Fréttablaðið - 07.05.2022, Blaðsíða 39
hagvangur.is
hagvangur.is
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Starfshlutfall er 100%. Vakin er athygli á
stefnu Sveitarfélagsins Árborgar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá sveitarfélaginu og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Umsóknarfrestur er til 17. maí 2022. Umsóknum skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá, auk kynningarbréfs þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Nánari upplýsingar veita Þorsteinn Hjartarson, sviðsstjóri fjölskyldusviðs, thorsteinnhj@arborg.is eða í síma 480-1900 og Yrsa Guðrún
Þorvaldsdóttir hjá Hagvangi, yrsa@hagvangur.is.
Fjölskyldusvið sveitarfélagsins Árborgar auglýsir lausa til umsóknar
stöðu skólastjóra Barnaskólans á Eyrarbakkka og Stokkseyri. Við
leitum að öflugum og farsælum leiðtoga til að stýra framsæknum skóla
í ört stækkandi sveitarfélagi. Ráðið verður í stöðuna frá 1. ágúst 2022
eða eftir nánara samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið
• Veita skólanum faglega forystu
• Virk þátttaka í þróun og skipulagi skólastarfs í Árborg
• Stjórnun og ábyrgð á daglegum rekstri skólans
• Samstarf við fjölskyldusvið og ýmsa aðila skólasamfélagsins.
Menntunar- og hæfnikröfur
• Leiðtogahæfni, metnaður og áhugi á skólaþróun er skilyrði
• Leyfisbréf grunnskólakennara og kennslureynsla á grunnskólastigi
er skilyrði
• Þekking og árangursrík reynsla af rekstri og stjórnun er skilyrði
• Framhaldsmenntun í stjórnun eða uppeldis- og kennslufræðum
er æskileg
• Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti
• Sérstök áhersla er lögð á að viðkomandi búi yfir lipurð í samstarfi
og mannlegum samskiptum
Skólastjóri Barnaskólans á
Eyrarbakka og Stokkseyri
Í Barnaskólanum á Eyrarbakka og Stokkseyri eru
um 150 nemendur í 1.-10. bekk. Kjörorð skólans
er Jákvæðni – Metnaður – Virðing – Heiðarleiki.
Skólinn er heilsueflandi grunnskóli þar sem
skapandi greinar fá mikið vægi og gott samstarf
er við leikskólana. Einnig er lögð áhersla á góða
samvinnu við heimilin og Erasmus+ verkefni,
m.a. verkefnið Undur vatns í náttúru og vísindum.
Nánari upplýsingar um skólann má finna á vef
hans, barnaskolinn.is
Góð samvinna starfsfólks, nemenda, foreldra og
annarra samstarfsaðila skólans er lykill að árangri.
Skólar og fjölskyldusvið sveitarfélagsins vinna
að styrkingu heildstæðrar nærþjónustu við börn,
foreldra og skóla. Áhersla er lögð á snemmtækan
stuðning, öflug tengsl skóla og skólastiga og
skólaþróunarverkefni sem unnin eru í anda
lærdómssamfélagsins.
Sótt er um starfið
á hagvangur.is