Bændablaðið - 24.03.2022, Blaðsíða 52
52 Bændablaðið | Fimmtudagur 24. mars 2022
Það kann að hafa farið fram
hjá einhverjum að nú er DNA-
sýnataka úr kvígum að hefjast.
Sýnataka er einn mikilvægasti
hlekkurinn í framkvæmd
erfðamengisúrvals en með
arfgerðargreiningu gripa fást sem
mestar og bestar upplýsingar um
kúastofninn.
Vegna þess að arfgerðir taka
breytingum með hverri kynslóð
vegna endurröðunar erfðavísa þarf
að taka vefjasýni til greiningar úr
sem flestum fæddum kvígum á
hverjum tíma. Það er því mælst
til þess að allir bændur taki sýni
úr öllum kvígum, nokkuð sem er
ákaflega mikilvægt til þess að ná
sem mestum og bestum árangri með
þessu verkefni.
Sýnatakan hefur nú verið færð í
hendur bænda sjálfra og verður með
þeim hætti að sýni er tekið um leið
og einstaklingsmerki er sett í gripinn.
Til þess eru notuð sérstök merki sem
eru með áföstu sýnatökuglasi og er
slíkt merki sett í annað eyrað á hverri
kvígu sem ætlunin er að taka sýni úr.
Þessi merki er hægt að panta inni á
bufe.is eins og önnur eyrnamerki.
Hægt er að velja um tvær
tegundir merkja. Þar er annars
vegar um að ræða merki frá OS í
Noregi sem Plastiðjan Bjarg flytur
inn og hins vegar merki frá AgroTag
í Danmörku. Sýnatökumerkin frá
OS eru svokölluð TST-merki en
sýnatökumerki frá AgroTag heita
MultiFlex Ddna.
Pantanir fara fram inn á bufe.
is með sama hætti og þegar önnur
eyrnamerki eru pöntuð. Breytingin
felst í að þegar pöntuð eru eyrnamerki
þarf að skipta pöntuninni þannig að
hluti merkjanna sé til sýnatöku og
hinn hlutinn hefðbundin eyrnamerki,
það er í þeim tilvikum ef einnig
vantar hefðbundin merki.
Þessu er best lýst með dæmi.
Segjum að panta eigi 100 merki og
næsta númer sé 801. Þá má t.d. byrja
á að panta 50 stk. af hefðbundnum
merkjum til notkunar í nautkálfa
sem verða þá númer 801-850. Síðan
eru pöntuð 50 stk. af merkjum til
sýnatöku sem verða þá númer 851-
900 og notast í kvígur. Auðvitað má
snúa þessu á hinn veginn og hafa
kvígurnar með lægri númerunum
og á sama hátt má panta þann fjölda
sem hentar í hvert skipti.
Athugið að fyrir TST-merkin frá
Bjargi þarf sérstaka töng. Ákveði
menn að skipta yfir í AgroTag merki
er ekki hægt að nota sömu töng og
fyrir merkin frá Bjargi. Hins vegar er
ein og sama töngin notuð fyrir allar
merkjagerðir frá AgroTag.
Merking fer svo fram með sama
hætti og áður nema hvað úr öðru
eyra kvígukálfanna er tekið sýni, það
er notað merki með sýnatökuglasi.
Að lokinni merkingu er sýnið svo
sett í box í mjólkurhúsinu þar sem
mjólkurbílstjórinn tekur sýnið eða
sýnin í næstu ferð. Þetta box eiga
allir kúabændur að vera komnir
með í hendurnar. Þannig þarf hver
og einn bóndi ekki að hafa neinar
áhyggjur af sendingu sýnanna.
Það þarf heldur ekki að skrá
sýnatökuna því númer sýnisins er
einstaklingsnúmer gripsins. Þannig
er tryggt að viðkomandi sýni sé úr
þeim grip sem ber sama númer.
Einhverjir kunna að velta fyrir
sér af hverju eru bara tekin sýni
úr kvígum. Því er til að svara að
vegna smæðar íslenska kúastofnsins
er fjöldi afkvæmaprófaðra nauta
takmarkaður. Það þýðir að til þess að
ná nægum fjölda arfgerðargreindra
gripa til þess að ná ásættanlegu
öryggi verðum við að nota
arfgerðargreingar á kúm/kvígum.
Þess vegna er farin sú leið að taka
sýni úr kvígum. Sýni verða svo tekin
úr völdum nautkálfum sem koma til
greina á nautastöð vegna kostnaðar
við hverja arfgerðargreiningu þegar
þar að kemur.
Kostnaður við arfgerðar-
greiningarnar sjálfar verður
greiddur af sameiginlegum
fjármunum greinarinnar. Bændur
greiða einungis þann mun sem er á
verði hefðbundins eyrnamerkis og
eyrnamerkis með sýnatökuglasi. Sá
munur er um 400-600 kr. á grip.
Hvaða niðurstöður gefa
þessar sýnatökur?
Ein fyrsta og mikilvægasta niður-
staðan er staðfesting á ætterni.
Sýnin eru arfgerðargreind og út
frá þeim og öðrum upplýsingum
er reiknað erfðamat, það er mat
á kynbótagildi gripsins. Það mat
liggur því fyrir nánast um leið og
niðurstöður greiningarinnar eða
mun fyrr en sambærilegt hefðbundið
kynbótamat. Ávinningurinn af
arfgerðargreiningum liggur í mun
hraðari erfðaframförum fyrir
stofninn með styttu ættliðabili,
staðfestum ætternisupplýsingum
og öruggara mati. Þannig verður til
dæmis hægt að velja nautsmæður
með sama öryggi og reynt naut.
Hver og einn bóndi getur svo
t.d. nýtt niðurstöðurnar til vals á
gripum. Þannig má til dæmis hugsa
sér að allra lökustu kvígunum verði
fargað og þær efnilegustu sæddar
með nautsfeðrum. Þá má einnig
sæða lökustu gripina með holdasæði
en hafið í huga að ekki er heimilt
að sæða íslenskar kvígur með slíku
sæði. Upplýsingar um eiginleika
sem stýrast af einföldum erfðum,
t.d. arfblendni fyrir horn og jafnvel
litaafbrigði, verður vonandi hægt
að fá úr sýnunum þegar fram líða
stundir.
Á heimasíðu RML er að finna
nánari upplýsingar um sýnatökuna
og framkvæmd hennar, meðal
annars leiðbeiningamyndband og
síðu með spurt og svarað. Þá er
ávallt velkomið að hafa samband,
annaðhvort í síma 516 5000 eða með
tölvupósti en netföng starfsmanna
má sjá á www.rml.is.
Notkun á lífrænum áburðargjöfum
ásamt jarðvegsbætandi efnum
kemur til með að aukast með
hækkandi áburðarverði og aukinni
umhverfisvitund. Einnig er ljóst
að lífræn aðföng koma til með að
berast eftir ýmsum leiðum inn í
næringarefnahringrás ræktarlands
á komandi árum.
Til að mynda verður óheimilt að
urða lífrænan úrgang á næsta ári. Í
samtölum við bændur hafa einnig
komið fram áhugaverðar hugmyndir
varðandi notkun á efnivið sem vert
væri að prófa.
Gerður er greinarmunur á lífrænum
áburði og jarðvegsbætandi efnum.
Þannig hefur lífrænn áburður beint
áburðargildi umfram önnur jákvæð
áhrif sem hann kann að skapa fyrir
plöntur. Jarðvegsbætandi efni hafa
ekki bein áburðaráhrif, heldur aðallega
jákvæð áhrif á ástand jarðvegs og
á þann hátt aðeins óbein áhrif á
vöxt plantna.
Búfjáráburð hafa bændur nýtt
með ýmsum hætti og þekkja leiðir
til að nýting hans verði sem best,
en þær geta verið ólíkar eftir því á
hvaða formi hann er. Þegar áburðar-
áætlanir eru gerðar er horft til
áætlaðrar nýtingar á næringarefnum
búfjáráburðar ásamt töflugildum um
efnainnihald hans ef ekki eru til mæld
gildi um það á viðkomandi búi.
Mælingar sýna að talsverður
munur getur verið á þurrefni hans
og innhaldi áburðarefni á milli búa.
Köfnunarefni í búfjáráburði má
skipta í lífrænt bundið köfnunarefni
og ammoníum (ólífræna hluta
köfnunarefnisins). Í áburðaráætlunum
er mest horft á ammoníumhluta
áburðarins til þess að áætla hve mikið
af köfnunarefninu verði aðgengilegt
fyrir plöntur fljótlega eftir dreifingu.
Lífrænt bundni hluti köfnunar-
efnisins verður hins vegar
aðgengilegur samhliða því að
búfjáráburðurinn brotnar niður í
jarðvegi og því er erfiðara að meta
ávinning þess hluta. Niðurbrotshraði
lífrænna efna í jarðvegi er að hluta
háður hitastigi jarðvegs og í köldu
loftslagi líkt og á Íslandi má gera
ráð fyrir að niðurbrotið gerist hægar
og uppsöfnun næringarefna sé því
nokkur.
Þannig eru langtímaáhrif af notkun
búfjáráburðar ekki metin að fullu inn í
áætlanagerð enda eru upplýsingar um
niðurbrotshraða ólíkra lífrænna efna
í íslenskum jarðvegi takmarkaðar.
Við mat á áburðarþörfum er þó tekið
mið af uppsöfnun vegna notkunar
búfjáráburðar.
Sýnataka bænda úr búfjáráburði
hefur aukist á undanförnum árum.
Smá safn er komið upp af sýnum
teknum úr haugum sem voru
nokkurra ára gamlir og höfðu
haft tíma til þess að brjóta sig.
Það vekur athygli hve há gildi
fyrir köfnunarefni eru í veðruðum
haugum.
Gildi fyrir ammoníum virðast hins
vegar lækka hratt og með tímanum
er það fyrst og fremst lífrænt
bundið köfnunarefni sem er eftir.
Notkun á sagi og hálmi til
undirburðar bindur þvag og eykur
þar með varðveislu á köfnunarefni,
niðurbrotshraði verður hins vegar
hægari enda þarf undirburðurinn
lengri tíma til að brotna niður.
Þar sem mikið er af undirburði í
búfjáráburði getur það tímabundið
aukið þörf á köfnunarefnisgjöf fái
hann ekki tíma til þess að brotna
nægjanlega niður í haug.
Á næstunni verða haldnir
kynningarfundir víða um land á
vegum RML. Þar mun ráðunauturinn
Cornelis Aart Meijlessem fjalla um
ýmsar leiðir til nýtingar á lífrænum
úrgangi og jarðræktarráðunautar
RML fara yfir þætti sem tengjast m.a.
notkun og nýtingu á búfjáráburði sem
og öðrum lífrænum áburðarefnum.
Skráning á fundina fer fram á
heimasíðu RML.
Reykjavík Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is
Akureyri Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
Lely Center Ísland Grammer sæti
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Nýting lífrænna áburðarefna
Þórey Gylfadóttir
ráðunautur, Rekstrar-
og umhverfissvið
thorey@rml.is
Eiríkur Loftsson
ráðunautur, Rekstrar-
og umhverfissvið
el@rml.is
Snorri Þorsteinsson
ráðunautur, Rekstrar-
og umhverfissvið
snorri@rml.is
Taðhaugur.
Guðmundur Jóhannesson
ráðunautur
í nautgriparækt
mundi@rml.is
DNA-sýnataka úr kvígum vegna erfðamengisúrvals
Merki og töng vegna vefjasýnatöku.
Mynd / Úr kennslumyndbandi RML
Upplýsingar
flugnanet@gmail.com www.ölfus.is sími 8959801
Flugnanet Flugnanet
Nú er orðið tímabært að panta net fyrir glugga
og hurðir, sumarið er handan við hornið!
Tíminn er fljótur að líða...