Fréttablaðið - 07.05.2022, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 07.05.2022, Blaðsíða 28
 Prúttaði við lækninn Aðgerðin sjálf er mikið inngrip en Sigríður segir hana ekki síður hafa tekið á andlegu hliðina. „Ég hef oft verið kölluð nagli en í dag finnst mér það nánast orðið neikvætt orð. Það skilaði því að ég fór að vinna eftir sex vikur. Ég var þá skráð í 13 daga vinnutörn og þegar meiri hluta hennar var lokið hitti ég stóma- lækni sem horfði á mig og sagði: „Þú ert að fara í veikindaleyfi í eitt ár.“ Ég svaraði því neitandi og hún benti á að ég væri augljóslega búin á því og stakk þá upp á hálfu ár sem ég líka neitaði. Hún sagði þá: „Ókei, þá þrjá mánuði?“ Ég var að prútta við lækninn minn,“ segir Sigríður og hlær. „Hún sá bara niðurbrotna konu.“ Vann aldrei úr neinu Sigríður hafði verið greind með áfallastreituröskun nokkru áður. „Ég hafði verið í sambandi í þrjá- tíu ár og þar þolað töluvert andlegt of beldi. Ég sótti um skilnað árið 2014 en honum lauk þó ekki fyrr en sex árum síðar og það tók á. Ég greindist með krabbamein í læri árið 2010 og svo voru það þessar tvær fæðingar auk þess sem for- eldrar mínir létust bæði þegar ég var ung kona.“ Áföllin höfðu því verið mörg og Sigríður viðurkennir að hafa ekki endilega unnið úr þeim fyrr en eftir að greiningin um áfallastreiturösk- un kom til. „Ég vann aldrei úr neinu. Þegar mamma dó tók ég einn dag í frí frá vinnu og svo bara mætti ég,“ rifjar hún upp. „Nú er ég aftur á móti búin að vera í mikilli sjálfsvinnu, bæði hjá Kvennaathvarfinu og hjá sálfræðingum.“ Sigríður segir undanfarið ár hafa tekið á en hún jafnframt lært margt. Það hafi verið mikill lærdómur í því að sjá hvernig vinirnir brugðust við mótlætinu en það hafi hún ekki endilega getað séð fyrir. „Vinskapur er mjög f lókið fyrir- bæri og maður getur ekki gert kröf- ur til vina sinna. En maður stendur og fellur með sjálfum sér og það er eins gott að elska sjálfan sig. Það er eins gott að lifa sínu lífi.“ Fordómar gegn sjálfri sér Sigríður hefur verið í veikindaleyfi frá því í október sem svo varð til þess að hún sagði upp starfi sínu. Starfi sem henni líkaði mjög vel í en var of mikil álagsvinna. „Ég þurfti að syrgja það að segja upp vinnu sem ég brenn fyrir. Það var ákveðinn ósigur. En svona er lífið, tímabil sem maður fer í gegnum. Fyrstu vikurnar og mánuðirnir eftir aðgerðina fóru bara í skömm. Heilsuskömm. Fyrirbrigði sem ég er búin að uppgötva – ég veit ekki einu sinni hvort það er til. Foreldrar mínir voru mjög fullorðnir þegar þeir áttu mig, ég er langyngst minna systkina og er því í raun á milli kyn- slóða. Ég er alin upp við að maður standi sig, gagnvart maka og vinnu- veitanda. Ég átti að vera iðin og ég er það og það er gott að því leyti að það hefur hjálpað mér í mínum bardög- um að leita mér hjálpar. En ég var með fordóma gagnvart sjálfri mér, því ég er ekki undir sæng með háan hita en þó í veikindaleyfi. En ég þakka fyrir þetta ár sem ég var föst heima. Þó það hafi verið erfitt. Það er svo mikil klisja en það er eins og maður þroskist ekki fyrr en maður lendir í einhverjum andskotanum.“ Bjargar geðheilsunni „Ég lærði það núna að ég þarf ekki að skammast mín fyrir það sem ég bið ekki um. Sum áföll sem við lendum í eru þó vegna þess að við völdum rangt, en það heitir að vera mannlegur. Bentu mér á þann sem alltaf velur rétt. Ég hef valið stórar áskoranir eins og að skilja, en þær vel ég sjálf því mig langar að finna drauma mína. Ég veit að einhverjir hugsa: „Hvernig getur hún verið að fara að synda Ermarsundið ef hún er í veikindaleyfi frá vinnu?“ En þetta er eitthvað sem bjargar geðheilsu minni. Vill viðkomandi frekar að ég sitji heima og horfi á Netflix og borði popp? En þetta er líklega sagt í hugsunarleysi.“ Ermarsundið meira en markmið Sigríður stundar eins og fyrr segir mikla útivist og það var í einni göngunni sem boðsund yfir Ermar- sundið kom til tals en kona í göngu- hópnum hafði skráð sig ásamt sínum hóp til leiks. „Að synda yfir Ermarsundið er nokkurra ára ferli enda strangar reglur og þarf að kaupa sundrétt með miklum fyrirvara. Hópurinn sem ég er að fara með hafði pantað fyrir þremur árum og hefur æft síðan. Fyrir rúmu ári sagði ég við þessa vinkonu að ef einhver dytti út mætti hún hafa mig í huga.“ Stuttu síðar var Sigríður komin á fund með hópnum. „Þær voru sex og ein hætti við af persónulegum ástæðum og þá var ég til í slaginn. Þetta er búið að vera magnað ferli og þó að við viljum að sjálfsögðu synda þetta vitum við að allt getur gerst, lífið getur gripið inn í og stoppað þetta sund af. En við erum orðnar svo þéttur hópur eftir allar æfing- arnar, ólíkar konur með ólíkan bak- grunn sem þekktust lítið fyrir. Þetta spannst út í að verða mikið meira en bara markmiðið.“ Fyrsti stómaþeginn Hópurinn flýgur utan þann 30. maí næstkomandi og á fyrsta sundrétt dagana 3. til 10. júní. „Svo um leið og aðstæður og veður leyfa erum við fyrstar til að fara út.“ Sigríður segir hópinn, sem er á aldrinum 39 til 57 ára, hafa æft vel bæði tækni og þol. „Við erum búnar að undirbúa okkur mjög mikið andlega enda snýst þetta mikið um það.“ Í undirbúningnum kom í ljós að Sigríður verður fyrsti stómaþeginn sem syndir Ermarsundið. „Það er ein á leiðinni á næsta ári og ég er óvart að eyðileggja fyrir henni,“ segir hún og hlær. Hún óttast ekki áskorunina „Það að vera með stóma er ekki alltaf auðvelt enda stjórna ég ekki meltingunni og ekki get ég haldið í mér. Ég þarf að hafa nægar birgðir með mér af réttum vörum og þar hefur Icepharma komið sterkt inn. Við skrifuðum undir styrktarsamn- ing og ég fæ alla þá aðstoð og ráðgjöf sem ég mögulega þarf fyrir sundið.“ Eins og fyrr segir hefur Sigríður sagt upp starfi sínum á Landspítala en það gerði hún að læknisráði. „Hún sagði að ég væri hvorki með heilsu né hendur í það. Ég sagði upp og hef ráðið mig á annan stað þar sem ég hef störf undir lok sum- ars. Ég verð verkefnastjóri klínískrar kennslu læknanema við HÍ. Ég var mjög hreinskilin í umsóknarferlinu og mér var boðið að komið væri til móts við mig.“ Hamingjan að vera sáttur Tímann frá vinnu hefur Sigríður augljóslega nýtt vel. „Ég hef verið mikið ein undan- farið og þá hefur maður tíma til að horfast í augu við djöfla sína. Ég hélt ég væri búin að því enda alltaf verið með annan fótinn í einhverri sjálfsvinnu en það er eins og við gefum okkur ekki tíma til að kafa almennilega djúpt í sárin okkar. Við erum alltaf í slökkvistarfi, að lesa sjálfshjálparbók eða einhverja frasa á Facebook. Lifðu lífinu núna! Hvað er að lifa lífinu núna? Ég þoli ekki heldur frasann að lifa og njóta. Fólk heldur að það sé bara að fara út að borða og í nudd. Það getur vel verið að það henti sumum en í mínum huga snýst þetta bara um að vera til. Taka jafn fagnandi á móti erf iðleikum og gleðistundum. Ég get varla sagt þetta því þetta hljómar svo klisjukennt en þegar ég vakna á morgnana hugsa ég: „Vá! Ég er hérna megin! Ég get farið fram úr, hitað mér kaffi og klappað kisunum mínum. Ég er frjáls og get gert allt það sem ég vil.“ Hamingjan er í mínum huga ekki það að vera alltaf glaður. Ég er líka hamingju- söm þegar ég er döpur enda gleði og sorg tilfinningar sem koma og fara og vara ekki að eilífu. Hamingjan er bara að vera sáttur við lífið. Ég er ekki endilega sátt við hegðun allra gagnvart mér en það bara er ekki mitt.“ Ekki öll fötlun sýnileg Sigríður vill að fram komi að hún samþykkti viðtal því hún vill hjálpa þeim sem eru með stóma og þora ekki að gera það sem þá dreymir um. Hún vill líka uppræta fordóma. „Það er ekki öll fötlun sýnileg og á þessum stutta tíma sem ég hef verið með stóma hef ég lent í ýmsu og heyrt af öðru. Sem dæmi þá þurfum við að nota klósett fyrir fatlaða,“ segir Sigríður og sýnir mér skilríkin sem sýna að hún sé fötluð og megi nota aðstöðu fyrir fatlaða. „Sjálf hef ég fengið athugasemdir fyrir það og vinkona mín lenti eitt sinn í árás í Leifsstöð. Hún hafði farið inn á klósett fyrir fatlaða og manneskja í hjólastól látið kalla á öryggisvörð sem opnaði á hana þar sem hún var að skipta um poka. En við þurfum aðstöðu til þess.“ En skilaboðin eru víðtækari. „Þó þú sért að verða sextugur eða sjötugur þá geturðu ýmislegt. Finndu hvað þú brennur fyrir og þar næst ferðu í að leita leiða til að framkvæma drauminn.“ ■ Sigríður vill upp- ræta fordóma gegn fólki með stóma. MYND/ELÍN LAXDAL Bárurnar ætla yfir Ermarsundið í byrjun júní. Hér eru þær: Bjarnþóra Egilsdóttir, Elsa Valsdóttir, Guðmunda Elíasdóttir, Harpa Leifsdóttir, Sigríður og Jórunn Atladóttir. MYND/ELÍN LAXDAL Eftir skilnaðinn sótti Sigríður ýmis námskeið og lærði meðal annars að kafa, hér er hún í Silfru. MYND/ÞRÖSTUR NJÁLS Ég veit að einhverjir hugsa: „Hvernig getur hún verið að fara að synda Ermarsundið ef hún er í veikindaleyfi frá vinnu?“ En þetta er eitthvað sem bjargar geðheilsu minni. Við erum alltaf í slökkvistarfi, að lesa sjálfshjálparbók eða einhverja frasa á Facebook. Lifðu lífinu núna! Hvað er að lifa lífinu núna? 28 Helgin 7. maí 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.