Bændablaðið - 24.03.2022, Blaðsíða 28
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. mars 202228
LÍF&STARF
Halla Sif keypti gróðrarstöð á fyrsta ári í garðyrkjunámi:
„Ætli þetta sé ekki nett brjálæði“
– Nýliði í atvinnugreininni lætur til sín taka í stjórn Búgreinaeildar garðyrkjunnar
Guðrún Hulda Pálsdóttir
gudrunhulda@bondi.is
Það skortir ekki atorku í Höllu
Sif Svansdóttur Hölludóttur,
þrítugum garðyrkjunema, sem
festi kaup á garðyrkjustöðinni
Gróðri á Hverabakka við
Flúðir á sínu fyrsta ári í námi.
Meðfram nýju hlutverki sínu
sem garðyrkjubóndi reynir hún
að klára námið og er nýliði í stjórn
deildar garðyrkjunnar.
Halla Sif er alin upp á Dalsmynni í
Eyja- og Miklaholtshreppi, blönduðu
búi með kúm og kindum, en á ekki
langt að sækja garðyrkjuáhugann.
„Amma mín, Margrét í Dalsmynni,
ræktaði talsvert af matjurtum. Hún
var aldrei í neinni framleiðslu en
var dugleg að gefa fólki. Ég var
alltaf með henni að dútla mér við
að prikla og stússa,“ segir Halla sem
hefur frá unga aldri haft metnað fyrir
matjurtaræktun. „Þetta var eiginlega
aðaláhugamálið mitt og ég ræktaði
alltaf heima við þegar ég bjó í
Reykjavík. En einhverra hluta vegna
sá ég það þó ekki sem raunhæfan
möguleika að vinna við garðyrkju
framan af. Mig langaði til dæmis
alltaf í Garðyrkjuskólann en sá ekki
beint framtíð í því.“
Halla lagði garðyrkjuna því ekki
fyrir sig heldur nam heimspeki
og Mið-Austurlandafræði við
Háskóla Íslands. Hún stefndi á
framhaldsnám erlendis og vann hjá
hvalaskoðunarfyrirtæki í nokkur ár.
„Svo fór ég á opinn dag
Garð yrkju skólans á Reykjum á
sumardaginn fyrsta árið 2018 og
langaði í framhaldinu að slá til og
skrá mig í skólann. Ég fann líka
löngun til að komast í tengingu
við eitthvað sem hefur raunveruleg
og bein áhrif á umhverfismál og
auðlindanýtingu. Það var eitthvað
sem kveikti í mér þarna. Skólinn
tekur bara inn nýnema á tveggja ári
fresti en ég fékk að byrja aðeins í
fjarnámi meðfram vinnu árið 2019.“
Skall svo kófið á og Halla
missti vinnuna. Þótti henni þá
rakið að hella sér af fullum krafti
í garðyrkjunámið um haustið. „Ég
var þá þegar komin með þann
draum í magann að vinna sjálfstætt
og vera með eigin ræktun og
rekstur. Ég sá þó fyrir mér að vinna
hjá einhverjum í einhvern tíma
áður en af því yrði, enda gríðarleg
fjárfesting að eignast land og koma
rekstri af stað.“
Sagan af kaupum Gróðurs
Fyrir tilstilli sameiginlegra vina
fékk garðyrkjuneminn Halla að
heimsækja garðyrkjustöðina Gróður
því hún hafði áhuga á að skoða
garðyrkjustöð í rekstri. Í því innliti
komst hún að því að stöðin væri til
sölu.
„Húsnæðið var í góðu standi,
öll tæki til staðar og mjög vel að
rekstrinum staðið. Í framhaldinu
gerði ég mér grein fyrir því að
það væri nokkuð langsótt að ætla
að koma rekstri af stað sjálf, fá
markaðshlutdeild og gera allt frá
grunni. Það eru líka ekki margar
svona stöðvar á landinu og ég fór
að átta mig á að þetta væri frekar
einstakt tækifæri.“
Byggðastofnun hafði þá nýlega
byrjað með lán til fjármögnunar
jarðarkaupa í landbúnaði í því skyni
að styðja við nýliðun, nýsköpun og
framþróun, en í gegnum þá leið er
hægt að fá allt að 90% lánshlutfall ef
um er að ræða kynslóðaskipti.
„Vitandi af lánaleiðinni og
mögulegum nýliðunarstyrk í
landbúnaði sá ég að þetta væri
jafnvel raunhæft. Á þessum tíma
var líka bullandi Covid og ég var
búin að vera atvinnulaus, lokuð inni
heilan vetur og sumar og langaði að
komast aftur út á land og komast á
hreyfingu. Tímapunkturinn spilaði
því klárlega inn í þessa ákvörðun.“
Hún lét því vaða og bauð í
garðyrkjustöðina og rekstur hennar.
Kaupferlið tók marga mánuði og fól
í sér, að sögn Höllu, gott samstarf við
Byggðastofnun og seljendur. Hún
fékk svo garðyrkjustöðina Gróður
afhenta 1. júní síðastliðinn.
„Ætli þetta sé ekki nett brjálæði.
Ég held þetta sé ekki alveg búið að
síast inn einu sinni, enda hefur verið
svo mikið að gera síðan ég tók við.“
Halla býr þó að góðum stuðningi
því fyrri eigendur, Þorleifur
Fyrir tilstilli sameiginlegra vina fékk garðyrkjuneminn Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir að heimsækja garðyrkjustöðina Gróður á Hverabakka til að skoða slíka stöð í rekstri. Nokkrum mánuðum
síðar var hún orðin eigandi stöðvarinnar. „Ég held þetta sé ekki alveg búið að síast inn einu sinni, enda hefur verið svo mikið að gera síðan ég tók við,“ segir Halla, en á Gróðri er stunduð
tómatarækt í rúmum 4.000 fm af gróðurhúsum ásamt útiræktun yfir sumarmánuði. Mynd / ghp
Gróðrarstöðin er sú eina sem ræktar sellerí hér á landi og hyggst Halla Sif
auka framleiðsluna. Mynd / HSSH
Halla hugar að nýgræðlingum. Mynd / ghp