Bændablaðið - 24.03.2022, Side 54
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. mars 202254
Ford Mustang hefur verið þekkt
vörumerki síðan 1961 þegar fyrsti
prufubíllinn var framleiddur, en
1965 var byrjunin á gullaldarárum
Mustang og seldust yfir 2 milljónir
Mustang bíla á árunum 1965 til
1969. Metsala var 1966 þegar
607.568 Mustang bílar voru seldir
á einu ári.
Nú er Ford komið með nýjan
100% rafmagnsknúinn fjórhjóla
drifinn Mustang sem hægt er að
fá í fimm mismunandi útfærslum.
Ódýrasti Mustang MachE er á
verði frá 6.890.000 og sá dýrasti er
MachE GT LR, sem er 487 hestöfl
og kostar frá 10.990.000.
Prófaði Mustang
Mach-E SR AWD
Mustanginn sem var prófaður er
sagður vera 269 hestöfl, á að geta
farið úr kyrrstöðu í 100 á 5,6 sek.,
fjórhjóladrifinn með 75kWh, en hægt
er að fá stærri rafhlöður, eða 98 kWh,
sem eiga að koma bílnum í allt að
610 km við bestu skilyrði. Uppgefin
drægni á prufubíl er um 400 km.
Mustang er þannig útbúinn að þegar
maður setur í gang mælir hann hitann
úti og gefur þá upp drægnina miðað
við hitastig við gangsetningu sem
var 358 km, í mínu tilfelli í tveggja
stiga hita.
Fyrri daginn keyrði ég bílinn um
200 km og taldi rafhlaðan tiltölulega
rétt niður í samræmi við ekna
kílómetra.
Seinni dagurinn var kaldari og
líka verra færi og taldi mælirinn
heldur hraðar niður. Eknir voru um
80 km, en rafhlöðumælirinn taldi
nálægt 100. Taka skal fram að bíllinn
var kaldur og ekki í hleðslu yfir
nóttina, en hleðslan hitar rafhlöðuna.
Ekki skemmtilegt að prófa bíl á
skemmdu og holóttu slitlagi
Ástand vega hér í Reykjavík er
þannig að sumar götur er vart
keyrandi vegna holuskemmda.
Smæstu holurnar í Reykjavík voru
verri fyrir fjöðrunina á bílnum en
holótti malarvegurinn heim að
sveitabænum í Kjósinni sem ég
keyrði. Ég var ekkert að hlífa bílnum
fyrir holunum þar, vitandi að ég væri
á bíl sem var yfir tvö tonn og ekkert
varadekk og því í hættu á að höggva
dekk í holu. Holur í hefðbundnum
malarvegum eru mun hættuminni
en malbiksholur með sínar hvössu
brúnir sem þarf að varast mun meir
á þyngri bílum. Á þeim vegum sem
malbik var óskemmt var virkilega
ljúft að keyra bílinn. Eins og alla bíla
sem ég prófa þá hávaðamældi ég hann
á 90 km hraða og kom Mustanginn
ágætlega út í mælingunni, var 67,8
db og það á vetrardekkjum.
Fjórhjóladrifið virkaði vel í hálku
og bremsur líka
Bíllinn er fljótur að hitna að innan og
gott að hafa hita í stýrinu. Almennt
eru aksturstölvur í nútímabílum
flóknar fyrir mér, en í þessum bíl
fannst mér ég vera nokkuð laginn
við að læra á það sem ég var að
leita eftir.
Bíllinn er með mikið af ýmiss
konar öryggisbúnaði og þægindum,
svo sem upphitaða framrúðu,
akreinalesara, árekstrarvara, nema
sem skynjar gangandi vegfarendur,
blindhornsvara og ýmislegt fleira.
Á nokkrum stöðum þar sem ég
ók var mikil hálka og fannst mér
fjórhjóladrifið skila bílnum vel
áfram. Hann var fljótur að ná
hraða, en vitandi af miklum þunga
bílsins þá fannst mér hann bremsa
óvenju vel miðað við skriðþunga
og bremsaði nánast alltaf beint í
hálkunni.
Gott verð miðað við það
sem í bílnum er
Farangursrýmið er gott, en geymslu
rými er bæði að framan og aftan. Að
vísu frekar lítið að framan sem tekur
ekki nema tvo til þrjá innkaupapoka.
Sætin eru góð, bæði fram og
aftursæti, en þegar ég settist í
aftursætið minntist ég aftursætanna í
gamla 1966 Mustang sem voru einn
helsti ókostur þeirra bíla og ekki
góð fyrir lengri keyrslur. Þegar ég
bar saman það sem í bílnum er og
verðið þá finnst mér ekki mikið
verð fyrir bílinn, 7.990.000. Samt
hefði ég viljað sjá varadekk. Eins
að maður þurfi ekki að muna að
kveikja ljósin í hvert skipti sem
maður leggur upp í ökuferð til að
fá ljósin aftan á bílnum til að vera
löglegur í umferðinni. Bíll sem er
2.086 kg er í mikilli hættu á að
höggva dekk í færð eins og verið
hefur að undanförnu. Þar sem að
dekkin eru af stærðinni 225/55/19
er ekki nema um 12 cm fjöðrun sem
maður fær út úr hjólbarðanum.
VÉLABÁSINN
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
rafmagnsbíll
Ford Mustang Mach-ESR AWD. Myndir / HLJ
Fannst það ókostur að þurfa alltaf að muna að kveikja ljósin í hvert sinn
sem ég fór af stað til að fá afturljósin á.
Þegar mælaborðið segir að 79 km séu eftir á rafhlöðu kemur viðvörun og
áminning um að fara að hlaða bílinn.
Bremsudælurnar eru næstum eins
stórar og í vörubíl, en þær virka vel.
Á gamla Mustang var oft kíkt á 8 strokka vélina, en í þessum er lítið
farangursrými.
Ekkert varadekk, bara pumpa
og vökvi sem bjarga engu þegar
dekkin höggvast í sundur í hvössum
malbiksholum.
Bakkmyndavélin er mjög góð og
sýnir tvær myndir.
Mæling á hávaða upp á 67,8db. er
ágæt í rafmagnsbíl á 90 km hraða.
Allt yfir 69-70 finnst mér hins vegar
óásættanlegt í rafmagnsbíl.
Þyngd 2.086 kg
Hæð 1.624 mm
Breidd 1.881mm
Lengd 4.713 0mm
Helstu mál og upplýsingar