Bændablaðið - 24.03.2022, Side 8
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. mars 20228
Framboð og verð á aðföngum
bænda í Evrópu markast nú og
um ófyrirsjáanlega framtíð að
talsverðum hluta af stríði Rússa í
Úkraínu, því drjúgur hluti af því
hráefni sem hefur verið notað til
framleiðslunnar fyrir heimsmarkað
á uppruna sinn í Rússlandi, Úkraínu
og Hvíta-Rússlandi.
Íslenskir söluaðilar aðfanga fyrir
bændur eru sammála um að ekki sé
fyrirsjáanlegur skortur á mikilvægum
aðföngum en miklir óvissutímar séu
fram undan varðandi verðlag – einkum
á fóðri – og líkurnar á gríðarlegum
verð hækkunum muni aukast meðan
stríðið heldur áfram.
Viðskiptaþvinganir á Rússa hafa
nú þegar leitt til mikilla verðhækkana
á hrávöru og hafa um leið þvingað
framleiðendur aðfanga til að leita nýrra
lausna. Gríðarmiklar kornbirgðir hafa
hlaðist upp í Rússlandi og Úkraínu
sem ekki er hægt að koma á markaði.
Í samtölum við aðfangasala
kemur fram að nóg sé til af sáðvöru
og rúlluplasti og svo virðist sem
verðhækkanir á þessum aðföngum
séu ekki orðnar verulegar.
Langtímasamningar SS
Elías Hartmann Hreinsson, deildar
stjóri búrekstrardeildar Sláturfélags
Suðurlands (SS), segir að vegna
langtímasamninga sem SS hafi gert
sé góð staða á framboði aðfanga fyrir
bændur næstu mánuði.
„Varðandi fóður, þá gerðum við
í nóvember á síðasta ári samning
við okkar framleiðanda í Danmörku
til 11 mánaða og tryggjum okkur
því fast verð á því tímabili. Fóðrið
sem við kaupum er allt frá DLG í
Danmörku og það er framleitt þar,
en nokkrar hækkanir urðu við síðustu
verðbreytingar vegna þróunar á
heimsmarkaði.“
Elías segir að áburðurinn sé einnig
tryggður, sem hefur verið pantaður
hjá SS.
„Eitthvað af honum er kominn
og annað er á leiðinni. Aftur á móti
veit maður ekkert hvað verður svo
síðar, því áburðarframleiðslan er
auðvitað í gríðarlegri óvissu í ljósi
stríðsástandsins. Ég veit að Yara,
okkar samstarfsaðili, hefur verið
að taka fosfór úr eigin námum í
Finnlandi, köfnunarefnisáburðurinn
er framleiddur í Þýskalandi, og
köfnunarefni í tví og þrígildan áburð
er framleitt í verksmiðjum Yara
í Noregi og Finnlandi. En svo eru
stórir framleiðendur á áburði sem
hafa fengið fosfór og köfnunarefni í
Rússlandi og kalí frá HvítaRússlandi.
Yara tók áður kalí frá HvítaRússlandi
en vegna viðskiptabanns hefur
fyrirtækið snúið sér að Kanada, en
það er óhætt að segja að verð á fosfór
og kalí hafi hækkað gríðarlega á
síðustu vikum.
Einhverjir áburðarframleiðendur
hafa verið að taka fosfór frá Marokkó,
en það er annars eðlis – upprunnið úr
sjó og ríkt af kadmíumi. Vandamálið
er að í Evrópu fyrir utan Norðurlöndin
eru ekki hámarksgildi fyrir kadmíum
innihald í áburði og þó að það hafi ekki
mikil áhrif á jarðveginn til skamms
tíma þá safnast þetta upp og getur
mengast mjög,“ segir Elías.
Á vef Matvælastofnunar er bent á
að kadmíum sé þungmálmur og með
endurtekinni notkun á kadmíumríkum
áburði skapast hætta á skaðlegum
áhrifum vegna aukinnar upptöku
plantna á efninu.
Verðhækkanir verða á sáðvöru
Elías segir að framboð á sáðvöru hafi
ekki verið eins mikið og áður.
„Það má búast við gríðarlegum
verðhækkunum á sáðvöru.
Balkanlöndin hafa verið að framleiða
sáðvöru fyrir þessi lönd eins og
Rússlandi og Úkraínu, þar sem stór
hluti ræktunar fyrir Evrópumarkað
hefur farið fram. En núna veit maður
ekki hvernig það mun þróast.“
Hann segir að engin spurning
sé hins vegar um það að nú sé lag
fyrir íslenska bændur að fara í eigin
kornrækt – og fyrir kornbændur að
auka við sig.
„Kornverð kemur til með að hækka
mikið. Mér finnst eins og það sé hugur
í bændum.
Við sjáum núna líka óhemjumikla
aukningu í sölu á kalki og það virðist
hafa náð í gegn að við það að laga
sýrustig jarðvegsins nýtist áburðurinn
miklu betur. Til að gefa dæmi um
það hversu góða raun það getur
gefið, er að það er eitt afurðamikið
kúabú hér á Suðurlandi sem hefur
náð sýrustiginu upp í 6,3 til 6,5 með
því að kalka reglubundið á hverju ári
í mörg ár. Þar er nú dreift áburði á
við gott sauðfjárbú. Mér finnst að
það mætti huga betur að ýmsum
slíkum þáttum búrekstrarins, betri
kostnaðargreiningum og nákvæmari
útreikningum á fóðurgildi hverrar
heyrúllu til dæmis.“
Bygg og maís hækkað
um 30-40 prósent
Úlfur Blandon, framkvæmdastjóri
sölu og markaðssviðs hjá Fóður
blöndunni, segir stöðuna hjá
fyrirtækinu ágæta í dag hvað varðar
fóður og áburðinn hafi verið verið búið
að tryggja áður en stríðið skall á.
„Við getum í raun keypt það sem
vantar af fóðri og enginn skortur er,
en það er reyndar allt miklu dýrara.
Bygg og maís hefur hækkað um 30 til
40 prósent á undanförnum dögum og
ástæðan fyrir því er kannski aðallega
sú að öll kornsíló í Rússlandi og
Úkraínu eru full af bygg og maís.
Óvissa í þessum málum hefur mikil
áhrif á verð, Þeir koma þessu ekki úr
landi og á markað – og því hækkar
heimsmarkaðsverð.
Við höfum hvatt bændur til að
fara út í kornrækt, sem hafa tök á því,
og finnum fyrir áhuga. Bændur eru
að tryggja sér sáðvöru. Það reyndar
leit ekkert vel út fyrir tveimur vikum
síðan varðandi framboð á sáðvöru en
síðan hefur ræst úr því og við fengum
það magn sem við vorum með í fyrra
og meira til,“ segir Úlfur og bendir á
að verðhækkun á sáðvöru sé í raun
ekki enn komin inn þó hún sé einhver
nú þegar.
Olían og mjólkin
„Áburðurinn okkar er kominn yfir til
Finnlands og það er búið að sekkja
hann nánast allan. Hann kemur svo í
tveimur sendingum, í næstu viku og
svo í lok mánaðarins. Hann er svona að
mestu upprunninn frá Rússlandi – eins
og stór hluti af öllum áburði á markaði
hér í Evrópu. Sérstaklega fosfórinn
og kalí,“ segir Úlfur sem hefur ekki
áhyggjur af yfirvofandi vöruskorti á
áburði – til dæmis á næsta ári.
„Við höfum aðallega áhyggjur
af hækkandi áburðarverði sem
búvöruverð nái ekki að halda í
við. Einu sinni var það þannig að
olíuverð og mjólkurverð hélst alltaf
í hendur – og það var þannig í mörg
ár. Mjólkurlítrinn í dag út úr búð
kostar um 176 krónur á meðan olían á
bensínstöð kostar í dag yfir 300 krónur
lítrinn, það er því miður staðreyndin.
Það er að mörgu að huga í þessu en
við sjáum það og vissum að bændur
skera ekki niður fóður í kýrnar sínar,
en spara frekar við sig í endurræktun
túna og slíku – og huga vel að betri
nýtingu áburðar.“
Áskoranir í verðlaginu
Jóhannes Baldvin Jónsson, deildar
stjóri vöruþróunar og ráðgjafar hjá
Líflandi, tekur undir með Úlfi um að
verðhækkanir á fóðri kunni að verða
umtalsverðar á næstu misserum,
sem skýrast af miklum hækkunum á
hrávöru til fóðurgerðar.
„Það er ekki fyrirsjáanlegur skortur
en okkar áskoranir verða í verðlaginu
því það er mikill titringur á mörkuðum.
Fyrir ástandið sem skapaðist við
innrás Rússa í Úkraínu höfðu þegar
átt sér stað nokkrar hækkanir vegna
ýmiss konar þróunar á heimsmarkaði,
meðal annars vegna verðhækkana á
áburði, hækkunar á skipafrakt og fleiri
þáttum.“
Áburðinum dreift í apríl
Áburði Líflands verður dreift til
viðskiptavina í apríl.
„Okkar áburður er núna tilbúinn
á Bretlandseyjum og fer í skip eftir
tæpar tvær vikur, en hráefni í hann
kemur víða að og meðal annars frá
Rússlandi. Hrávaran var öll trygg
og komin til Skotlands þegar stríðið
braust út.“
Í ljósi nýlegra tíðinda af viðskipta
banni á einn eigenda PhosAgro, eins
helsta fosfórframleiðanda Rússlands,
má búast við því áburðarkreppan verði
enn harðari ef heldur fram sem horfir.
Með viðskiptabanninu lokaðist fyrir
allan útflutning á fosfór frá PhosAgro
til Evrópu.
„Þetta getur dregið dilk á eftir sér
og snert okkur beint því þessi fosfór frá
Rússlandi inniheldur lítið af kadmíum
og hentar því vel hér á Íslandi þar
sem ströng skilyrði eru um hámarks
kadmíuminnihald áburðar. Við höfum
hvatt stjórnvöld til að rýna þetta mál og
taka skref í því að koma í veg fyrir að
hér verði hugsanlegur skortur á þessu
mikilvæga innihaldsefni áburðar í
náinni framtíð,“ segir Jóhannes.
Óvissa með skeljasand
til kölkunar túna
Jóhannes bendir á að vegna mikilla
hækkana á áburði sé kölkun túna og
ræktarlands mikilvægur liður í að
bæta nýtingu áburðarefna og auka
uppskeru. Nú sé hins vegar sú staða
uppi að námaleyfi Björgunar, eina
vinnsluaðila skeljasands í landinu,
hafi ekki fengist endurnýjað og ekki
fyrirséð með frekari dælingu hans.
„Birgðir þeirra eru nú á þrotum
sem gerist á versta tíma þegar
bændur þurfa nú sem aldrei fyrr
að beita öllum tiltækum ráðum
til að auka framleiðni nytjalands.
Við hjá Líflandi höfum hvatt
matvælaráðuneytið og Bænda
samtökin til þess að beita sér í því
að lausn finnist á þessu máli, enda er
skeljasandur eina íslenska jarðefnið
sem raunhæft er að nýta í þessum
tilgangi,“ segir Jóhannes.
Bændur hugleiða kornrækt
„Það er alveg ljóst að bændur fara
fyrr af stað í sínum hugleiðingum
varðandi sáðvörur,“ segir Jóhannes,
spurður um hug bænda til eigin
kornræktar.
„Það má greina aukinn áhuga
á kornrækt og ég tel hyggilegt að
bændur ígrundi það að bæta í þar. Það
hafa orðið lítils háttar verðhækkanir
á sáðkorni en ekki miklar breytingar
til að mynda á grasfræi, sem skýrist
af því að samningar um verð á
þessum tegundum voru gerðir á
seinni hluta síðasta árs.
Hluti af sáðvörunni er þegar
kominn og hluti hennar er á leiðinni.“
/smh
FRÉTTIR
Reykjavík Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is
Akureyri Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
Lely Center Ísland
Landbúnaðarleikföng
Elías Hartmann Hreinsson, deildar
stjóri búrekstrardeildar SS.
Úlfur Blandon, framkvæmdastjóri hjá
Fóðurblöndunni.
Jóhannes Baldvin Jónsson, deildar
stjóri hjá Líflandi.
Viðskiptaþvinganir á Rússa hafa nú þegar leitt til mikilla verðhækkana á hrávöru og hafa um leið þvingað framleiðendur
aðfanga til að leita nýrra lausna. Gríðarmiklar kornbirgðir hafa hlaðist upp í Rússlandi og Úkraínu sem ekki er hægt
að koma á markaði.
Aðfangamál í ljósi stríðsátaka í Úkraínu:
Enginn fyrirsjáanlegur skortur en útlit
fyrir umtalsverðar verðhækkanir á fóðri
– Greina má aukinn áhuga bænda á eigin kornrækt