Bændablaðið - 24.03.2022, Blaðsíða 42
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. mars 202242
Romm er brennt vín unnið úr
gerjuðum melassa og sykurreyrs
safa. Drykkurinn er upprunninn
á eyju austast í Karíbahafi og
nátengdur þrælaverslun og
þrælahaldi. Flestar tegundir af
rommi eru framleiddar á eyjum
í Karíbahafi og í MiðAmeríku.
Romm var um tíma viðurkennt sem
gjaldmiðill á pari við gull.
Heimildir um áfengan drykk sem
unninn er úr safa sykurreyr þekkjast
allt frá sjöundu öld fyrir Krist.
Náttúruleg heimkynni sykurreyrs
eru í hitabelti Suður- og Suðaustur-
Asíu. Ættkvíslarheiti plöntunnar
á latnesku er Saccharum og þrjár
tegundir eru algengastar, S. barberi,
sem er upprunnin á Indlandi eða Kína
og S. edule og S. officinarum, sem
báðar koma frá Nýju-Gíneu.
Sykurreyr og sykurreyrssafi
Samkvæmt indverskum Ayurveda-
lækningum frá sjöundu öld fyrir
upphaf vestræns tímatals var hollt
að drekka gerjaðan sykurreyrssafa í
félagsskap vina. Sami drykkur undir
heitinu shidhu er síðar nefndur í fornu
riti á sanskrít.
Á sjöttu öld fyrir Krist hófst
verslun, í smáum stíl, með sykurreyr
og sykur úr reyr frá Indlandi um
Persíu til Grikklands. Í fyrstu var
sykurreyr hjúpaður talsverðri leynd
og talið að stönglar plöntunnar
framleiddu hunang án býflugna, enda
var hunang eina þekkta sætuefnið í
Evrópu á þeim tíma. Sykur var kallað
hvítt salt og salt frá Indlandi. Verð á
sykri var gríðarhátt í fyrstu og reyndar
allt fram á 18. öld og ekki á færi nema
aðalsmanna og ríkra að neyta þess.
Sagt er að Pétur I af Kýpur hafi
fært fulltrúum þjóðhöfðingja Evrópu
á Kraká-þinginu árið 1364 flöskur af
rommi sem gjöf, en tilgangur þingsins
mun hafa verið að ræða trúarleg áhrif
múslima í Evrópu. Samkvæmt þessu
má ætla að sykurreyr hafi verið
ræktaður á Kýpur á fjórtándu öld, að
verslað hafi verið með drykki gerjaða
úr sykurreyr á Kýpur eða að um allt
öðruvísi drykk hafi verið að ræða sem
var kallaður romm.
Malay-fólk á eyjunum Súmötru,
Borneó og á Malasíuskaga hefur í
tugi alda gerjað áfengan drykk sem
það kallar brum úr safa sykurreyrs.
Landkönnuðurinn Markó Póló segir
í ferðabók sinni frá 14. öld að hann
hafi smakkað áfengi sem gert var úr
sykurreyr þar sem í dag er Íran.
Í Tékklandi og Slóveníu er búið til
rommlíkt áfengi úr sykurrófum sem
kallast tuzemak. Sykurreyr var ein af
fyrstu plöntunum sem Evrópumenn
fluttu með sér til eyja Karíbahafs eftir
landafundina í vestri. Eftir að ræktun
á sykurreyr barst til Nýja heimsins
óx framleiðsla sykurs hratt og verð á
honum lækkaði.
Þrátt fyrir það urðu plantekru-
eigendur á eyjum eins og Barbados,
svokallaðir sykurbarónar, fljótlega
með ríkustu mönnum í heimi, enda
margir hverjir með illræmdustu
þrælahöldurum sem sögur fara af.
Rytmi þræla
Sagan segir að rytminn í söng
þrælanna á sykurökrunum hafi verið
mun ákafari og hraðari en þeirra sem
strituðu við bómull og tóbaksrækt.
Auk þess sem líftími sykurþrælanna
var mun styttri en við annars konar
plantekruþrældóm.
Gerjaður safi úr sykurreyr
Melassi er hliðar- og afgangsafurð
sem fæst við vinnslu á sykri úr
sykurreyr og safa plöntunnar.
Þrælar frá Afríku á eyjum
Karíbahafsins, nánar tiltekið á
eyjunni Nevis, uppgötvuðu á 17.
öld að hægt var að gerja sterkt
áfengi úr melassa. Um drykkinn var
sagt í bréfi frá 1620 að hann væri
rótsterkur og hryllilegur á bragðið.
Nafnaspeki
Ekki er vitað fyrir víst hver er
uppruni heitisins rum eða romm eins
og drykkurinn kallast á íslensku og
nokkrar getgátur á lofti.
Ein kenningin og sú sem talin
er líklegust tengir heitið við
„rumlullion“ eða „rumbustion“,
fyrra orðið var heiti á drykk
sem gerður var úr soðnum
sykurreyrsstönglum en hitt táknar
óróa eða læti.
Heitið rum var almennt komið í
notkun um 1650 sem heiti á áfengum
drykkjum frá eyjum í Karíbahafi og
ekki síst Barbados.
Auk þess sem drykkurinn
gekk undir gælunöfnum eins og
blóð Nelsons lávarðar, djöflabani,
djöflavatn, sjóræningjavatn og
Barbadosvatn.
Blóð Nelsons lávarðar
Nelson lávarður, flotaforingi og
þjóðhetja Breta, lést skömmu eftir
að hann sigraði Spánverja og Frakka
í sjóorrustu 1805, sem kennd er
við Trafalgar. Eftir dauða hans var
skrokknum komið fyrir í tunnu og
tunnan fyllt af rommi til að marinera
og varðveita líkið sem skyldi jarðað
á Englandi. Við heimkomuna kom í
ljós að rommpækillinn var horfinn úr
tunnunni og við nánari eftirgrennslan
kom í ljós að áhöfnin á skipinu sem
flutti hetjuna heim hafði borað gat á
tunnuna og drukkið rommið.
Gjaldmiðill á pari við gull
Eiming á rommi úr sykurreyr hófst í
Boston í Massachusetts-ríki í Norður-
Ameríku árið 1664. Framleiðsla á
Romm tengdist snemma sjómennsku og sjóræningjum.
Vilmundur Hansen
vilmundur@bondi.is
SAGA MATAR&DRYKKJA
Rommi helt niður á bannárunum í Bandaríkjunum. Rommi var oft smyglað með því að fleyta rommtunnum í land. Á myndinni má sjá eina slíka
sendingu sem laganna verðir hafa komist yfir og eru í óða önn að hella niður.
Romm er stundum kallað blóð Nelsons
lávarðar og flotaforingja, en ekki er allt
sem sýnist um tilkomu nafnsins.
Drykkur með slæma samvisku