Bændablaðið - 24.03.2022, Síða 35

Bændablaðið - 24.03.2022, Síða 35
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. mars 2022 35 ÖFLUG VÖKVADRIFIN VERKFÆRI FRÁ HYCON DÖNSK GÆÐASMÍÐI OG ÁRATUGA REYNSLA Tangarhöfða 1, 110 Reykjavík / 551 5464 / wendel.is Brothamrar Kjarnaborvélar Steypusagir Vatnsdælur GlussadælurNiðurrekstarhamrar Íslensk framleiðsla á Bílskúrs- og Iðnaðarhurðum 564-0013 | 865-1237 15% AFSLÁTTUR Í FORSÖLU 8.542 kr. pr./bréf 9.324 kr. pr./bréf BETRI ÁRANGUR MEÐ JOSILAC íblöndunarefni Öll verð eru án vsk. Verð miðast við bréf (150g) Eykur fóðurgæði Betri inntaka Meiri meltanleiki Heilbrigðari kýr Betri afkoma Gildir til 31. mars JOSILAC Ferm - 9.324 kr. - 15% afsl. 7.925 kr. JOSILAC Classic - 8.542 kr. - 15% afsl. 7.260 kr. LÍF&STARF Ferðakaupstefnan Mannamót Markaðsstofa landshlutanna verður haldin í Kórnum í Kópavogi í dag, fimmtudaginn 24. mars. Mannamót Markaðsstofa landshlutanna snúa aftur: Um 250 fyrirtæki taka þátt Ferðakaupstefnan Mannamót Markaðsstofa landshlutanna verður haldin að nýju í dag, fimmtudaginn 24. mars, í Kórnum í Kópavogi á milli 12 og 17. Viðburðurinn er sá fjölmennasti í íslenskri ferðaþjónustu og hefur skipað sér sess sem einn sá allra mikilvægasti í íslenskri ferða­ þjónustu. Þar gefst sam­ starfs fyrirtækjum markaðsstofanna í öllum landshlutum tækifæri til að kynna sig fyrir fólki í ferðaþjónustu sem starfar á höfuð borgar ­ svæðinu og koma á nýjum viðskipta­ samböndum og styrkja þau sem fyrir eru. Ekki er vanþörf á því í kjölfar heimsfaraldurs Covid­19 en vegna hans þurfti að aflýsa viðburðinum árið 2021. Alla jafna fer hann fram í janúar en var frestað fram í mars, einmitt vegna faraldursins. Nú þegar ferðaþjónustan er aftur að komast á skrið er tilhlökkunin eftir því að hittast í Kórnum í Kópavogi orðin mikil, segir í tilkynningu. Á viðburðinum verða um 250 fyrirtæki með bás þar sem fulltrúar þeirra kynna starfsemina. Gert er ráð fyrir allt að 800 gestum, enda hefur viðburðurinn sannað sig sem einn sá allra mikilvægasti í íslenskri ferðaþjónustu á undanförnum árum. Enginn aðgangseyrir er fyrir gesti sem mæta á viðburðinn, en þeim er þó bent á að skrá sig áður en þeir mæta svo auðveldara sé að áætla fjölda gesta, en það er hægt að gera á heimasíðu markaðsskrifstofanna. /MÞÞ

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.