Bændablaðið - 24.03.2022, Qupperneq 33
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. mars 2022 33
Fiskar njóta
góðs af
endurheimt
votlendis
Mikil áhersla hefur verið
lögð á endurheimt votlendis
undanfarin ár og hefur umræðan
í þjóðfélaginu snúist aðallega
um stöðvun á losun kolefnis úr
framræstum mýrum. Tjarnir,
vötn og lækir á votlendissvæðum
eru þó ekki síður mikilvægt
búsvæði fiska, og þá aðallega áls
og silungs (urriða og bleikju).
Hafin er áhugaverð rannsókn
á vatnasviði Kálfalækjar á
Mýrum sem tekur á ofangreindu.
Jóhannes Guðbrandsson
fiskifræðingur og nýdoktor LbhÍ
leiðir rannsóknina.
Líklega hefur framræsla
vatna og lækja á síðustu öld skert
verulega búsvæði þessara tegunda.
Til að áll geti lokið lífsferli sínum
þarf að vera greið gönguleið
milli ferskvatns, þar sem hann
vex og dafnar, og sjávar þar sem
hann hrygnir. Sjógengnir og
staðbundnir silungsstofnar þurfa
að komast á milli hrygningar- og
uppeldissvæða sem yfirleitt eru í
lækjum og fæðunámssvæða í sjó
Mynd t.v.
Jóhannes Guðbrandsson,
fiskifræðingur og nýdoktor
Landbúnaðarháskólans, segir
líklegt að framræsla votlendis
hafi eyðilagt eða lokað á mikilvæg
búsvæði bæði áls og silungs.
Það sé því mikilvægt að huga að
búsvæðum þessa tegunda þegar
ráðist er í endurheimt votlendis.
Mynd fyrir neðan
Hér er Ásgerður Elín Magnúsdóttir,
náttúru- og umhverfisfræðingur,
að mæla hæð og dýpt hindrunar í
farvegi sem getur hindrað fiska að
komast leiðar sinnar. Ásgerður Elín
hlaut styrk frá Nýsköpunarsjóði
námsmanna sumarið 2021
til þess að rannsaka búsvæði
fiska í votlendislækjum innan
Kálfalækjarvatnasviðs
eða stöðuvötnum.
Vatnasvið Kálfalækjar er
í Hraunhreppi á Mýrum og
samanstendur af nokkrum
vötnum og lækjum þeirra á milli.
Hafið er verkefni til að kanna
áhrif framræslu á líffríkið á
svæðinu, með sérstaka áherslu á
ferskvatnsfiska. Markmiðið er að
kanna hvaða áhrif endurheimt geti
haft á svæðinu og hvaða leið sé
best að fara til að hámarka jákvæð
áhrif á líffríkið í sem mestri sátt
við núverandi landnýtingu á
svæðinu.
Auk jákvæðra áhrifa á
fiska verða metin áhrif á
jarðvegseiginleika, landnotkun,
breytingar á gróðurfari, búsvæði
fugla og losun kolefnis. Verkefnið
er fyrsta sinnar tegundar á Íslandi.
Rannsóknir sumarið 2021
á útbreiðslu fiskitegunda og á
gæðum hrygningar- og búsvæða
leiddu í ljós töluverð áhrif
skurðagraftar á útbreiðslu tegunda
þar sem hindranir fyrir fiskgengd
hafa myndast við skurðgröft.
Víðast hvar á svæðinu eru betri
búsvæði í náttúrulegum farvegum
en þar sem lækir voru grafnir
fram. Þó eru undantekningar þar á
sem mikilvægt er að taka tillit til ef
ráðist verður í endurheimt.” Fyrir
liggur að sækja þekkingu á lífríki
og landnotkun til landeigenda
en það hefur tafist vegna
heimsfaraldurs. Einnig stendur til
að nýta landupplýsingarkerfi til
að meta betur heildarávinning á
svæðinu.
3 - Votlendi
Votlendi er meðal afkastamestu
vistkerfa á jörðinni, sambærilegt
við regnskóga og kóralrif, og þau
veita manninum margvíslega
þjónustu. Í rigningum taka
votlendissvæði til sín vatn en
miðla því frá sér í þurrkatíð, og
tempra þannig öfgar í vatnafari.
Í votlendisjarðvegi er bundið
mikið magn kolefnis. Á jörðinni
þekja votlendissvæði um 3%
yfirborðs
lands en þau
geyma 20-30%
alls lífræns
kolefnis á landi.
Mikilvægt er að
það tapist ekki,
sem getur gerst
við framræslu
og aðra röskun.
Vernd og endurheimt
votlendis á heimsvísu hefur öðlast
nýtt vægi eftir að gildi þeirra til
að draga úr loftslagsbreytingum
varð ljóst. Votlendissvæði geta haft
mikið efnahagslegt gildi þar sem
þau eru uppspretta margvíslegra
auðlinda og fæðu, t.d. fiska og
fugla, og eru oft vinsæl svæði fyrir
ferðaþjónustu.
Mýrarnar
eru mikil-
vægar
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-,
orku- og loftslagsráðherra, ritaði í grein
í tilefni alþjóðlega votlendisdagsins.
Ofangreindar línur var að finna í
greininni.
Algengur misskilningur
er að skurðirnir sjálfir losi
koltvíoxíð en mesta losunin
kemur úr jarðveginum sem
þornar út frá þeim. Því
skiptir ekki máli hversu
grónir skurðir eru heldur
dýpt þeirra.
Þegar skurðir eru grafnir lækkar vatnsstaða mýra og jarðvegur
þornar. Loft kemst að lífrænum jarðvegi og aðstæður verða hliðhollar
rotverum sem brjóta niður kolefni (C) úr lífræna jarðveginum og
skila frá sér sem koltvíoxíð (CO2). Kolefnið úr lífræna jarðveginum
breytist úr föstu efni í lofttegund og landið lækkar með tímanum og
næringarefni tapast úr vistkerfinu. Metan (CH4) losun á sér stað í
votlendi en er brotabrot af heildarlosun gróðurhúsalofttegunda úr
framræstu landi. Dæmi um áhrif framræslu mýra á lífríkið er breyting
á gróðursamfélögum úr votlendisgróðri í þurrlendisgróður, fækkun
vaðfugla og örveru- og smádýralíf jarðvegs breytist.
Dýpt skurða
skiptir mestu máli
Hvaða áhrif hafa skurðir?