Bændablaðið - 24.03.2022, Side 38
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. mars 202238
LÍFSHÆTTIR &RANNSÓKNIR
Niðurstöður landskönnunar um mataræði:
Fæstir fylgja ráðleggingum
– Íslendingar borða of lítið af grænmeti og ávöxtum og drekka minna af mjólk
Aðeins 2% landsmanna ná að
uppfylla ráðleggingar um
mataræði í heild miðað
við niðurstöður
landskönnunar sem
Embætti landlæknis
og Rannsóknarstofa
í næringarfræði við
Heilbrigðisvísindasvið
Háskóla Íslands
framkvæmdu á árunum
2019–2021.
Holl og fjölbreytt fæða
er mikilvæg fyrir heilsu
og vellíðan manna, bæði
til skemmri og lengri tíma.
Embætti landlæknis hefur frá
árinu 1990 fylgst reglulega með
mataræði landsmanna með það
að markmiði að leiðbeina bæði
almenningi og stjórnvöldum um
hvað megi bæta. Niðurstöður einnar
slíkrar könnunar var gerð opinber á
dögunum og var hún borin saman
við niðurstöður könnunar frá árinu
2019.
Þar kemur í ljós að neysla ávaxta,
mjólkur og trefjaefna minnkar.
Inntaka kolvetna og viðbætts sykurs
er á niðurleið en mettuð fita er enn
of há miðað við ráðleggingar.
Samkvæmt niður-
stöðunum stendur
grænmetisneysla í
stað og er að meðaltali
114 grömm á dag.
Einungis 1%
þ á t t t a k e n d a
borðuðu meira
en 250
grömm af
grænmeti
á dag
eins og
ráðlagt
e r .
Dregið hefur úr neyslu ávaxta og
berja og er minna en 100 grömm
á dag en ráðlagður dagskammtur
er 250-300 grömm á dag. Hreinir
safar eru þó undanskildir tölunum.
Íslendingar mættu borða meira
af heilkornavörum á borð við
heila hafra, bygg, rúg, heilhveiti
og hýðishrísgrjón og skipta þeim
út fyrir fínni vörur. Meðalneysla
heilkorna er aðeins 56 grömm á dag
en ráðlagt er að neyta 70 gramma
á dag. Um 30% þátttakenda
neyttu engra heilhveitikornvara
þá daga sem neysla þeirra var
skrásett. Könnunin leiddi einnig í
ljós að fólk borðar tvöfalt meira
af sætabrauði, kökum og kexi en
af heilkornavörum, eða rúm 300
grömm á viku.
Minni mjólk en meiri ostur
Grænmetisréttir sem innihalda
baunir, linsur, hnetur og fræ var á
borðum hjá fjórðungi þátttakenda
einu sinni í viku eða oftar.
Meðalneysla af hnetum var um
5 grömm af dag en ráðlagt er að
borða um 30 grömm á dag, eða það
sem nemur hnefafylli.
Rúmlega þriðjungur þátttakenda
sögðust borða 2-3 fiskmáltíðir á
viku eins og ráðlagt er. Minna
en 1% af konum í yngsta aldurs-
hópnum (18–39 ára) fylgdu þeim
ráðleggingum.
Neysla á rauðu kjöti er hins
vegar umfram ráðlögð viðmið.
Heildarkjötneysla fer þó minnkandi
og er 581 gramm á viku. Ráðlagt
er að fara ekki yfir 500 grömm á
viku. Á sama tíma hefur neysla á
alifuglakjöti aukist og er nú um 245
grömm á viku.
Rúm 30% þátttakenda inn-
byrða ráðlagðan dagskammt
af mjólk og mjólkurvörum.
Meðalmjólkurneysla hefur minnkað
töluvert, úr 300 í 245 g á dag. Neysla
á feitri mjólk hefur aukist á meðan
fituminni mjólk er minna drukkin.
Neysla á osti hefur aukist um 20%
frá árinu 2019. Um 54% kvenna
ná ekki ráðlögðum dagskammti af
kalki gegnum fæðuflokkinn en hægt
er að ná kalki úr öðrum vörum, t.d.
með kalkbættri jurtamjólk.
Neysla á sykruðum gos- og
svaladrykkjum er á niðurleið og
minnkaði um 40% milli kannana.
Ungir karlar drekka mest af
þessum drykkjum, en 40% karla
á aldrinum 18–39 drekka meira en
lítra af sykruðum gosdrykkjum á
viku. Sælgætisneysla og ísát stóð í
stað frá fyrri könnun, en fram kom
í máli Hólmfríðar Þorgeirsdóttur,
verkefnastjóra hjá Embætti
landlæknis, að vel þekkt sé vanmat
þátttakenda á slíkri neyslu.
Of lítið af kolvetnum
Þegar horft er til þeirra næringar-
efna sem þátttakendurnir innbyrtu
með matnum kom í ljós að
meðaltal heildarorku voru 2.044
hitaeiningar á dag. Þar komu
18% úr próteinum, sem er ríflegt
miðað við ráðleggingar. Neysla á
fitu hefur aukist og er nú rétt yfir
ráðleggingum, eða 41%, og telur
þar sér í lagi aukning á mettuðum
fitusýrum sem fóru úr fjórtán í
sextán prósent milli kannana.
Samkvæmt ráðleggingum ættu
þær ekki að fara yfir 10%. Á
meðan komu 37% úr kolvetnum
sem er undir ráðleggingum og mun
lægra hlutfall en í síðustu könnun. Í
máli Jóhönnu Eyrúnar Torfadóttur
kom fram að skýringin á því liggi
í minnkandi neyslu trefjaefna og
viðbætts sykurs.
Neysla flestra vítamína og
steinefna náðu að meðaltali
ráðlögðum dagskömmtum.
Undantekningin er inntaka
D-vítamíns en öllum er ráðlagt
að taka auka D-vítamín sem
bætiefni. /ghp
Holl og fjölbreytt fæða er mikilvæg fyrir heilsu og vellíðan. Myndi/Odd Stefán
Um 30% þátttakenda neyttu engra
heilhveitikornvara þá daga sem
rannsóknin fór fram. Ráðlagt er að
borða um 70 grömm á dag.
VANDAMÁL Í ELDSNEYTI??
Dísel bætiefnið frá eyðir öllum raka í eldsneytiskerfum,
hreinsar spíssa og kemur því í veg fyrir sveppamyndun.
Það geta því sparast töluverðir fjármunir með því að nota
DIESEL SYSTEM CLEAN
MOTUL Á ÍSLANDI WWW.MOTULISLAND.IS SÍMI 462-4600
Stórlækkað verð á Diesel
System Clean í 10L
umbúðum.
Hægt að panta
í vefverslun
Birgitta Lúðvíksdóttir og Þórður Sigurjónsson á Möðruvöllum 3 taka við
verðlaunum fyrir afburðagóða sauðfjárrækt á liðnu ári. Birgir Arason,
formaður BSE, veitir verðlaunin.
Ábúendur á Möðruvöllum í
Hörgárdal, bræðurnir Þórður
og Sigmundur Sigurjónssynir,
og eiginkonur þeirra, Birgitta
Lúðvíksdóttir og Helga Stein
grímsdóttir, hlutu sauð
fjár ræktar verðlaun Búnaðar
sam bands Eyjafjarðar fyrir
árið 2021. Verðlaunin
voru afhent á aðal
fundi BSE nýverið.
Eftir að bú -
rekstri Möðru-
valla ehf. var
hætt á bænum
tóku Þórður og
Birgitta jörðina
á leigu og keyptu
íbúðarhús sem ber
nafnið Möðruvellir 3,
fluttu þangað og tóku til
við að fjölga kindum og efla
sauðfjárbúið. Sigmundur og Helga
fluttu í Möðruvelli 4 og hafa rekið
sauðfjárbúið þar síðan. Lengst af
hafa ábúendur unnið við önnur
störf með búskapnum og Þórður
við störf hjá BSE og Bókvís ehf.
um langt árabil og Birgitta einnig
um skemmri tíma.
Þau öll sem standa að
bú rekstrinum hafa frá æsku lifað
og hrærst í búskap eða störfum í
kringum hann.
Frá upphafi hafa afurðir verið
eins og best gerist og eru þau ávallt
í hópi þeirra sem ná hvað bestum
árangri þar. Að meðaltali
síðastliðin 8 ár hafa
verið um 35 kg eftir
vetrarfóðraða á
og fallþungi
undanfarin ár
milli 19 og 20 kg
og frjósemi einnig
til fyrirmyndar
eftir 250-300 ær.
Einkunn fyrir gerð
er einnig afar góð og
fór í rúmlega 11 fyrir
tveimur árum.
Við uppgjör síðastliðins
hausts voru 278 ær með 1,89 lömb
til nytja með 19,3 kg fallþunga
sem gerir 36,7 kg eftir hverja á. Þá
skiluðu 36 gemlingar að jafnaði 18,1
kg af kjöti. Einkunn fyrir vöðva er
10,66 og fita 7,74 sem gerir hlutfall
þar á milli 1,38. Á búinu voru 62 ær
fleirlembdar. /MÞÞ
Aðalfundur Búnaðarsambands Eyjafjarðar:
Ábúendur á Möðruvöllum hlutu
sauðfjárræktarverðlaunin