Skessuhorn - 15.06.2022, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 20226
Berglind til
HEV
VESTURLAND: Berglind
Ósk Þórólfsdóttir hefur ver-
ið ráðin heilbrigðisfulltrúi hjá
Heilbrigðiseftirliti Vestur-
lands og tók hún til starfa 1.
júní sl. Berglind er með MS
próf í umhverfis- og auðlinda-
fræði frá Háskóla Íslands. Hún
er ekki alveg ókunn starfsemi
heilbrigðiseftirlits því áður
var hún heilbrigðisfulltrúi hjá
Heilbrigðiseftirliti Reykjavík-
ur. -mm
Púttkeppni eldri
borgara
AKRA-BORG: Fimmtu-
daginn 16. júní fer fram að
Hamri í Borgarnesi fyrsta
viðureign sumarsins hjá eldri
borgurum úr Borgarbyggð
og Akranesi í pútti. Verður
þá keppt um farandbikar sem
Húsasmiðjan á Akranesi gaf.
Fyrsta keppnin í þessu sam-
starfi félaganna fór fram 2013
og er þetta því í tíunda sinn
sem liðin mætast, en keppa
skal um gripinn í 20 ár. Ætíð
er keppt á þremur völlum
yfir sumartímann. Keppnin
hefst sem fyrr segir að Hamri.
Keppt verður á Akranesi 13.
júlí og lokakeppnin fer fram
í Nesi í Reykholtsdal í byrj-
un ágúst. Samanlagður árang-
ur sjö bestu úr hvoru liði tel-
ur. Búast má við um 50 kepp-
endum að Hamri og mikilli
keppni sem hefst kl. 11.00. -ii
Námskeið fyrir
eldri borgara
AKRANES: Hildur Karen
Aðalsteinsdóttir verður með
fjögurra tíma námskeið í floti,
slökun og léttum teygjum í
Bjarnalaug á Akranesi. Nám-
skeiðið er fyrir eldri borgara
og fólk með örorku sem ekki
hefur haft tök á því að stunda
almenna hreyfingu og heilsu-
eflingu. Öll kyn eru velkom-
in. Námskeið 1 er frá klukk-
an 10 til 11 dagana 14., 16.,
21. og 28. júní. Námskeið 2
er frá klukkan 11 til 12 sömu
daga. Skráning er í síma 841-
7116 á virkum dögum milli 10
til 16. Námskeiðið er á vegum
Heilsueflandi samfélags og er
verðið 3.750 krónur.
-vaks
Stal bíl og
rafmagns-
hlaupahjóli
BORGARFJ: Um miðjan
dag á þriðjudaginn í liðinni
viku var tilkynnt um glæfra-
akstur ökumanns á Vestur-
landsvegi og Hvítárvalla-
vegi. Þegar lögreglan fór að
kanna málið og rekja slóðina
þá var hann kominn upp í
Svignaskarð. Síðan tók hann
rafmagnhlaupahjól ófrjálsri
hendi og lagði á flótta á því
sem leið lá til Borgarness. Á
leiðinni þangað reyndi hann
að sparka í bíla sem hann
mætti á þjóðveginum og svo
var hann mættur skömmu
síðar í bílinn aftur þar sem
hann var við Galtarholt og
þar var hann handtekinn.
Þar kom í ljós að hann var
á stolnum bíl, talsvert ölv-
aður og hafði auk þess keyrt
utan í bíl í Borgarnesi. Öku-
maðurinn var færður í fanga-
geymslur og á von á sekt fyr-
ir athæfið. -vaks
Bíll brann á
brúnni
BORGARFJ: Síðdegis á
sunnudaginn kom upp eldur
í bíl í akstri syðst á Borgar-
fjarðarbrúnni. Slökkvilið og
viðbragðsaðilar voru kvaddir
á vettvang og færðu bílinn af
vettvangi. Vegna þessa urðu
talsverðar tafir á umferð
um brúna, einkum voru það
ferðalangar á suðurleið sem
þurftu að bíða lengi með-
an aðgerðir stóðu yfir. Bíla-
röðin náði því langt upp fyr-
ir Borgarnes þegar mest var.
Engin slys urðu á fólki. -mm
Fyrstu umferðarljós í Borgarnesi
voru tekin í notkun sl. föstudag,
10. júní og eru þau við gangbraut
á þjóðvegi nr. 1 á móts við leik-
skólann Klettaborg. Fyrst um sinn
verða þau eingöngu gönguljós, en
þegar malbikað verður síðar í sum-
ar verða settar svokallaðar slauf-
ur í malbikið á tveimur stöðum og
skynjarar þar í til að skynja hraða
ökutækja.
Umferðarljósin verða alrauð ljós,
þ.e. það verður alltaf rautt ljós. Aki
ökumenn á löglegum hraða fá þeir
grænt ljós áður en þeir koma að
ljósunum en aki þeir of hratt helst
rauða ljósið lengur og þeir þurfa að
stoppa. Er þetta tilraun sem er gerð
til þess að hægja á umferðinni sem
fer í gegnum Borgarnes.
A sögn Birgittu Ránar Ásgeirs-
dóttur, deildarstjóra hjá Vega-
gerðinni, verður þetta sett upp með
þessum hætti til reynslu í Borgar-
nesi. Ef fyrirkomulagið reynist ekki
vel er hægt að breyta stillingunni á
umferðarljósunum. Þau verða hluti
af nokkrum öryggisaðgerðum sem
verið er að gera í bænum því þjóð-
vegur eitt liggur þar i gegn. Ver-
ið er að útbúa stefnugreind gatna-
mót við Húsasmiðjuna, fylla í skurð
við gatnamót þar og gera örugga
gönguþverun við Klettaborg.
gj
Valnefnd í Borgarprestakalli hef-
ur komist að þeirri niðurstöðu að
ráða Heiðrúnu Helgu Bjarnadóttur
mag. theol sem næsta sóknarprest á
Borg á Mýrum. Alls sóttu fimm um
starfið en einn dró umsókn sína til
baka. Séra Þorbjörn Hlynur Árna-
son hefur þjónað sókninni með
stuttum hléum í fjörutíu ár, eða
frá árinu 1982. Undir prestakallið
heyra Borgarnessókn, Borgar sókn,
Akrasókn, Álftanessókn og Álftár-
tungusókn og áttu fulltrúar allra
þessara sókna sæti í valnefnd.
Heiðrún Helga er fædd árið
1982, dóttir þeirra Bjarna Guð-
jónssonar og Margrétar Grétars-
dóttur. Var hún alin upp í Borg-
arnesi fram á unglingsár. Heiðrún
Helga lauk stúdentsprófi af félags-
fræðibraut frá Menntaskólanum á
Akureyri en fór í kjölfarið til Gva-
temala í Mið-Ameríku þar sem hún
sinnti sjálfboðastörfum. Hún lauk
BA-prófi í guðfræði frá Háskóla
Íslands, þar af tók hún eitt ár í
skiptinámi við Durham háskóla á
Englandi þar sem hún lagði stund á
almenna trúarbragðafræði.
Heiðrún flutti til Kaupmanna-
hafnar árið 2007 og lauk masters-
gráðu í trúarlífsfélagsfræði frá
Kaupmannahafnarháskóla. Hún
lauk mag. theol prófi frá Háskóla
Íslands í febrúar á þessu ári. Lengst
af hefur Heiðrún starfað með
flóttafólki og innflytjendum, bæði
í Sjanghæ og Kaupmannahöfn.
Hún flutti með fjölskyldu sinni
til Íslands árið 2018 og hefur frá
því sinnt störfum meðhjálpara og
kirkjuvarðar við Borgarneskirkju,
auk þess sem hún hefur séð um
barna- og æskulýðsstörf við söfn-
uðinn. Um þessar mundir sinnir
Heiðrún starfi verkefnastýru um
móttöku flóttafólks frá Úkraínu á
Bifröst.
Eiginmaður Heiðrúnar er
Micha el Back, tæknifræðingur hjá
Steypustöðinni, og eiga þau tvö
börn. mm
Heiðrún Helga Bjarnadóttir. Ljósm. Gunnhildur Lind Photography.
Heiðrún Helga verður
næsti sóknarprestur á Borg
Fyrstu umferðarljósin í Borgarnesi.
Fyrstu umferðarljósin komin í Borgarnes