Bændablaðið - 24.03.2022, Side 20
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. mars 202220
Stríðsátök í Úkraínu hafa vakið
óvissu um að þjóðir heims geti ekki
tryggt sitt fæðu öryggi. Samkvæmt
gögnum utanríkisþjónustu
landbúnaðarráðuneytis Banda
ríkjanna (United States Depart
ment of Agriculture – USDA), þá
stendur Úkraína fyrir um 10% af
hveiti sem fer á útflutningsmarkaði
á heimsvísu. Rússland var talið
standa fyrir um 16% af hveiti á
þeim markaði á markaðsárinu
2021/22.
Megnið af hveitinu frá Úkraínu
er að jafnaði flutt úr landi á fyrstu
mánuðum hvers árs, en markaðsárið
er talið frá byrjun júlí til loka júní.
Eins og staðan er nú er ólíklegt að sá
útflutningur gangi hnökralaust fyrir
sig. Vitað er að í Úkraínu eru miklar
birgðir af hveiti í tönkum sem ekki
tókst að selja úr landi áður en átökin
hófust. Þá er ljóst að verð hefur líka
verið að hækka umtalsvert.
Verð á nokkrum tegundum af
hveiti hafði verið að sveiflast vegna
lítils framboðs í kjölfar þurrka
á síðasta ári, en var á greinilegri
uppleið. Við innrás Rússa í Úkraínu
tók verðið hins vegar stökk í
öllum tegundum hveitis, einkum á
útflutningskvótum. Þar voru dæmi
um að kvótaverð á vetrarhveiti (Hard
Red Winter - HRW) færi úr 162
dollurum tonnið upp í 539 dollara
á einum sólarhring. Þá eru miklar
áhyggjur yfir að fram undan séu
þurrkar á helstu ræktunarsvæðum.
Um 6,9 milljóna tonna nettó
samdráttur í milliríkjaviðskiptum
með kornvörur
Verulega hefur dregið úr
milliríkjaviðskiptum með kornvörur
vegna viðskiptabanns og annarra
vandræða sem orsakast hafa af
stríðsátökum í Úkraínu. Samkvæmt
tölum landbúnaðarráðuneytis
Bandaríkjanna nú um miðjan
mars, nam sá samdráttur samtals
11,4 milljónum tonna á móti
auknum viðskiptum í sex ríkjum
sem nemur 4,5 milljónum tonna.
Nettó samdráttur í viðskiptum með
kornvörur nam því um 6,9 milljónum
tonna. Nokkur ríki hafa síðan verið
að auka sinn innflutning sem nemur
í heild 800 þúsund tonnum. Þar á
meðal er Belarus (Hvíta-Rússland)
sem hefur aukið innflutning frá
Rússlandi úr 100 í 400 þúsund tonn.
Mikill samdráttur í
kornvöruútflutningi frá Úkraínu
Langmest voru áhrifin á Úkraínu
sem hefur undanfarin ár verið að
flytja út um 24 milljónir tonna
af hveitikorni. Þar er samdráttur
upp á 4 milljónir tonna. Þá kemur
Rússland, sem hefur verið að flytja
út 25 milljónir tonna, en hefur þurft
að horfa upp á samdrátt upp á 3
milljónir tonna. Einnig hefur þetta
þýtt minni innflutning á kornvörum
til ESB ríkja sem nemur um 400
þúsund tonnum.
Indland hefur staðið vel varðandi
sín kornmál og þar hefur verið mikil
birgðasöfnun. Hefur landið því verið
að auka útflutning sinn úr 7 í 10
milljón tonn og nemur aukningin
því um 3 milljónum tonna.
Ástralía stendur einnig vel
vegna góðrar uppskeru og þar hefur
útflutningur aukist um eina milljón
tonna, eða úr 26 í 27 milljón tonn.
Rússar halda áfram
viðskiptum innan
Efnahagsbandalags Evrasíu
Rússar voru þegar byrjaðir að
skipa út hveiti í febrúar. Hafa
þeir notið viðskiptavildar hjá
Efnahagsbandalagi Evrasíu EAEU
og flutt út með skipum um Kaspíahaf.
Í þessu efnahagsbandalagi eru auk
Rússa, Armenía, Belarus, Lýðveldið
Kasakhstan og Lýðveldið Kyrgys.
Hveitiviðskipti Rússa á þennan
markað koma til viðbótar öflugum
útflutningi frá Evrópusambandinu,
Indlandi og Ástralíu.
Útflutningur á maís fór strax
að hökta við innrás Rússa
Af útflutningi á korni eða maís
hafa Úkraína og Rússland saman-
lagt staðið fyrir um 16% af
milliríkjaviðskiptunum á heimsvísu.
Útflutningur þessara ríkja á maís
fór strax að hökta við innrás Rússa
í Úkraínu. Útflutningur á maís frá
Rússlandi hélst þó óbreyttur um
Kaspíahaf.
Minnkandi hlutdeild Úkraínu og
Rússlands á heimsmarkaði í hveiti
og maís verður að líkindum að
hluta mætt með auknum útflutningi
Bandaríkjanna að mati USDA. Þá
ætti ný uppskera frá Brasilíu og
Argentínu að koma á markað innan
fárra mánaða, en það gæti þó oltið
á því hvernig þeim þjóðum hefur
tekist að tryggja sér áburð.
Um 6 milljóna tonna samdráttur
í útflutningi á maís frá Úkraínu
Útflutningur Úkraínu á maís dregst
saman úr 33,5 í 27,5 milljón tonn,
eða um 6 milljónir tonna. Á móti
kemur að Bandaríkin munu auka
sinn útflutning um 2 milljónir tonna,
eða úr 61,5 í 63,5 milljónir tonna.
Bandaríkin eru jafnframt langstærsti
útflytjandi heims á maís.
Nokkuð góð staða varðandi bygg
Úkraína og Rússland hafa staðið
samanlagt fyrir um 30% af útflutn-
ings markaði á byggi. Við skipti
hafa þar verið nokkuð blómleg
með auknu framboði frá Ástralíu
og Kanada. Var framleiðsla Kanada-
manna reyndar mun meiri en búist
var við. Þá voru Úkraínumenn þegar
búnir að skipa út megninu af sínu
byggi áður en átökin hófust. Áhrifin
af stríðsátökunum í Úkraínu hafa
því væntanlega mun minni áhrif á
byggmarkaðinn en varðandi maís
og hveiti.
Verð á hrísgrjónum hækkar líka
Þótt framboð og verð á hefð-
bundn um kornvörum hafi verið
að sveiflast mjög, þá á það ekkert
síður við hrísgrjónamarkaðinn.
Framleiðsla á hrísgrjónum hefur
aukist á Indlandi og í Taílandi, sem
gerir meira en að vega upp samdrátt
í Brasilíu. Sömuleiðis hefur
hrísgrjónaneysla aukist á Indlandi
sem nemur meiru en samdrætti
í hrísgrjónaneyslu í Brasilíu og á
Madagaskar samanlagt.
Milliríkjaviðskipti með hrísgrjón
hafa verið að aukast þvert á það
sem hefur verið að gerast með
aðrar korntegundir. Þetta gerist á
sama tíma og verð á hrísgrjónum
hefur snarhækkað. Þar má nefna
að kvótaverð á hrísgrjónum í
Bandaríkjunum hefur hækkað um 45
dollara, eða í 655 dollara tonnið. Er
það einkum þröng birgðastaða sem
er sögð vera að þrýsta upp verðinu.
Verð í Víetnam hefur hækkað vegna
lágrar birgðastöðu um 8 dollara og
var þar komið í 400 dollara. Verð
á Indlandi hækkaði um 5 dollara
og fór í 360 dollara tonnið. Aftur
á móti hefur kvótaverð lækkað í
Taílandi um 5 dollara tonnið og stóð
um miðjan mars í 424 dollurum.
Í Pakistan lækkaði verðið um 8
dollara og fór í 351 dollar tonnið.
FRÉTTASKÝRING
Hörður Kristjánsson
hk@bondi.is
Verulegur samdráttur í milliríkjaviðskiptum
með kornvörur í kjölfar stríðsátaka
– Hefur þegar leitt til mikilla verðhækkana á hveiti og öðrum kornvörum
Rússar hafa notið viðskiptavildar hjá Efnahagsbandalagi Evrasíu EAEU og flutt m. a. út með skipum um Kaspíahaf.
Í þessu efnahagsbandalagi eru auk Rússa, Armenía, Belarus, Lýðveldið Kasakhstan og Lýðveldið Kyrgys.