Fréttablaðið - 07.05.2022, Page 38

Fréttablaðið - 07.05.2022, Page 38
Stjórnandi vefmála BIOEFFECT Við leitum að öflugum stjórnanda með yfirgripsmikla þekkingu og reynslu af vefþróun. Stefna okkar er að fjárfesta enn frekar í þróun og uppbyggingu á vefumhverfi fyrirtækisins. Við viljum efla ásýnd og upplifun viðskiptavina okkar ásamt því að auka sölu og krosssölu. Vefir BIOEFFECT gegna lykilhlutverki í sölu- og markaðsstarfi okkar á heimsvísu. BIOEFFECT rekur eigin vefi en auk þess reka dreifiaðilar um allan heim útgáfur af vef og vefverslun. Umhverfið er því sérstaklega krefjandi. BIOEFFECT fékk tilnefningu til þriggja vefverðlauna SVEF 2021. Menntun og hæfniskröfur • Háskólamenntun sem nýtist í starfi • Yfirgripsmikil þekking af þróun og rekstri vefja og vefverslana • Reynsla af innleiðingu á vef • Reynsla og þekking á Google Analytics er kostur • Reynsla af netmarkaðssetningu og hönnun þjónustuferla er kostur • Þekking á Shopify, Prismic, HTML, CSS og JavaScript er kostur • Mjög gott vald á íslensku og ensku • Frumkvæði, sjálfstæði í starfi og skipulögð vinnubrögð • Metnaður og löngun til að ná árangri Veist þú allt um veröldina á vefnum? BIOEFFECT I Víkurhvarfi 7 I Kópavogi I bioeffect.com I bioeffect.co.uk I bioeffect.is Nánari upplýsingar veitir Elísabet Austmann, framkvæmdastjóri markaðssviðs, elisabet.austmann@bioeffect.com. Sækið um á alfred.is til og með 22. maí 2022. Farið verður með allar upplýsingar sem trúnaðarmál. SÉRFRÆÐINGUR Á FJÁRMÁLASVIÐI Við leitum að metnaðarfullum og talnaglöggum sérfræðingi til starfa á fjármálasviði VIRK. Helstu verkefni • Kostnaðareftirlit og skýrslugerð • Aðstoð við uppgjör og uppsetningu ársreiknings • Greining reglulegra uppgjöra • Aðkoma að gerð fjárhagsáætlunar • Eftirlit og utanumhald ýmissa gagna • Vinna við gerð og þróun árangursmælikvarða • Gæðamál og umbótastarf Menntunar- og hæfnikröfur • Háskólapróf í viðskiptafræði, hagfræði eða sambærileg menntun • Reynsla af fjármálum og notkun bókhaldskerfa • Frumkvæði, fagmennska og skipulagshæfni • Góð færni í Excel • Mjög góð tölvukunnátta • Nákvæmni, jákvæðni og heiðarleiki • Þekking á og reynsla af verkefnastjórnun og gæðamálum • Hæfni í mannlegum samskiptum • Gott vald á íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti Hlutverk VIRK er að efla starfsgetu einstaklinga í kjölfar veikinda eða slysa með árangursríkri starfsendurhæfingarþjónustu. VIRK hefur í samstarfi við fagaðila, fyrirtæki og stofnanir skilað samfélagslegum ávinningi með aukinni þátttöku einstaklinga á vinnumarkaði og er leiðandi í rannsóknum og þróun á sviði starfsendurhæfingar. Að VIRK standa öll helstu samtök launamanna og atvinnurekenda á vinnumarkaði. VIRK er metnaðarfullur vinnustaður þar sem lögð er áhersla á jákvæðan starfsanda og sterka liðsheild. VIRK kappkostar að skapa jákvæða menningu með traustu fagfólki. Gildi VIRK eru fagmennska, virðing og metnaður og er starfsfólk hvatt til að hafa gildin að leiðarljósi í störfum sínum. Nánari upplýsingar um VIRK er að finna á virk.is Upplýsingar veitir Geirlaug Jóhannsdóttir geirlaug@hagvangur.is Umsóknir óskast fylltar út á hagvangur.is Umsóknarfrestur er til og með 18. maí 2022. Umsókn þarf að fylgja starfsferilskrá og einnar blaðsíðu kynningarbréf þar sem á kerfisbundinn hátt er gerð grein fyrir því hvernig viðkomandi uppfyllir hæfnikröfur starfsins. VIRK starfsendur- hæfingarsjóður

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.