Bændablaðið - 24.03.2022, Síða 16
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. mars 202216
Umræðan um samþjöppun og
hagræðingu í íslenskum sjávar
útvegi á síðustu árum og áratug
um hefur einkum snúist um
fiskiskipaflotann, en þessi þróun
er ekki síður afgerandi í fiskiðn
aðinum.
Í fiskvinnslugeiranum er sam
þjöppunin mest áberandi í vinnslu
uppsjávarfisks. Þeim stöðum á
landinu þar sem starfræktar eru
fiskimjöls og lýsisverksmiðjur
hefur fækkað úr nítján árið 1992
í níu árið 2019 og á þeim fimm
stöðum þar sem mest er unnið eru
framleidd 88% af öllu lýsi og mjöli.
Færri og stærri
uppsjávarfrystihús
Söltun á síld hefur nær lagst af
og er nú eingöngu stunduð hjá
Loðnuvinnslunni á Fáskrúðsfirði,
en þess í stað hefur framleiðsla á
frystum uppsjávarafurðum aukist
verulega. Jafnframt hefur fækkað
þeim frystihúsum sem vinna þessar
afurðir. Árið 1992 voru þau á 28
stöðum á landinu en á 17 stöðum
árið 2019. Frystihús á fimm stöðum
framleiða langmest af frystu
uppsjávarafurðunum.
Þessar upplýsingar er að finna
í skýrslunni „Staða og horfur í
íslensk um sjávarútvegi og fiskeldi“,
sem atvinnuvega og nýsköpunar
ráðuneytið lét taka saman á síðasta
ári. Hér á eftir verða áfram raktar
upplýsingar úr þessari skýrslu.
Saltfiskvinnslum fækkar
Enda þótt fyrirtækjum sem vinna
frystar botnfiskafurðir hafi ekki
fækkað mikið hefur átt sér stað mikil
samþjöppun í vinnslu. Á þeim 10
stöðum þar sem mest er verkað eru
nú framleiddir þrír fjórðu af öllum
botnfiskafurðum landsmanna.
Saltfiskverkunarhúsum hefur
bæði fækkað og hlutur þeirra stærstu
orðið stærri. Þau voru á 49 stöðum
árið 1999 en á 26 stöðum árið 2019
og hlutur 10 stærstu staðanna farið
úr 70% í 90%. Söltun hefur dregist
mikið saman á þessu tímabili. Árið
1999 voru t.d. 112 þúsund tonn af
þorski unnin í saltfisk, en árið 2019
hafði magnið minnkað í 41 þúsund
tonn. Aftur á móti hefur vinnsla á
léttsöltuðum fiski aukist en hann er
fluttur út sem lausfryst vara.
Aukin áhersla á ferskfiskvinnslu
Önnur mikilvæg breyting er stóraukin
framleiðsla á ferskum flökum og
flakabitum sem eru verðmætasti
hluti þorskafurða. Jafnframt hefur
dregið úr flutningskostnaði þessarar
vöru. Fyrir 20 árum var nær ekkert
flutt út af ferskum þorskflökum og
bitum með skipum heldur einungis
með flugi. Framfarir í flutningstækni
og bætt geymsluþol hefur opnað
möguleika á skipaflutningum. Nú
er svo komið að jafnmikið er flutt
út af ferskum afurðum með skipum
og með flugvélum.
Staðsetning fiskvinnslufyrirtækja
Fyrirtæki sem selja ferskar unnar
fiskafurðir með flugi eða skipum
eða óunninn fisk með gámum til
útlanda hafa ótvíræðan hag af því
að staðsetja sig nálægt flugvöllum
eða höfnum.
Árið 2019 voru 34% af
öllum botnfiski sem seldur var
ferskur með flugi unninn af
fiskvinnslum sem staðsettar voru
á höfuðborgarsvæðinu og fyrirtæki
á Suðurnesjum seldu 22%. Þessi
fyrirtæki eru bæði staðsett nálægt
stærsta millilandaflugvelli og
stærstu höfn landsins. Við Eyjafjörð
eru fyrirtæki sem seldu 24% af öllum
ferskum fiskafurðum og fluttu þær
beint í skip í millilandahöfnum á
Norðurlandi, Austurlandi og á
höfuðborgarsvæðinu, eða í flug á
Keflavíkurflugvelli.
Samdráttur í sjófrystingu
Samfara aukinni framleiðslu
á ferskum fiskafurðum hefur
orðið verulegur samdráttur í
frystingu á sjó. Sjófrysting var
árið 2019 komin niður í 23% af
heildarbotnfiskaflanum en var 32%
árið 2010.
Frystitogurum hefur fækkað,
sér í lagi þeim sem veiða þorsk.
Samdráttinn í sjófrystingunni má að
hluta rekja þess hve landvinnslan
hefur þróast hratt með aukinni
tæknivæðingu. Nýting á aflanum er
mun betri í landvinnslu þótt þyngst
vegi þó trúlega hár launakostnaður
og hátt veiðigjald á sjófrystar afurðir,
að því er segir í skýrslunni.
Bent er á að framleiðsla á
verðmætari afurðum í landi hafi
einnig náð lengra með aukinni
sjálfvirkni. Erfitt sé að koma við
hátæknivinnslu hliðarhráefnis
um borð í skipi og því ekki hægt
að nýta lifur, hrogn, roð, hausa,
hryggi, afskurð, maga og innyfli til
framleiðslu á niðursoðnum afurðum,
lýsisafurðum, snyrtivörum, lyfjum,
ensímum, bragðefnum og fæðu
bótar efnum, svo dæmi séu nefnd.
Krosseignarhald
Meðal stærstu sjávarútvegs fyrir
tækja landsins er mikil fjölbreytni,
bæði hvað varðar áherslur í starf
semi og hve stóran hluta
virðiskeðjunnar þau ráða yfir. Bent
er á í skýrslunni að mörg dæmi séu
um krosseignarhald milli stærri
og minni fyrirtækja sem auki
sveiflujöfnun. Fyrirtæki sem sérhæfi
sig annars vegar í botnfiskveiðum
og vinnslu og önnur sem sérhæfi
sig í uppsjávarveiðum og vinnslu
eigi hvort í öðru. Slíkt stuðli að
stöðugleika í rekstri og dragi úr
fjárhagslegri og rekstrarlegri áhættu.
Auk þess hafi efnahagslegur
styrkur stærstu fyrirtækjanna gert
þeim kleift að ekki aðeins kaupa,
heldur einnig taka þátt í að þróa
nýjustu tækni í veiðum og vinnslu
í samvinnu við innlend tækni og
rannsóknafyrirtæki.
Fækkun starfa í fiskvinnslu
Samfara fækkun og stækkun
fiskvinnslu húsa og síaukinni tækni
væðingu hefur störfum í fiskvinnslu
fækkað um helming á síðustu fjórum
áratugum. Árið 1982 voru ársverkin
9.800. Árið 2014 voru þau tæplega
6.000 og árið 2019 komin niður
í 5.000.
Í nefndri skýrslu segir að
þróun in allra síðustu árin
eigi sér tvær meginskýringar.
Annars vegar hafi sjálfvirkni
og aukin vél og tæknivæðing
í stærstu fiskvinnslu húsunum
hugsanlega fækkað atvinnu
tækifærum og hins vegar hafi aukinn
útflutningur á óunnum fiski minnkað
eftirspurn eftir vinnuafli.
Fiskvinnslan ekki á leið úr landi
Það er mat skýrsluhöfunda að enda
þótt einstaka vinnslugreinar geti átt í
erfiðleikum með að standast erlenda
samkeppni sé samt ekki ástæða til
þess að óttast að fiskvinnsla flytjist
í stórum stíl til útlanda.
Til þess sé samkeppnisstaða stóru
íslensku fyrirtækjanna einfaldlega of
sterk. Lítil ástæða sé því til að halda
að útflutningur hérlendis þróist með
svipuðum hætti og í Noregi þar sem
útflutningur á óunnum þorski var um
51% árið 2020.
Heimild:
Staða og horfur í íslenskum
sjávarútegi og fiskeldi. Höfundar:
Sveinn Agnarsson prófessor,
Sigurjón Arason prófessor,
dr. Hörður G. Kristinsson og
dr. Gunnar Haraldsson.
Núna er rétti tíminn til að
setja vorlaukana í potta og
mold. Vorlaukar eru settir
niður að vori og blómstra að
sumri og fram á haust.
Eftir að vorlaukar eru komnir
í pott á að setja pottinn á bjartan
stað. Þegar fyrstu blöðin koma í
ljós á að flytja pottinn á svalari
stað en gæta þess að birta sé
nóg. Gott er að gefa áburð þegar
vöxturinn er kominn vel af stað
og plantan hefur náð vænum 10
sentímetrum.
Seinni hluta maí eða í byrjun
júní er kominn tími til að herða
jurtirnar með því að setja
pottinn út á svalir eða tröppur
í 2 til 3 klukkutíma á dag.
Útiverutíminn er svo lengdur
smám saman þar til hætta á
næturfrosti er liðinn hjá. Eftir
það er óhætt að hafa plönturnar
úti allan sólarhringinn.
Vorlaukar, hnýði og forða
rætur þurfa bjartan og
skjólgóðan stað í garðinum svo
að blómin fái notið sín. Jurtir
í pottum er auðvelt að flytja
í skjól, gerist þess þörf. Það
auðveldar þeim lífið og eykur
blómgunina.
Fæstir vorlaukar lifa
veturinn af úti en þeir sem vilja
rækta þær áfram eiga að láta
blöðin sölna að fullu og taka
svo pottinn inn fyrir fyrsta
frost. Geyma skal pottinn með
forðarótinni eða rótina sjálfa
á þurrum og svölum stað yfir
veturinn.
Næsta vor er forðarótin sett
aftur í pott með góðri mold og
þegar búið er að vökva vaknar
jurtin af dvala sínum.
Auðræktanlegir vorlaukar
Brúska er harðgerð, fjölær
jurt sem vex upp af stuttum
jarðstöngli. Kemur seint upp og
nær 35 til 40 sentímetra hæð.
Ræktuð vegna breiðra blaðanna
sem eru græn eða blágræn með
gulum eða hvítum lit, slétt,
bylgjótt eða hrukkótt.
Blómin lítil, ljósbleik og
ljósblá, í hangandi klösum á
löngum blómstöngli. Þrífst best
í hálfskugga, í rökum jarðvegi
og þarf mikið vatn en gerir
annars litlar kröfur.
Dalíur eru að öllum líkindum
vinsælustu jurtir í heimi sem
ræktaðar eru sem vorlaukar.
Þær eru gullfalleg blóm og til
í fjölda afbrigða. Blómlögun
og blómlitir eru fjölbreyttir.
Upprunalega koma dalíur frá
Mexíkó þar sem þær vaxa
villtar. Dalíur urðu snemma
vinsælar til ræktunar og mikið
um kynbætur og blöndun innan
tegunda. Hnýðin eru sett í mold
í kringum mánaðamótin mars/
apríl. Rótarhálsinn á að standa
upp úr moldinni og þess þarf að
gæta að moldin sé rök en ekki
of blaut. Yfirleitt þarf að binda
stærri dalíur upp eftir að þær
eru settar út.
Liljur eru um metri á
hæð og geta þurft stuðning.
Ræktunarafbrigði skipta
þúsundum og þegar vel tekst
til blómstra liljur stórum og
litríkum blómum. Dafna best
í frjósamri mold með góðu
frárennsli, enda rotna laukarnir
ef þeir standa í bleytu.
Snotra vex af hnýði og getur
orðið 20 til 40 sentímetra há og
þær eru fáanlegar í nokkrum
litum, bláar, rauðar, hvítar og
gular. Gott er að leggja hnýðin
í bleyti í 2 til 3 tíma áður en þau
eru sett í mold. /VH
STEKKUR NYTJAR HAFSINS
Guðjón Einarsson
gudjone3@gmail.com
Haustið 2020 voru 242 fiskvinnslufyrirtæki á skrá hjá Matvæla
stofnun. Þar meðtalin 40 fyrirtæki sem framleiða eldisafurðir og
20 fyrirtæki sem dreifa fiskafurðum.
Flest fyrirtækin eru með leyfi fyrir margs konar vinnslu, svo
sem framleiðslu á ferskum og frystum afurðum (69 leyf), söltuðum
fiskafurðum (63), hertum, þurrkuðum og hefðbundnum afurðum (41)
og hrognum (25). Þá hafa verið veitt 56 leyfi til framleiðslu á tilbúnum
afurðum til neyslu með því að beita hita- og efnameðhöndlun.
242 fiskvinnslufyrirtæki
Fryst; 119 millja.; 44%
Ísað; 81 millja.; 30%
Mjöl/lýsi; 31 millja.; 11%
Saltað; 26 millja.; 10%
Hert ; 10 millja.; 4%
Annað; 2 millja.; 1%
Útflutningsverðmæti fiskafurða árið 2000
- eftir afurðaflokkum í milljörðum króna
Fryst Ísað Mjöl/lýsi Saltað Hert AnnaðHeimild: Hagstofan Bændablaðið / HKr.
Úr vinnslu Þorbjarnar í Grindavík. Saltfiskverkunarhúsum hefur bæði fækkað og hlutur þeirra stærstu orðið
stærri. Þau voru á 49 stöðum árið 1999 en á 26 stöðum árið 2019. Mynd / VH
Umhirða
vorlauka