Bændablaðið - 24.03.2022, Blaðsíða 22
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. mars 202222
byko.is
YLEININGAR ERU LÉTTAR STÁL-
KLÆDDAR SAMLOKUEININGAR
SEM FÁST MEÐ ÞÉTTIFRAUÐS-
EÐA STEINULLARKJARNA.
Einingarnar eru sterkar og burðarmiklar og
fást með mismunandi yfirborði og litum að
eigin vali. Helstu kostir þess að nota samloku-
einingar er auðveld og fljót uppsetning, auðveld
þrif, mikil burðargeta, mikið einangrunargildi og er
ódýr kostur ef miðað er við hefðbundnar lausnir.
Yleiningar henta vel fyrir eldri gripahús þar sem
skipta þarf út þak- og eða veggjaklæðningum.
BALEX yleiningar eru framleiddar undir
ströngu eftirliti samkvæmt viðurkenndum
evrópskum stöðlum.
Hafðu samband: bondi@byko.is
YLEININGAR
Rannsóknin Landfræði íslenskrar garðyrkju:
Hvernig mæta garðyrkjubændur
aukinni eftirspurn?
– Ætlar að greina samverkandi þætti sem móta íslenskan garðyrkjuiðnað
Nicholas Ian Robinson safnar
nú saman upplýsingum frá
garðyrkjubændum á Íslandi
fyrir doktorsrannsókn sína sem
ber heitið Landfræði íslenskrar
garðyrkju.
Markmið rannsóknarinnar er að
greina þá margvíslegu þætti sem
móta íslenskan garðyrkjuiðnað,
með það að markmiði að auka
þekkingu á iðngreininni til handa
garðyrkjubændum, stjórnvöldum og
í þágu fræðasamfélagsins.
„Sjónum verður beint að
þeim leiðum sem íslenskir
garðyrkjubændur nýta til að mæta
eftirspurn eftir auknum gæðum og
aukinni fjölbreytni grænmetis- og
ávaxtategunda á íslenskum markaði,“
segir Nicholas, sem er doktorsnemi
í landfræði við Kaliforníuháskóla,
Davis, en hann hefur verið búsettur
hér á landi í áratug. Rannsóknin er
einnig unnin í samstarfi við Líf-
og umhverfisvísindadeild Háskóla
Íslands en Nicholas hefur verið
gestarannsakandi við deildina frá
árinu 2019.
Nicholas er jafnframt garð yrkju-
bóndi í Reykjalundi í Grímsnesi
ásamt maka sínum, Áslaugu
Einarsdóttur, mannfræðingi og
framkvæmdastýru. Þar stunda
þau bæði gróðurhúsaræktun
og útiræktun á fjölbreyttum
grænmetistegundum, bæði í tilrauna-
skyni og í markaðsskyni, og hafa
selt afurðir sínar á Suðurlandi
og á höfuðborgarsvæðinu með
nýstárlegum markaðsaðferðum.
Ásamt upplýsingum sem Nicholas
safnar um þessar mundir frá
íslenskum garðyrkjubændum
munu ræktunartilraunirnar og
markaðsaðferðirnar liggja til
grundvallar rannsókn hans.
Markmiðið er að greina hvernig best
megi tryggja sjálfbærni í innlendri
grænmetisframleiðslu, bæði í
umhverfislegu og hagrænu tilliti.
Nýverið fór í loftið vefsíðan
gardyrkjurannsokn.is, sem ætlað
er að kynna rannsóknina fyrir
garðyrkjubændum. Nicholas leggur
áherslu á mikilvægi þess að sem
flestir starfandi garðyrkjubændur sjái
sér fært að taka þátt í rannsókninni
svo að niðurstöður hennar gefi
sem gleggsta mynd af iðngreininni
og hvernig best megi styðja við
greinina. Þátttakendum verður boðið
að fylla út rafræna spurningakönnun
og í framhaldinu mun Nicholas
heimsækja nokkra þátttakendur og
taka við þá viðtöl.
„Ég vil sjá hvaða aðferðir
stuðla best að sjálfbærni íslenskra
ræktunarvistkerfa, sjálfbærni
dreifðra byggða og tryggri afkomu
garðyrkjubænda og annarra
starfsmanna iðngreinarinnar.
Við erum mjög spennt að sjá
afraksturinn og teljum að þetta
gæti verið gott framlag til umræðu
um framtíðarmöguleika íslenskrar
garðyrkju og hvernig best megi
styðja við grænmetisbændur,“ segir
Nicholas. /ghp
Auk þess að vinna nú að doktorsrannsókn er Nicholas Ian Robinson einnig
garðyrkjubóndi í Reykjalundi í Grímsnesi.
Upprunaættbók íslenska hestsins:
WorldFengur fjárvana
– Vilja aðkomu ríkisins að endurnýjun
Tímabær öryggisuppfærsla auk endurnýjunar á viðmóti gagnagrunnsins
mun kosta um 30 milljónir króna.
Rekstur WorldFengs, uppruna-
ættbókar íslenska hestsins, er langt
frá því að standa undir kostnaði.
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
hefur kallað eftir fjármagni til að
ráðast í aðkallandi endurnýjun.
Gagnagrunnurinn Worldfengur
er rúmlega 20 ára gamalt sam-
starfs verkefni Bændasamtaka
Íslands og FEIF, alþjóðasamtaka
eigenda íslenska hestsins. Þetta
er miðlægur gagnagrunnur sem
geymir upplýsingar um íslenska
hestinn um allan heim, en þar má
finna upplýsingar um ættir, afkvæmi,
dóma, eigendur, ræktendur,
kynmótamat, örmerki, liti og fleira.
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
hefur séð um rekstur hans síðan
árið 2020.
Aðgangur að Worldfeng er
greiddur gegnum árgjöld sem
koma í gegnum hestamannafélög
um allan heim, en samkvæmt Karvel
Karvelssyni, framkvæmdastjóra
RML, eru afnotagjöldin langt frá
því að svara kostnaði við rekstur
grunnsins. „Hann var rekinn með
11–13 milljóna króna tapi í fyrra. Við
þurfum að endurskoða innheimtu því
þetta gengur einfaldlega ekki upp.
Þetta er miklu meira en eingöngu
skýrsluhaldskerfi, heldur grunnurinn
að ræktun íslenska hestsins á
heimsvísu. Starfið er alþjóðlegt og
mikilvægt en er ekki viðurkennt með
fjármagni,“ segir Karvel.
Nú sé leitað leiða til að fá
hið opinbera til að taka þátt í
nauðsynlegum endurnýjunum.
„Það þarf að endurnýja grunninn
vegna öryggis en einnig er viðmótið
úrelt.“ Því þurfi að aðlaga hann að
breyttum tímum, snjallvæða og gera
notendavænni. Karvel ráðgerir að
slík uppfærsla kosti um 30 milljónir
króna ofan á almennan rekstur.
„Skilyrði þess að íslenskur hestur
sé viðurkenndur sem svo er að hægt
sé að rekja ættir hans til Íslands í
gegnum WorldFeng. Hann er því
algjört lykilgagn í ræktunarstarfinu,“
segir Gunnar Sturluson, forseti FEIF,
og vísar þar í reglugerð um uppruna
og ræktun íslenska hestsins (nr.
422/2011). „Það þarf að fylgja því
fjármunir ef slíkt á að vera hægt.“
/ghp
Gunnar Sturluson, forseti FEIF.
Karvel L. Karvelsson, framkvæmda-
stjóri RML.
Áhrif stríðs á matvælaverð:
Brauðverð Egypta í hæstu hæðum
Yfirvöld í Egyptalandi hafa sett
fast markaðsverð á brauði til
að stemma stigu við hækkandi
matvælaverði í kjölfar innrásar
Rússa í Úkraínu.
Moustafa Madbouly forsætis-
ráðherra setti fast verð á kíló af
óniðurgreiddu brauði í 11,5 egypsk
pund, sem samsvarar tæpum
85 íslenskum krónum. Verð á
brauði hefur hækkað gríðarlega
á undanförnum mánuðum þar í
landi og var nær 20 krónum fyrir
innrásina. Egyptaland er einn stærsti
innflytjandi hveitis í heiminum, enda
er brauð undirstöðufæða meðal
bæði ríkra og sér í lagi fátækra þar
í landi. Lágt verð á brauði skiptir
því meginmáli og er niðurgreitt af
ríkinu. Egyptar flytja stærsta hluta
hveitis inn frá Úkraínu og Rússlandi.
/ghp
FRÉTTIR