Læknablaðið - 01.12.2021, Page 36
600 L ÆKNABL AÐIÐ 2021/107
S J Ú K R A T I L F E L L I
með enduropnun (recanalization) (mynd 3). Sterameðferð var þá
aukin í 30 mg daglega, aðallega með tilliti til verkjastillingar.
Fengið var vöðva- og taugarit sem sýndi fram á blandaða af-
mýlandi (demyelinating) skyn- og hreyfiúttaugakvilla. Helst var
grunur um krónískan afmýlandi úttaugasjúkdóm (Chronic in-
flammatory demyelinating polyneuropathy (CIDP)) og var sjúklingur-
inn mænustunginn í framhaldinu. Niðurstaða mænuvökva-
rannsóknar var innan marka, en prótein í efri mörkum 538 mg/L
(eðlileg gildi miðast við 150-600mg/L á Landspítala). Þóttu niður-
stöður ekki sannfærandi fyrir CIDP og álit taugalækna að áfram
þyrfti uppvinnslu, meðal annars með tilliti til paraneoplastískra
skýringa.
Á þessum tímapunkti, tveimur dögum eftir innlögn, var al-
mennt ástand sjúklings hratt versnandi. Tekin var tölvusneiðmynd
Mynd 3 Vefjasýni frá hægri gagnaugaslagæð. Ör er vísar niður bendir á enduropnanir
innan blóðsega. Tvíhöfða örin sýnir svæði með krónísku bólguviðbragði í æðavegg.
Stærri örin er bendir til hægri, vísar á hluta af lamina elastica interna eyðingu á meðan
minni örin bendir í átt að margkjarna risafrumu.
Mynd 2A og 2B. Slagæðarannsókn með tölvusneiðmynd af hálsi, höfði og brjóstholi.
Hér sést bólga í ósæðarboganum sem þykknun í æðaveg (örvar).