Bændablaðið - 24.03.2022, Side 39
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. mars 2022 39
Framvél - F3100 Afturvél - R3100
2.590.000 + vsk. 2.490.000 + vsk.
GÆÐI I STYRKUR I ENDING
Athugið!
Tilbúnar til
afgreiðslu
núna.
Kæli- og frystiklefar í öllum
stærðum og gerðum
Margar gerðir af
vélbúnaði fyrir
kæli- og frystiklefa
Mikið úrval af hillum
Járnháls 2 - 110 Reykjavík
Sími 440 - 1800
www.kaelitaekni.is
Kælitækni er leiðandi í sölu
og uppsetningu á kerfum með
náttúrlegum kælimiðlum
HECHT SENTINEL
viðarkolagrill
Grillið er hægt að nota
bæði til að reykja og grilla
allan mat. Verð 49.900
HECHT 5166
Rafmagnshlaupahjól
20km drægni, hámarkshraði 25km
ber allt að 100kg og vegur 10,8 kg.
8”dekk. Tilboðsverð 41.000
HECHT COCIS BLACK rafmagns-
bifhjól götuskráð fyrir 15ára og eldri, fer
allt að 60 km á hleðslu. Hámarkshraði 45km.
Verð 249.000
Helluhraun 4, Hafnarfirði
sími 565 2727 & 892 7502
www.rag.is
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
KÚPLINGAR
gerðir dráttarvéla
Hákon B. Harðarson og
Þorbjörg H. Konráðsdóttir á
Svertingsstöðum 2 í Eyjafjarðar-
sveit hlutu naut gripa ræktar-
verðlaun Búnaðar sambands
Eyjafjarðar fyrir árið 2021.
Þau tóku við búskap á
Svertingsstöðum 2 árið 2015
af foreldrum Hákonar. Hann er
4. ættliður sem er með búskap
á Svertingsstöðum, en Tryggvi
Jónsson og Ágústína Gunnarsdóttir,
langafi og -amma Hákonar, keyptu
Svertingsstaði 1921.
Á Svertingsstöðum hefur alla tíð
verið rekinn blandaður búskapur
þótt mjólkurframleiðslan sé nú
aðalbúgrein búsins og hefur mikið
verið lagt upp úr góðu skýrsluhaldi
og skipulögðu ræktunarstarfi í
nautgriparæktinni allt frá upphafi
skýrsluhalds í nautgriparækt.
Nautgriparækt á Svertingsstöðum á
því langa sögu.
Búið hefur verið virkt í
ræktunarstarfinu með notkun sæðinga
og með því að senda nautkálfa á
nautastöð. Í ræktunarstarfinu hefur
áherslan verið lögð á að rækta
afurðasamar og endingargóðar kýr
sem henta til mjólkurframleiðslu við
nútímaaðstæður. Nú er í notkun reynt
naut frá Svertingsstöðum, Álmur
16007, en þetta nafn bar einnig
fyrsta nautið sem fór á nautastöð
frá búinu 40 árum áður en það var
Álmur 76003.
Aðalsmerki þess nauts var
einmitt góð ending og afurðasemi.
Nú eru 3 nautkálfar í uppeldi á
Nautastöð Bændasamtaka Íslands
frá Svertingsstöðum, en alls hafa
þau Hákon og Þorbjörg sent 11 naut
á nautastöðina síðan þau tóku við
2015.
Oft í hópi afurðahæstu
búa landsins
Svertingsstaðir hafa síðustu ár oft
verið í hópi afurðahæstu búa landsins
og var í hópi fyrstu búa landsins sem
náðu meira en 6000 kg/árskú en það
var afurðahæsta bú Eyjafjarðar ári
ð1997, þá með 16, 9 árskýr.
Búið hefur stækkað jafnt og þétt
síðan þá. Árið 2007 var nýtt 84 bása
fjós með mjaltaþjón tekið í notkun á
Svertingsstöðum.
Fyrsta búskaparár Hákonar og
Þorbjargar var meðalnyt á búinu
6.405 kg á árskú. Í ágúst 2020 náðu
kýrnar á Svertingsstöðum fyrst að
rjúfa 8000 kg múrinn og í árslok það
ár var búið níunda afurðahæsta bú
landsins í hópi 14 búa sem voru með
afurðir yfir 8000 kg/árskúkú.
Búið var árið 2021 fimmta
afurðahæsta bú landsins með
61,7 árskú og 8.337 kg/árskú
þar sem fituprósenta var 4,16 og
próteinprósenta 3,5. Afurðaaukning
frá því að Hákon og Þorbjörg tóku
við búskap í ársbyrjun 2015 er því
rúmlega 1900 kg/árskú.
Ræktunarstig á búinu er hátt.
Nú í lok febrúar voru 63 kýr í
mjólkurframleiðslu og í þeim hópi
eru 14 nautsmæður. Af 42 kvígum
í uppeldi eru 13 flaggaðar sem
efnilegar kvígur. Meðal kynbótagildi
hjarðarinnar í heild er 104,6, eða
rúmlega 4 kynbótastigum yfir
meðaltali. /MÞÞ
Aðalfundur Búnaðarsambands Eyjafjarðar:
Bændur á Svertingsstöðum fá
nautgriparræktarverðlaun
Hákon B. Harðarson á Svertingsstöðum 2 í Eyjafjarðarsveit tekur við
nautgriparæktarverðlaunum BSE fyrir árið 2021 úr hendi Birgis Arasonar,
formanns sambandsins.