríkisráðsfunda
• Aðstoð við og þátttaka í verkefnum
alþjóðafulltrúa ráðuneytisins
• Undirbúningur ýmissa viðburða
• Upplýsinga- og gagnaöflun og svörun erinda
• Aðkoma að undirbúningi ríkisstjórnafunda
• Þátttaka í umbótastarfi og teymisvinnu
• Ýmis önnur tilfallandi verkefni og afleysingar
innan ráðuneytisins
Hæfniskröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er æskileg
• Reynsla af starfi innan Stjórnarráðsins er kostur
• Góð tölvufærni og þekking á helstu Office365 forritum
• Góð íslensku- og enskukunnátta og hæfni til að setja
fram mál í ræðu og riti
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Skipulagshæfni og lausnamiðuð hugsun
• Sveigjanleiki og geta til að vinna undir álagi
• Þjónustulund ásamt færni og lipurð í mannlegum
samskiptum
Stjórnarráð Íslands
Forsætisráðuneytið
hagvangur.is
12 ATVINNUBLAÐIÐ 7. maí 2022 LAUGARDAGUR