Bændablaðið - 24.03.2022, Síða 18
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. mars 202218
FRÉTTIR
Bjargráðasjóður undir Náttúru-
hamfaratryggingar Íslands
Frá og með 3. mars næst komandi
mun umsýsla með Bjarg
ráða sjóði færast frá Bænda
samtökum Íslands til Nátt
úru hamfaratrygginga Íslands,
samkvæmt samningi við matvæla
ráðuneytið.
Bjargráðasjóður er í dag sjálfstæð
stofnun í eigu ríkisins, en var til
ársins 2016 að jöfnu í sameign
ríkisins og Bændasamtaka Íslands.
Fjárhagsaðstoð vegna
náttúruhamfara
Bjargráðasjóður starfar samkvæmt
lögum nr. 49/2009 og er sjálfstæð
stofnun í eigu ríkisins. Hlutverk
hans er að veita einstaklingum
og félögum fjárhagsaðstoð til
að bæta meiri háttar beint tjón af
völdum náttúruhamfara, meðal
annars vegna tjóns á girðingum og
vegna uppskerubrests af völdum
óvenjulegra kulda, þurrka og kals.
Fjárhagsaðstoð sjóðsins felst í
veitingu styrkja sem stjórn sjóðsins
ákveður hverju sinni í samræmi við
fjárhag og stöðu sjóðsins. /smh
Kaltjón á túnum bænda er meðal tjóna sem Bjargráðasjóður hefur bætt.
Fyrir rúmu ári síðan var farið
af stað með nýtt verkefni hjá
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
sem hafði það að markmiði að
skoða möguleikana á skilvirkari
framleiðslu í sauðfjárrækt og
bættari nýtingu aðfanga.
Í verkefninu, sem heitir „Fundið
fé – þróun á framleiðslukerfi í
sauðfjárrækt“, voru skoðaðar leiðir
til að fjölga burðum yfir árið og
nýta um leið sauðamjólk til frekari
afurðavinnslu.
Verkefnið leiðir í ljós að
einhverjir möguleikar eru í
stöðunni fyrir bændur til að
brjótast út úr þeim bágu kjörum
sem þeim stendur til boða í hefð -
bundinni sláturtíð.
Runólfur Sigursveinsson hefur
leitt verkefnið af hálfu RML.
„Verkefnið er fjármagnað bæði
í gegnum styrk úr Matvælasjóði
og með vinnuframlagi frá RML.
Verið er leggja lokahönd á vinnslu
verkefnisins en því mun ljúka nú á
vormánuðum,“ segir hann.
Möguleikar til að auka
árstekjurnar
Að sögn Runólfs var markmið
verkefnisins að skoða möguleika
íslenskra sauðfjárbænda til að
auka árstekjur sínar eftir hverja
vetrarfóðraða kind. „Sérstaklega
voru skoðaðir möguleikar á að
fjölga burðum á ársgrundvelli – þrír
burðir á tveimur árum – og einnig
að nýta sauðamjólk til afurðavinnslu
samhliða kjötframleiðslunni.
Loks að vera með dreifðari
burðatíma en nú er venjan, með
það að markmiði að geta verið með
ferskt lambakjöt lengur á markaði
en hefðbundin haustslátrun gefur
möguleika á.“
Möguleiki að láta ær bera
á átta mánaða millibili
„Við leituðum víða fanga við vinnslu
verkefnisins, til dæmis var farið
yfir íslenskar lífeðlisfræðilegar
rannsóknir á burðartíma íslenskra
áa sem unnar voru á sínum tíma á
seinni hluta síðustu aldar af dr. Ólafi
R. Dýrmundssyni. Þær niðurstöður
sýndu að hægt væri að stjórna að
hluta fengitíma og þá burðartíma.
Möguleikar væru að láta íslenskar
ær bera með átta mánaða millibili og
ná þannig þremur burðum á tveimur
árum.
Sömuleiðis var leitað fanga í
nágrannalöndum og í Kanada
varðandi mismunandi framleiðslu-
kerfi sem byggja á því að vera með
ferskt lambakjöt á markaði nær
allt árið. Eins var haft samband
við starfandi bændur hér á landi
sem hafa verið að spreyta sig á
nýbreytni og markaðssetningu, m.a. í
heimavinnslu og beinni sölu. Meðal
annars sauðfjárbú sem hafa farið út
í mjólkurframleiðslu að hluta og í
kjölfarið farið í vinnslu úr henni í
formi sauðaosta,“ útskýrir Runólfur.
Hægt að ná meiru
út úr fjárstofninum
Runólfur segir að svona verkefni
geti opnað enn frekar á að einstakir
bændur leiti fjölbreyttari leiða til
að ná meiru út úr sínum bústofni
en þeir hafi núna miðað við þetta
lága afurðaverð út úr hefðbundinni
slátrun í september og október.
„Þegar eru ákveðnar vísbendingar
komnar fram um slíkt. Nefna má
líka að til dæmis í Kanada er ferskt
og ófrosið lambakjöt í boði nær
allt árið. Sömuleiðis virðast vera
að skapast auknir möguleikar á
örsláturhúsum eða verktakaslátrun
sem skapa einmitt þessa möguleika
að hafa ferskt lambakjöt á boðstólum
í lengri tíma ársins en er núna.
Mögulega mun svona verk-
efni einnig opna frekar augu
framleiðenda fyrir fjölbreyttari
framleiðslu með tilliti til mismunandi
markaðssetningu – til dæmis beint
til veitingahúsa og/eða mun meira
inn á staðbundna veitingastaði
með hliðsjón af ferðaþjónustunni á
hverjum stað.“
Þrjár leiðir til breyttra
framleiðsluhátta
„Síðustu hlutar verkefnisins
felast í því að settar eru upp
þrjár mögulegar leiðir til breyttra
framleiðsluhátta með það að
markmiði að ná aukinni nýtingu
á aðföngum í framleiðslu sauðfjár
annars vegar og hins vegar að
skapa sér sterkari grunn í tekjuöflun
viðkomandi bús,“ segir Runólfur.
„Í þessu sambandi er lögð áhersla á
hagvæmnigreiningu hverrar leiðar
fyrir sig út frá ákveðnum forsendum.
Í fyrsta lagi framleiðslukerfi
út frá þremur burðum á tveimur
árum. Í öðru lagi að fara út í
mjólkurframleiðslu og ostagerð
með kjötframleiðslunni. Í þriðja
lagi að vera með dreifðan burðartíma
að hluta. Náttúrulegur fengitími
íslenska fjárkynsins er frá nóvember
og fram í apríl þó svo hefðbundinn
fengitími sé í raun í desember og
fyrri hluta janúar. Með þessari
leið yrði sláturtími lamba því mun
dreifðari en hann er í dag – og þar
með auknir möguleikar á fersku
lambakjöti í lengri tíma á markaði.
Síðasti hluti verkefnisins verður
að útbúa fræðslu- og kynningarefni,
ætlað sem fyrstu skref í þekkingarleit
fyrir þá einstaklinga sem hafa hug
á að skoða frekar möguleika sína
út frá sinni aðstöðu til að takast
á við breytta framleiðsluhætti.
Jafnframt verða unnir rafrænir
leiðbeiningabæklingar og mögulega
frekari kynningar á fundum meðal
sauðfjárbænda,“ segir Runólfur að
lokum, spurður um hvað verði um
niðurstöður verkefnisins. /smh
Í verkefninu Fundið fé – þróun á framleiðslukerfi í sauðfjárrækt eru settar fram leiðir til frekari verðmætasköpunar
fyrir íslenska sauðfjárbændur, meðal annars með því að fjölga burðum. Mynd / smh
Runólfur Sigursveinsson, verkefnis-
stjóri hjá RML. Mynd / Aðsend
Fundið fé – greining tækifæra í aukinni verðmætasköpun í sauðfjárrækt:
Vísbendingar um að hægt sé að ná meiri
verðmætum út úr bústofnunum
– Fleiri burðir, ferskara kjöt og betri nýting aðfanga