Fréttablaðið - 07.05.2022, Blaðsíða 64
Staðurinn
er
afskekktur
og ljós-
mengun
mjög lítil.
Hallgrímur Tómas Ragnars-
son hefur vakið athygli fyrir
landslagsljósmyndun. Hann
er viðskiptafræðingur frá
H.Í. og með MBA-gráðu frá
alþjóðaskólanum í San Diego
í Kaliforníu. Hallgrímur bjó
um árabil í Bandaríkjunum
ásamt konu sinni, Önnu
Haraldsdóttur íþróttakenn-
ara.
Hallgrímur og Anna fluttu heim
ásamt þremur börnum eftir alda-
mótin en hafa þó enn annan fótinn
vestan hafs. Hallgrímur hefur
komið að stofnun og rekstri fyrir-
tækja í nokkrum löndum og hefur
meðal annars þróað hugbúnað
sem er leigður til fyrirtækja um
allan heim. Hjónin hafa heimsótt
um 100 lönd en hafa hvergi nærri
svalað þrá sinni til að kynnast
jarðarkúlunni.
Aðspurður segir Hallgrímur
að hann hafi gengið í Golfklúbb
Reykjavíkur ásamt nokkrum
vinum fyrir 43 árum og strax kom í
ljós fullkominn skortur á hæfileik-
um. En gleðina hefur ekki vantað
og saman standa vinirnir fyrir
einu elsta golfmóti landsins og
trúlega með lengsta heitið: Masters
Private Golf Tournament.
Hallgrímur segist jafnframt
vera mikill áhugamaður um
hvers konar tónlist, en hann sé
því miður bæði laglaus og takt-
laus og það hafi helst staðið í vegi
fyrir glæstum tónlistarframa.
Fyrsti launaseðillinn var notaður
til kaupa á forláta tenór-sax en
tónlistarkennarinn endurgreiddi
námsgjaldið og bað Hallgrím
um að ónáða sig ekki frekar. Að
áeggjan móður sinnar var hann í
læri hjá Heiðari Ástvaldssyni við
enn minni frama. Jafnframt sé
hann sögumaður sem finnst engin
góð saga eiga skilið að vera sögð
aðeins einu sinni og hafi börn hans
haft talsverðan ama af því.
„Það hefur gengið illa að upp-
fylla ósk barna minna að syngja
hvorki né dansa opinberlega,“ segir
hann og bætir við að hann hafi
Fangar gleði náttúrunnar í næturhimni
Myndin, sem er
tekin að nætur-
lagi í Monu-
ment Valley
í Bandaríkj-
unum, er gríðar-
lega falleg.
MYND/HALLGRÍMUR
TÓMAS
Hallgrímur Tómas Ragnarsson ljós-
myndari tekur öðruvísi myndir.
ekki komist í bekkjarliðið í hand-
knattleik í MS þrátt fyrir að aðeins
sjö drengir hafi verið í bekknum.
„Það var víst meiri styrkur í því að
tefla fram 6 manna liði,“ segir Hall-
grímur, sem tekur sig ekki mjög
alvarlega og bætir við að þrátt
fyrir vonbrigðin hafi þetta trú-
lega verið rétt ákvörðun þar sem
andstæðingarnir voru öflugir með
Guðmund Guðmundsson, fram-
tíðarlandsliðsþjálfara, í broddi
fylkingar.
Hallgrímur segir ljósmyndunar-
áráttuna hafa blundað í sér lengi,
en hafi snúist upp í algjöra bilun
fyrir nokkrum árum. Hann sé í
raun ljósmyndari í fullu launa-
lausu starfi. Selur ekki ljósmyndir
sínar en kemur þeim til vina og
vandamanna hvort heldur eftir-
spurn reynist fyrir hendi eða ekki
og bætir við að framboð sé marg-
falt á við eftirspurn.
Dalur minnisvarðanna
Þegar Hallgrímur er beðinn að lýsa
myndinni sem hann tók og birtist
hér, segir hann.
„Monument Valley liggur á
fylkismörkum Arizona og Utah, en
margir kannast við landslagið þar
sem Forrest Gump lauk langhlaupi
sínu. Kvikmyndaleikstjórinn John
Ford og nafni hans Wayne komu
staðnum á kortið fyrir stríð í fjöl-
mörgum kúrekamyndum eins
og nokkur örnefni bera vitni um.
Staðurinn er afskekktur og ljós-
mengun mjög lítil sem gerir hann
tilvalinn til stjörnuskoðunar.
Dalurinn er á verndarsvæði
Navahó-ættbálksins og er opinn
ferðamönnum á daginn gegn vægu
gjaldi. Auðveldlega má komast að
mörgum kennileitum, en öflug
ökutæki þarf til að komast að
þeim afskekktari. Að næturlagi er
eingöngu hægt að ferðast undir
leiðsögn Navahóa. Fara þarf með
gát því hættur eru ýmsar, ekki
síst frá skröltormum. Myrkrið er
svo algjört að ekki sjást handaskil
sem gerir himnafestinguna enn
stórkostlegri. Hnegg villihesta og
stjörnuhrap eykur á upplifunina.
Vetrarbrautin er sjáanleg á
norðurhveli á nýju tungli ef
himinn er heiðskír og nætur
dimmar, einkum frá mars og fram í
september. Með aðstoð smáforrits-
ins Photopills má reikna út afstöðu
Vetrarbrautarinnar frá öllum
stöðum jarðar, hvenær hún rís og
sest og hversu hallandi hún virðist
frá jörðu á hverjum tíma. Miðja
hennar er skærust og er eftirsótt
til ljósmyndunar en er því miður
vart sjáanleg á Íslandi. Það var því
engin tilviljun að ljósmyndarinn
var staddur þarna í eyðimörkinni
einmitt á þessu augnabliki. Fyrr
um daginn var alskýjað og aðstæð-
ur afleitar með moldroki og útlit
var fyrir að langt ferðalag myndi
engu skila. Um lágnættið birti til
og lægði, kjöraðstæður mynduðust
þegar miðja vetrarbrautarinnar
settist í klettana kl. 3 að nóttu, rétt
eins og Photopills ráðgerði.
Vandaverk við ljósmyndunina
Til að halda skerpu er ljósopið tak-
markað við 15 sekúndur með 16
mm linsu og víðasta ljósopi (F2.8)
og miklu ljósnæmi (ISO 4000).
Að öðrum kosti má setja mótor á
þrífótinn sem snýr myndavélinni
með snúningi jarðar og ljósop
haft lengra og ljósnæmi lægra og
skærustu stjörnum samt haldið í
fullri skerpu. Enn önnur aðferð er
sk. stöflun, en þá er fjölmörgum
hraðmyndum skeytt saman. Allar
stillingar eru á hendi ljósmyndar-
ans (manual) og slökkt á suði
(noise reduction).
Önnur ljósmynd er svo tekin
með forgrunn í skerpu og hann
lýstur með sk. Lumecube, en þá má
velja hitastig ljóssins eftir smekk, í
þessu tilfelli 3500 Kalvin. Eyði-
merkurvindurinn hafði myndað
gárur í sandinn og hliðarlýsing
framkallar andstæður ljóss og
skugga, tilvalinn forgrunnur.
Mikilvægt er að lýsingin komi frá
hlið til að skapa dýpt,“ útskýrir
Hallgrímur.
„Að lokum var kletturinn til
hægri lýstur með bílljósum úr mik-
illi fjarlægð til að skapa enn frekari
dýpt og myndunum þremur
blandað saman í myndvinnslu
eftir kúnstarinnar reglum.“
Sjá má ljósmyndina í fullri upp-
lausn á frettabladid.is. Fréttablaðið
mun á næstunni birta fleiri ljós-
myndir Hallgríms Tómasar. ■
við frjókornaofnæmi
Flott þrenna
provision.is
Fæst í öllum
apótekum
6 kynningarblað A L LT 7. maí 2022 LAUGARDAGUR