Fréttablaðið - 07.05.2022, Blaðsíða 37
Kennarasamband Íslands (KÍ) óskar eftir að ráða fulltrúa á upplýsinga- og kynningarsvið.
Starfið er tímabundið til eins árs með möguleika á fastráðningu að þeim tíma loknum.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Starfssvið:
• Greinaskrif, framsetning og uppfærsla efnis í ritum og á miðlum KÍ og aðildarfélaga.
• Umsjón með útgáfu efnis.
• Skipulagning á viðburðum og fundum KÍ.
• Þátttaka í ímyndar- og stefnumótunarvinnu.
• Önnur verkefni í samráði við yfirmann.
Hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
• Reynsla af blaða- eða fréttamennsku er æskileg.
• Áhugi og þekking á skólamálum er kostur.
• Afburða íslenskukunnátta í ræðu og riti.
• Reynsla af textaskrifum.
• Þekking og reynsla af birtingu upplýsinga á samfélagsmiðlum.
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
• Reynsla af ljósmyndun og myndvinnslu er kostur.
Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.
Umsóknarfrestur er til og með 19. maí nk.
Sótt er um starfið á www.vinnvinn.is.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningar-
bréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu
umsóknar og rökstuðningur um hæfni
viðkomandi til að gegna starfinu.
Umsjón með starfinu hafa Auður Bjarna
dóttir (audur@vinnvinn.is) og Garðar Óli
Ágústsson (gardar@vinnvinn.is).
Fulltrúi á upplýsinga og
kynningarsviði
Kennarasamband Íslands var stofnað 1. janúar
árið 2000. Félagsmenn eru ríflega 10.500 og
starfa í leikskólum, grunnskólum, framhalds
skólum og tónlistarskólum.
Kennarasamband Íslands starfar á landsvísu
og innan þess eru átta aðildarfélög. Hlutverk KÍ
er að gæta hagsmuna og réttinda félagsmanna,
fara með samningsrétt um kaup og kjör,
efla fag og stéttavitund, efla skólastarf,
kennaramenntun og starfsþróun félagsmanna.
ILVA leitar að metnaðarfullum og árangursdrifnum verslunarstjóra til að stýra verslun ILVA í Kauptúni.
Verslunarstjóri ber ábyrgð á daglegum rekstri verslunarinnar, mannauðsmálum ásamt því að tryggja
framúrskarandi þjónustu við viðskiptavini. Um er að ræða 100% starf.
Helstu verkefni:
• Ábyrgð á daglegum rekstri verslunar.
• Gerð sölu- og fjárhagsáætlana.
• Yfirsýn yfir lykiltölur úr rekstri.
• Ábyrgð á þjónustu og upplifun viðskiptavina.
• Ábyrgð á útliti og útstillingum í verslun.
• Innkaup og pantanir.
• Önnur tilfallandi verkefni.
Hæfniskröfur:
• Menntun sem nýtist í starfi.
• Reynsla af verslunarrekstri/verslunarstjórn.
• Rík þjónustulund, áhugi og reynsla af starfi í söludrifnu umhverfi.
• Stjórnunarreynsla og hæfni í mannlegum samskiptum.
• Sveigjanleiki, sjálfstæð vinnubrögð og metnaður til að ná árangri.
• Góð íslenskukunnátta.
Umsóknarfrestur er til og með 17. maí nk.
Sótt er um starfið á www.vinnvinn.is.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningar-
bréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu
umsóknar og rökstuðningur um hæfni
viðkomandi til að gegna starfinu.
Umsjón með starfinu hafa Auður Bjarna
dóttir (audur@vinnvinn.is) og Garðar Ó.
Ágústsson (gardar@vinnvinn.is).
Verslunarstjóri
ILVA rekur tvær glæsilegar verslanir með
húsgögn og smávöru. Verslunin á rætur sínar
að rekja til Danmerkur þar sem fyrsta verslun
ILVA var stofnuð árið 1974. ILVA rekur tvær
verslanir í dag, önnur í Kauptúni í Garðabæ og
aðra á Akureyri.
Hjá ILVA starfar öflugur hópur einstaklinga
með fjölbreytta menntun, starfsreynslu og
áhugamál. Nánari upplýsingar er hægt að
finna á www.ilva.is.
ATVINNUBLAÐIÐ 3LAUGARDAGUR 7. maí 2022