Skessuhorn - 15.12.2021, Síða 101
MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 2021 101
Óskum Vestlendingum og landsmönnum öllum
gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
GLEÐILEG
JÓL
Sendum Vestlendingum og
landsmönnum öllum
okkar bestu óskir um gleðileg
jól og farsælt nýtt ár
Stjórn og starfsfólk
Búnaðarsamtaka
Vesturlands sendir bændum
og búaliði á starfssvæði
Búnarsamtakanna hugheilar
jólakveðjur með ósk um
farsælt komandi ár.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
4
Þökkum samstarf
á árinu sem
er að líða.
Pavlova
Þessi er kaka er virkilega góð ásamt
því að hún er einstaklega falleg á
veisluborðið.
Hráefni:
6 eggjahvítur
250 g sykur
2 tsk maizena mjöl
1 tsk hvítvíns edik
Toppuð með ½ l þeyttum rjóma.
Ber fram með t.d. jarðarberjum,
hindberjum, brómberjum eða rifs-
berjum.
Aðferð
Hitið ofninn í 130 gráður og
blástur.
Þeytið eggjahvítur þar til stíf-
ar (formaðar), bætið sykri varlega
saman við, þeytið þar til stífþeytt.
Bætið Maizena og ediki út í þeytið
þar til komið er saman í ca 30 sek.
Teiknið hring á bökunarpapp-
ír sem er 23-24 cm eftir t.d formi
eða disk.
Setjið marensinn á, smyrjið jafnt
út, sléttið úthringinn og topp.
Bakið við 130 gráður og blástur í
65 mín. Opnið ofninn, látið botn-
inn kólna í ofninum c.a 4 tíma eða
standa yfir nótt.
Setjið botninn á tertudisk. Þeytið
rjómann, setjið á botninn ásamt
berjum, njótið svo vel.
Rækju brauðterta
Hvað er betra en góð brauðterta á
kaffiborðið, sem rennur ljúft ofan í
mannskapinn, afar einfalt er að út-
búa tertuna.
Hráefni:
400 ml majones
¾ dós sýrður rjómi
1½-2 msk aromat krydd smakka til
1 msk þurrkuð steinselja (val)
7 egg harðsoðin
700 g rækjur
1 pk brauðtertubrauð frá Myllunni
er sjö laga.
Majones til að smyrja tertuna með
að utan.
Aðferð
Blandið majonesi og sýrðum rjóma
saman í skál ásamt kryddi. Eggin
skorin í eggjaskera og þeim bætt
út í.
Rækjur skolaðar, kreistið allan
vökva af þeim, bætið út í, blandið
saman.
Skerið skorpuna af brauðinu,
setjið sneið á bakka, smyrjið salati á
milli brauðlaga. Tertan á myndinni
er sjö laga. Smyrjið brauðtertuna
með þunnu lagi af majonesi á allar
hliðar og topp.
Skreytið með t.d. sítrónu (er
ómissandi), steinselju, eggjum og
gúrku.
Hveitikökur
Ég hreinlega elska hveitikökur
með smjöri, osti eða hangiáleggi
og dreypa með á heitu súkkulaði.
Hér er mín uppskrift af þessum afar
góðu hveitikökum.
Hráefni:
435 g hveiti (3 bollar)
3 tsk lyftiduft (vænar skeiðar)
½ tsk salt
40 g smjör við stofuhita (1 væn
matskeið)
10 g sykur (2 tsk)
400 g ab mjólk
Setjið öll hráefni saman í skál,
hnoðið saman alls ekki of mikið þó
því þá verða hveitikökurnar seigar.
Ef deigið er blautt bætið þá örlítið
af hveiti út í. Setjið deigið á mottu,
skiptið því í 5-6 parta, fletjið út og
bakið á báðum hliðum á meðal-
heitri pönnu. (ég hef hitann á 7 á
minni hellu). Kælið á grind.
Smyrjið með því áleggi sem ykk-
ur þykir best.
Restina sker ég í fernt og frysti,
tek svo út bita og bita og skelli í
brauðristina. Annars eru þær fljótar
að þiðna við stofuhita.
Verði ykkur að góðu!