Skessuhorn


Skessuhorn - 15.06.2022, Blaðsíða 20

Skessuhorn - 15.06.2022, Blaðsíða 20
MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 202220 Laugardaginn 11. júní sást til hjól- reiðahóps sem fóru milli Reykhóla og Búðardals, gulklæddur í bak og fyrir. Þetta var ein æfingin hjá Ryn- keby hópnum íslenska, sem er að æfa sig fyrir stóra verkefnið, sem er hjólaferð 8. júlí til 16. júlí um Evrópu. Team Rynkeby er samevrópskt góðgerðarstarf, þar sem fólk frá fjöl- mörgum löndum hjólar á hverju ári um 1300 km á átta dögum frá Dan- mörku til Parísar og safnar þannig peningum til styrktar langveikum börnum, en framlag íslenska hópsins rennur til Umhyggju. Fyrirtæki og einstaklingar geta heitið á hópinn, en í fyrra safnaðist tæplega einn og hálf- ur milljarður í verkefninu í heild. Það rigndi aðeins á íslenska hóp- inn og blés um helgina, en hann þarf að búa sig undir hvað sem er, svo það kom ekki að sök. Mikil stemn- ing var í hópnum, enda eru miklar æfingar og samvera að baki og stóra ferðin nálgast. Leið lá frá Búðardal yfir Svínadal og áð fyrst á Gil Guest- house á Skriðulandi, þá farið í Hóla- búð á Reykhólum og loks til baka. Allir viðkomustaðir studdu liðið með því að veita þeim næringu, enda tek- ur það mikla orku að hjóla þessa leið. Að lokinni ferðinni komu kapparnir saman í Vínlandssetrinu í Búðardal, sem styrkti liðið með saðsamri súpu á línuna. Um 40 manns tóku þátt í æfingunni, þannig að hópurinn fór ekki framhjá neinum sem átti leið um Vestfjarðaveginn þennan dag. bj Grindhvalir virðast hafa orðið tíðari gestir við Íslandsstrendur á undan- förnum árum og stökkva háhyrn- ingum á flótta með hátterni sínu í hafinu. Þetta sýnir ný rannsókn vís- indamanna við Háskóla Íslands sem unnin er í nánu samstarfi við hvala- skoðunarfyrirtæki allt í kringum landið. Um er að ræða fyrstu rann- sókn sinnar tegundar þar sem sam- skiptum grindhvala og háhyrninga við Íslandsstrendur er lýst. Rannsóknin birtist á dögunum í vísindatímaritinu Acta Ethologica en hún er hluti af doktorsverkefni Önnu Selbmann í líffræði við HÍ. Rannsóknina vinnur hún undir leið- sögn Filipu Samarra, sérfræðings við starfsstöð Stofnunar rannsókna- setra HÍ í Vestmannaeyjum, Jör- undar Svavarssonar, prófessors við Háskóla Íslands, og Paul Wensveen, rannsóknasérfræðings við skólann. Grindhvalir eru tíðir gestir í sjón- um í kringum Ísland en lítið er vit- að um tíðni þeirra nærri strönd- um landsins. Háhyrningar eru hins vegar vel þekktir gestir á strand- svæðum víða um land en rannsóknir á tegundinni hafa hingað til fyrst og fremst beinst að síldarsvæðum þar sem háhyrningar nærast. Markmið rannsóknarinnar, sem sagt er frá í Acta Ethologica, var að varpa ljósi á tíðni grindhvala og háhyrninga við strendur Íslands, þar á meðal hvar báðar tegundir væri að finna, og lýsa samskiptum milli þeirra. Rannsókn- ir við strendur Spánar og Noregs sýna að þessar tvær tegundir eiga í samskiptum og þær hafa m.a. leitt þær athyglisverðu niðurstöður í ljós að háhyrningar, sem tróna á toppi fæðukeðju undirdjúpanna, forðast grindhvali og virðast í sumum til- vikum flýja þá á miklum hraða. Samstarfsverkefni stórs hóps Í rannsókninni sameinuðu vís- indamenn við Háskóla Íslands og rannsakendur og náttúrufræðingar sem störfuðu hjá hvalaskoðunar- fyrirtækjum allt í kringum landið krafta sína. Gagnasöfnun fólst í því að skrá niður hvenær sást til tegundanna tveggja, bæði af rann- sóknar- og hvalaskoðunarbátum og af landi, nánar tiltekið frá Stór- höfða í Vestmannaeyjum. Jafn- framt voru öll sýnileg samskipti tegundanna skráð niður. Gögnin í rannsókninni ná til áranna 2007- 2020 og gagnasöfnun fór fram á sex stöðum á landinu: við Vest- mannaeyjar, í Faxaflóa, Breiða- firði, Steingrímsfirði, Eyjafirði og Skjálfanda. Að rannsókninni komu auk full- trúa við starfsstöð Stofnunar rann- sóknasetra HÍ í Vestmannaeyj- um, vísindamenn og starfsfólk frá Rannsóknasetri Háskóla Íslands á Húsavík, starfsfólk frá Norðursigl- ingu og Gentle Giants á Húsavík, Whale Watching á Akureyri, Láki Tours og Orca Guardians Iceland í Grundarfirði, Special Tours og Eldingu í Reykjavík og Náttúru- stofu Vesturlands í Stykkishólmi. Grindhvalakomum fjölgar við Ísland Rannsóknin leiddi í ljós að grind- hvala varð aðeins vart á sumrin og að komum þeirra að strönd- um Íslands fjölgaði á rannsókna- tímanum, sérstaklega sunnan við landið. Oftast sást til þeirra við Vestmannaeyjar, Breiðafjörð og Steingrímsfjörð. Háhyrningar sáust hins vegar allt árið um kring. Breytilegt var milli árstíða og staða hversu oft sást til þeirra en rann- sakendur urðu reglulega varir við háhyrninga við Vestmannaeyjar á sumrin og í Breiðafirði á veturna og vorin. Eins og ráða má af ofansögðu urðu vísindamenn oftast var- ir við samskipti milli tegundanna við Vestmannaeyjar og í Breiða- firði, eða í 70% tilvika þegar sást til beggja tegunda. Í öllum tilvik- um syntu grindhvalir að háhyrn- ingum sem flúðu undan þeim. Grindhvalirnir nálguðust háhyrn- ingana alla jafna á miklum hraða og í þriðjungi tilvika mátti sjá báð- ar tegundir í ölduflugi, þ.e. dýrin ráku hausana upp úr sjónum og stukku áfram á miklum hraða. Aukin samskipti hafa áhrif á orkubúskap Að sögn vísindamannanna sem standa að rannsókninni eru niður- stöðurnar afar mikilvægar því þær benda til að tíðni grindhvala við strendur Íslands sé mögulega að breytast. Aukin samskipti þeirra við aðrar tegundir geti hugsanlega haft áhrif á umræddar tegundir. „Samskiptin geta haft áhrif á orku- búskap háhyrninga, t.d. ef þeir þurfa að flýja grindhvali á miklum hraða eða hætta að nærast vegna ágengni grindhvalanna. Við þurf- um hins vegar að rannsaka þessi samskipti betur til þess að öðlast betri skilning á áhrifum þeirra,“ segir Anna Selbmann, doktors- nemi í líffræði og fyrsti höfundur rannsóknarinnar. Ekki er vitað hvers vegna kom- um grindhvala hingað til lands er mögulega að fjölga en vísinda- mennirnir benda á að niðurstöður þeirra um samskipti tegundarinnar við háhyrninga séu að hluta í sam- ræmi við niðurstöður fyrri rann- sókna við Noreg og Spán. „Hins vegar sýnir okkar rannsókn að við- brögð háhyrninga við því þegar grindhvalir nálgast eru mismun- andi sem bendir til þess að sam- skiptin séu flóknari en áður hefur verið lýst. Við þurfum að átta okkur betur á vistfræði og líffræði grind- hvala við Ísland til þess að varpa skýrara ljósi á það hvers vegna þess- ar breytingar á útbreiðslu tegundar- innar eru að eiga sér stað og hvaða afleiðingar þær munu hafa fyr- ir vistkerfi sjávar við Ísland,“ segir Filipa Samarra ábyrgðarhöfundur rannsóknarinnar. mm Þreytt, en glatt hjólafólk fyrir utan Vínlandssetrið í Búðardal. Hjólað til góðs um Dali og Reykhólasveit Rynkeby liðið á mikilli siglingu um Dalina. Lýsa samskiptum grindhvala og háhyrninga við landið

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.