Skessuhorn - 15.06.2022, Blaðsíða 11
hagvangur.is
Verkefnastjóri
Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi óskar eftir að ráða metnaðarfullan verkefnastjóra í 50% starfshlutfall. Í starfinu felast
fjölmörg tækifæri til að vinna að fjölbreyttum og áhugaverðum verkefnum um allt Vesturland. Viltu vera með okkur og sækja
fram? Möguleiki er á auknu starfshlutfalli, m.a. í kennslu og verkefnastjórnun. Starfsstöð er án staðsetningar.
Starfs- og ábyrgðarsvið
• Umsjón með vefsíðu og samfélagsmiðlum
• Aðkoma að sölu- og markaðsmálum
• Umsjón með kennslukerfum og nemendabókhaldskerfi
• Skipulagning og umsjón námskeiða eftir þörfum
• Umsjón með og/eða þátttaka í innlendum og erlendum þróunarverkefnum
• Ýmis tilfallandi verkefni
Sótt er um starfið
á hagvangur.is
Náms- og starfsráðgjafi/verkefnastjóri
Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi óskar eftir að ráða metnaðarfullan og öflugan náms- og starfsráðgjafa/verkefnastjóra í
100% starfshlutfall. Í starfinu felast fjölmörg tækifæri til að vinna að fjölbreyttum og áhugaverðum verkefnum um allt Vesturland.
Viltu vera með okkur og sækja fram? Starfsstöð er á Akranesi.
Starfs- og ábyrgðarsvið
• Náms- og starfsráðgjöf í fullorðinsfræðslu
• Kennsla tengd náms- og starfsráðgjöf
• Framkvæmd raunfærnimats
• Skipulagning og umsjón námskeiða/námsbrauta eftir þörfum
• Atvinnutengd ráðgjöf og þjónusta á vinnustöðum
• Umsjón með og/eða þátttaka í innlendum og erlendum þróunarverkefnum
• Ýmis tilfallandi verkefni
Sótt er um starfið
á hagvangur.is
Nánari upplýsingar um störfin veita Gyða Kristjánsdóttir, gyda@hagvangur.is,
og Þórdís Sif Arnarsdóttir, thordis@hagvangur.is.
Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi er sjálfseignarstofnun, starfar á sviði fullorðinsfræðslu og rekur tvær starfsstöðvar – á Akranesi og
í Borgarnesi. Starfsemi Símenntunarmiðstöðvarinnar hefur vaxið undanfarin ár. Framundan eru fjölmörg tækifæri til þess að starfa að
fjölbreyttum og áhugaverðum verkefnum í landshlutanum innan fullorðinsfræðslunnar og í samstarfi við hagsmunaaðila hverju sinni.
Sjá nánar á simenntun.is.
Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi