Fréttablaðið - 07.05.2022, Page 39

Fréttablaðið - 07.05.2022, Page 39
hagvangur.is hagvangur.is Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Starfshlutfall er 100%. Vakin er athygli á stefnu Sveitarfélagsins Árborgar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá sveitarfélaginu og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Umsóknarfrestur er til 17. maí 2022. Umsóknum skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá, auk kynningarbréfs þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Nánari upplýsingar veita Þorsteinn Hjartarson, sviðsstjóri fjölskyldusviðs, thorsteinnhj@arborg.is eða í síma 480-1900 og Yrsa Guðrún Þorvaldsdóttir hjá Hagvangi, yrsa@hagvangur.is. Fjölskyldusvið sveitarfélagsins Árborgar auglýsir lausa til umsóknar stöðu skólastjóra Barnaskólans á Eyrarbakkka og Stokkseyri. Við leitum að öflugum og farsælum leiðtoga til að stýra framsæknum skóla í ört stækkandi sveitarfélagi. Ráðið verður í stöðuna frá 1. ágúst 2022 eða eftir nánara samkomulagi. Helstu verkefni og ábyrgðarsvið • Veita skólanum faglega forystu • Virk þátttaka í þróun og skipulagi skólastarfs í Árborg • Stjórnun og ábyrgð á daglegum rekstri skólans • Samstarf við fjölskyldusvið og ýmsa aðila skólasamfélagsins. Menntunar- og hæfnikröfur • Leiðtogahæfni, metnaður og áhugi á skólaþróun er skilyrði • Leyfisbréf grunnskólakennara og kennslureynsla á grunnskólastigi er skilyrði • Þekking og árangursrík reynsla af rekstri og stjórnun er skilyrði • Framhaldsmenntun í stjórnun eða uppeldis- og kennslufræðum er æskileg • Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti • Sérstök áhersla er lögð á að viðkomandi búi yfir lipurð í samstarfi og mannlegum samskiptum Skólastjóri Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri Í Barnaskólanum á Eyrarbakka og Stokkseyri eru um 150 nemendur í 1.-10. bekk. Kjörorð skólans er Jákvæðni – Metnaður – Virðing – Heiðarleiki. Skólinn er heilsueflandi grunnskóli þar sem skapandi greinar fá mikið vægi og gott samstarf er við leikskólana. Einnig er lögð áhersla á góða samvinnu við heimilin og Erasmus+ verkefni, m.a. verkefnið Undur vatns í náttúru og vísindum. Nánari upplýsingar um skólann má finna á vef hans, barnaskolinn.is Góð samvinna starfsfólks, nemenda, foreldra og annarra samstarfsaðila skólans er lykill að árangri. Skólar og fjölskyldusvið sveitarfélagsins vinna að styrkingu heildstæðrar nærþjónustu við börn, foreldra og skóla. Áhersla er lögð á snemmtækan stuðning, öflug tengsl skóla og skólastiga og skólaþróunarverkefni sem unnin eru í anda lærdómssamfélagsins. Sótt er um starfið á hagvangur.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.