Bændablaðið - 24.03.2022, Síða 32
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. mars 202232
Fyrstu skrefin
Upphafið er það að Landgræðslan
metur hvort raunhæft sé að
endurheimta svæðið. Ef það er
niðurstaðan hefst greiningarvinnan
í samvinnu við
landeiganda. Í framhaldinu
sækir Landgræðslan um
framkvæmdarleyfi hjá
sveitarstjórn. Þegar hönnun
endurheimtarinnar lýkur
hefst framkvæmdin í
samstarfi við verktaka. Ári
eftir að framkvæmd lýkur
er svæðið síðan tekið út
aftur.
Aðspurð um skuldbindingar
sagði Iðunn að liggi allar
forsendur fyrir sé gerður 20 ára
samningur milli landeiganda og
Landgræðslunnar. Þar segir m.a. að
nýta megi landið á sjálfbæran hátt
svo fremi sem votlendinu sé ekki
raskað aftur.
Og hver borgar?
„Styrkurinn felst í því
að Landgræðslan borgar
framkvæmdarleyfið og vinnu
verktakans. Ef þurfa þykir kostar
Landgræðslan einnig lagfæringar
á svæðum eftir framkvæmd“,
segir Iðunn og bætir því við að
landeigandinn þurfi ekki að leggja
fram mikla vinnu við verkið.
„Hlutverk landeiganda er að veita
okkur upplýsingar og tjá okkur
þeirra sýn og óskir. Ef áhugi er fyrir
þá má aðstoða með því að fylgjast
með svæðinu og upplýsa okkur um
gang mála.“
En hvers vegna ættu
landeigendur að standa í þessu?
„Ef landeigendur eiga land þar
sem framræst mýri er til staðar,
og í engri nýtingu, er það í raun
land í mjög slæmu ástandi þó að
gróður sé til staðar. Kolefnið í
lífræna mýrarjarðveginum breytist
í koltvísýring við þurrkun lands
og hverfur því úr jarðvegi og fer
upp í andrúmsloftið í staðinn.
Þar með losnar einnig um önnur
næringarefni og landið getur
tekið að lækka. Svo í raun er hægt
að horfa á framræsta mýri eins
og rofið, illa farið land. Flestir
vilja skila landinu í betra ástandi
en þegar þeim var fyrst falið að
varðveita það“.
Batnar landið?
Aðspurð sagði Iðunn að ávinningur
af endurheimt votlendis sé
fjölþættur. “Stöðvun losunar
gróðurhúsalofttegunda er aðeins
einn af mörgum ávinningum
endurheimtar votlendis en ekki
það eina sem endurheimtin
snýst um. Nefna má endurheimt
búsvæði lífvera og gróðurs, bættur
vatnsbúskapur og stöðvun rofs. Oft
erum við spurð hvort við breyting
á losun gróðurhúsalofttegunda
sé mæld fyrir endurheimt hvers
einstaks svæðis en svo er ekki.
Mælingar á breytingu á losun þarf
að gera oft og yfir langan tíma til
að sýna áreiðanlegar niðurstöður
og eru ekki raunhæfar
í framkvæmd, rétt eins
og ekki er gasmælt fyrir
og eftir endurheimt á
þurrlendi/skóglendi.”
Þáttur Votlendissjóðs
Hvar kemur
Votlendissjóður inn í þessa
mynd? Landgræðslan er
ráðgjafi fyrir Votlendissjóð sem
fagaaðili endurheimtar vistkerfa.
Hjá Votlendissjóði eru margar
leiðir í boði fyrir landeigendur
sem tengjast kolefniseiningum en
Landgræðslan skiptir sér ekkert af
þeim málum.
Gagnrýni á
endurheimt votlendis
Iðunn nefnir umræðu síðustu ára
og harða gagnrýni á endurheimt
votlendis sem loftslagsaðgerð og
bætir við „Þurrlendið hefur verið
í umsjón Landgræðslunnar síðan
1907 en mýrarnar frá árinu 2016.
Málaflokkurinn er því frekar
nýr af nálinni hjá okkur og sætir
meiri gagnrýni en nokkur önnur
landgerð sem við vinnum með.
Þessi mikla gagnrýni gerir það hins
vegar að verkum að við erum sífellt
að afla okkur nýrra upplýsinga,
endurmennta okkur og að læra af
reynslunni.
Mitt helsta markmið sem
verkefnastjóri endurheimtar
votlendis er að reyna skapa
jákvæðari umræður um mýrar, sem
mikilvæg vistkerfi náttúru Íslands,
og hversu gefandi er að taka þátt
í endurheimt þeirra. Mig vantar
bara fleira fólk sem vill tala við mig
og þá sérstaklega fólk sem er svo
heppið að eiga land og fá að gæta
þess.”
Iðunn Hauksdóttir, verkefnisstjóri:
Ávinningur
endurheimtar
votlendis er
fjölþættur
Vopnfirðingurinn Þórður
Helgason hóf vélaútgerð með
notaðri taktorsgröfu
í Vopnafirði fyrir
hálfri öld. Hann er
maðurinn sem fyllti
upp í skurði hjá
Vopnfirðingunum
Gauta og Halldóru
sem sagt er frá á
forsíðu blaðsins. Það
er full ástæða til að
leita til reynslubolta á
borð við Þórð. Menn eins og hann
þekkja landið og hvernig best er
að koma því í samt lag.
Þórður sagði að þegar
mokað væri ofan í
gamla skurði til að
endurheimta votlendi,
þyrfti að þjappa nokkuð
vel í þá einkum þar sem
halli er talsverður.
„Ef lítið er um
uppmokstur vegna
þess að honum hefur
verið ýtt út er ráðlagt
að gera band eða
einskonar brýr með 10 - 20 metra
millibili, þjappa vel og láta þær
ná út yfir bakkana beggja vegna
og vera nokkuð hærri en yfirborð
skurðarins,“ sagði Þórður. Notað er
efni úr skurðbökkum næst bandinu
og af bakkanum nálægt því en gæta
þess að grafa alls ekki djúpar holur
eða gryfjur sem mynda óþarfa
hættu fyrir dýr og menn.
En hvernig vélar er best að
nota? Þórður sagði að yfirleitt væru
beltagröfur taldar bestar í svona
verk. Þær fljóta oftast betur en ýtur
og minna rask verður á landinu
sem unnið er á. „Sjálfur er ég með
22 tonna beltagröfu á löngum
undirvagni miðað við þyngd vélar.“
En hvenær árs er best að vinna
verkin? Þórður segir að gott sé að
moka ofan í skurði síðla vetrar
ef nota þarf frost í jörð, annars
snemma vors. Allt velti þetta þó á
aðstæðum
Þá sagði Þórður að það þyrfti
að kynna bændum og öðrum
landeigendum betur hvað felst í
endurheimt votlendis. Þá skipti
auðvitað miklu máli að þeir yrðu
ekki fyrir umtalsverðum fjárútlátum
vegna endurheimtarinnar.
Beltagröfur eru bestar í endurheimtina
2 - Votlendi
Það er hreint ekki sama hvernig
staðið er að endurheimt
votlendis. Þekking og reynsla
kunnáttumanna á borð við
Þórð, sem rætt er við í þessum
blaðauka, er ómetanleg.
Landgræðslan hélt námskeið
fyrir vélaverktaka og fékk nokkra
til að mynda s.k. rýnihóp.
Þátttakendur, sem allir höfðu
reynslu af endurheimt, voru
sammála um að námskeiðið væri
gagnlegt og hefðu sjálfir vilja sitja
það áður en þeir fengu sitt fyrsta
verk.
Árið 2019 kom út leiðbeininga
rit fyrir framkvæmdaraðila
sem má finna á heimasíðu
Landgræðslunnar. www.land.is
Landgræðslan vill vanda
enn betur til verka og býður
áhugasömum verktökum á
námskeið þar sem farið er yfir
endurheimt votlendis og aðferðir
við framkvæmdir.
Landgræðslan
þróar
aðferðir við
framkvæmdir
á endurheimt
votlendis
„Ég ráðlegg þeim sem vilja endurheimta votlendi á sínu landi að
kynna sér málefnið á heimasíðu Landgræðslunnar en þar er mikið
af gagnlegum upplýsingum. Ég hvet líka bændur og landeigendur til
að hafa beint samband við mig, en þeir sem kjósa að endurheimta
votlendi í samstarfi við Landgræðsluna sækja um á rafrænu formi
í gegnum heimasíðuna og hefur þá ráðgjafi samband við fyrsta
tækifæri,” sagði Iðunn Hauksdóttir, verkefnisstjóri endurheimtar
votlendis hjá Landgræðslunni.
Lestu og
læknaðu
landið!
Ein þeirra bóka sem hafa haft
ótrúlega mikil áhrif á viðhorf
fólks til umhverfismála heitir
Að lesa og lækna landið. Margir
kennarar hafa nýtt sér bókina og
bent nemendum á hana. Bókin
kostar ekkert og það er auðvelt
að hlaða henni niður. Einn
viðmælenda þessa blaðkálfs,
Halldóra Andrésdóttir, sagði í
samtali að á sínum tíma hefði
hún ekki haft mikla trú á því að
gróðurhúsalofttegundir væru
vandamál hér á landi en eftir
lestur bókarinnar hefði hún
sannfærst um hið gagnstæða.
Bókinni er hægt að hlaða frá
vefnum www.moldin.net
Landgræðslan býður vélaverktökum á
námskeið um vernd og endurheimt votlendis
með áherslu á aðferðir við framkvæmdir.
Eftir námskeiðið fá þátttakendur staðfestingarskjal
sem hægt verður að framvísa þegar sótt er um verk
tengd endurheimt votlendis
Fundurinn verður haldinn 19. apríl klukkan 20
Rafrænn fundur (Teams)
Skráning í síma 4883000 eða með tölvupósti á
votlendi@land.is